Archive for the ‘einkahúmor’ Category

Meðmæli fyrir Pressuna

SME greindi frá því í að gær að Halldór Ásgrímsson hefði hafnað viðtali við Mannlíf fyrir réttu ári síðan, en hann vildi heldur ekki tjá sig við blaðamann Vísis.is í fyrradag um rannsóknarskýrsluna. Bloggfærsla SME er með fyrirsögnina Vondir fjölmiðlar:

Seint á árinu 2008 eða snemma árs 2009 hafði ég samband við Halldór Ásgrímsson og vildi fá að taka við hann viðtal sem ég hugðist birta í Mannlífi. Samskipti okkar fóru fram í netpóstum. Nokkur bréf voru skrifuð. Niðurstaða Halldórs var sú, að eftir að hafa lifað og starfað um hríð í Danmörku hafði hann séð muninn á hversu miklu betri danskir fjölmiðlar voru, en þeir íslensku.
Á þeim forsendum afþakkaði hann viðtalið
. Hann svaraði hinsvegar ekki hvort hann sæi mun á ágæti danskra og íslenskra stjórnmálamanna.

Reyndar vekur þetta svar Halldórs spurningar um það hvort það geti verið að utanríkisráðherra til margra ára hafi ekki fylgst með neinum erlendum fjölmiðlum fyrr en hann var fluttur til Danmerkur. En eftir sem áður hljóta það að teljast mikil meðmæli fyrir Pressuna að heimsborgarinn Halldór Ásgrímsson, eftir áralangar samanburðar- og gæðarannsóknir á dönskum fjölmiðlum, kjósi hana til að tjá sig um rannsóknarskýrsluna. [1|2|3|4|5]*

Ritstjórar annarra fjölmiðla hljóta jafnframt að spyrja sig hvað þeir séu að gera vitlaust.

*Jújú, ég geri fastlega ráð fyrir því að fleiri fréttir af skoðunum Halldórs birtist eftir því sem líður á daginn.

Ekki til bloggs

Í dag ætla ég ekki að blogga um:

… hvort framboð Gulla í 2. sætið um árið hafi verið hatrammasta framboð á sögulegum tímum
… sigurmöguleika Árna M. Mathiesen á Suðurlandi
… þýðingu lokunar varnamálastofnunar fyrir öryggi þjóðarinnar
… þjóðarbanka Ögmunds (ekki frekar en Seðlabanka Jóhönnu)
Lárus W? Snorrason
… forræðisdeiluna um listaverk bankanna
… kosningar í VR
… bollur - en verði okkur að góðu.

Ekki til bloggs

Í dag ætla ég EKKI að blogga um:

Þá kenningu að EgillHelga sé í liði með Gulla!
Uppsagnir blaðamanna á Fréttablaðinu.
Framboð Óla Björns ritstjóra AMX.
Skaðabótakröfu DV á hendur Jóns Bjarka!
Nýjar kröfur Radda fólksins.
Skipulagða rógsherferð Samfó gegn ástkærum formanni Framsóknarflokksins. …
Sjóð no. 9.

Og svo er líklega best að segja minna frekar en meira um væntanlega kaupendur moggans. Skyldi það einhvern tímann gerast á þessu skeri að stóru miðlarnir komist í eigu fólks sem kann að reka fjölmiðla?

Óvænt?

Kolbrún Bergþórsdóttir er með opnuviðtal við Jón Baldvin Hannibalsson í Morgunblaðinu í dag. Nýtt Ísland, einhver?

Tileinkað skilanefnd Kaupþings

skilanefnd

(Mynd í boði failblog.org)

Ekki til bloggs

Þó maður bloggi um allt milli himins og jarðar nema kannski sjálfan sig, þá koma líka stundum upp mál sem maður ákveður að blogga ekki um - og kannski ætti maður að halda til haga málum sem maður vill helst ekki tjá sig um:

Bréfaskipti Geirs H. Haarde og IMF
Eitrað fæðubótarefni Árna Johnsen
Ekkiviðtal Bubba Morthens um Björn Jörund
Framboð Jórunnar Frímannsdóttur í 2. sæti í Rvk
Tilraunir Framsóknar til að fá Egil Helgason í framboð
Úrsögn Þráins Bertelssonar úr Framsókn
Fögnuð Frjálshyggjufélagsins yfir dauða nýfrjálshyggjunnar
Bréflegar meldingar félagsmálaráðherra til formanna flokkanna
Hugsanlegur formannsslagur í Frjálslynda flokknum
Sala lúxusbíla Kaupþings
Ólafur Ragnar Grímsson

Trúbador á þing?

Nei, líklega ekki. En bíður maður spenntur eftir þönkum Andrésar á Góðum samskiptum um hversu gott PR-ið í þessari framboðsyfirlýsingu er. ;)

[Uppfært 22:55] Fréttinni hefur verið breytt, og búið að taka út þessa líka fínu mynd af framkvæmdastjóranum með kassagítarinn sinn. Bömmer!

Stjórnarformaður styður Friðbjörn

Hér lýsir stjórnarformaður Viðskiptablaðsins yfir stuðningi við Friðbjörn Orra í löngu máli. ;)

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...