Youtube frá Kópavogi
Kunningi minn benti mér á þetta forvitnilega myndband þar sem það sést svart á hvítu hvernig Samfylkingaroddvitinn Guðríður Arnardóttir fyrirkemur Gunnari I. Birgissyni!
| Íhaldsbyltingin |
| Himinblá og hljóðlát |
Kunningi minn benti mér á þetta forvitnilega myndband þar sem það sést svart á hvítu hvernig Samfylkingaroddvitinn Guðríður Arnardóttir fyrirkemur Gunnari I. Birgissyni!
Sú aðferð sem Bandaríkin notuðu gegn föngum, og reyndu að halda fram að flokkaðist ekki undir pyntingar var “Waterboarding”. En núna sér maður að þeir refsuðu japönum sem beittu henni á bandaríska hermenn með dauðarefsingu.
Dögg Pálsdóttir kvartar undan því að hafa ekki fengið aðgang að upplýsingum um sitt gengi í prófkjörinu, sem er gott og blessað. En merkilegt að hún skuli hengja þessar kvartanir utan í frétt um útkomu Kristjáns Júlíussonar í NA-kjördæmi. Þetta moggablogg sko. …
Hér eru nokkrar spár fyrir prófkjör Sjálfstæðismanna, sem er að hefjast.
Maður staldrar svolítið við hausinn á framboðssíðu Ármanns Kr. Ólafssonar. Slagorðið er “Gömul gildi - ný tækifæri”, sem er ss. ekki í frásögur færandi nema þar sem frambjóðandinn virðist ljá þeim aukna vigt með þessari líka fínu lopapeysu, ásamt bindinu.
Þetta hlýtur að teljast ansi djarft, enda hafa lopapeysur löngum verið bendlaðar við aðra pólitík en sjálfstæðisflokksins. ;)
Getur einhver sem nýverið hefur skipt frá Tal til Nova með farsíma mælt með því eða gegn því í ljósi reynslunnar?
Ég myndi ekki segja ég væri twitter notandi. En ég tók vörumerkið frá og hef endrum og eins sett e-ð smotts þarna inn. Og sýnist alltaf vera að lifna meira og meira yfir þessu samfélagi - amk ólíklegasta fólk byrjað að fylgjast með þessu.