Archive for the ‘Facebooksmölunin’ Category

Facebookprófkjörið

Áfram með Facebookprófkjörið mikla. Rósa Guðbjartsdóttir (who?) er hástökkvarinn og fer upp fyrir Guðlaug Þór. En annars sýnist manni heldur vera að hægja á fjölgun stuðningsmanna á Facebook þessa dagana. Tryggvi Þór Herbertsson er nýr á lista, enda rétt nýskriðinn yfir 300. Einhverjir fleiri sjallar þarna úti búnir að ná því?

  1. Bjarni Benediktsson - 1465 stuðningsmenn (+15)
  2. Þórlindur Kjartansson - 726 stuðningsmenn (+11)
  3. Rósa Guðbjartsdóttir - 633 stuðningsmenn (+53)
  4. Guðlaugur Þór Þórðarson - 622 stuðningsmenn (+6)
  5. Illugi Gunnarsson - 600 stuðningsmenn (+31)
  6. Íris Róbertsdóttir - 516 stuðningsmenn (+22)
  7. Erla Ósk Ásgeirsdóttir - 453 stuðningsmenn (+40)
  8. Haukur Þór Hauksson - 408 stuðningsmenn (+15)
  9. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 405 stuðningsmaður (+4)
  10. Unnur Brá Konráðsdóttir - 400 stuðningsmenn (+22)
  11. Ólöf Nordal - 327 stuðningsmenn (+12)
  12. Tryggvi Þór Herbertsson - 302 stuðningsmenn (nýr)

Efstu sjallar á facebook

Hin æsispennandi facebookkosningabarátta er lent í ákveðinni tilvistarkreppu þar sem sum prófkjör eru búin og önnur ekki - sum eru komin af stað. Þannig að við skulum bara einblína á Sjálfstæðismennina, sem eiga allt ógert.

Einnig má geta þess að þessar samantektir virðast mæta mismiklum velvilja hjá frambjóðendum - mér sýnist sem þeir hafi með sér víðtækt samráð um að fallbeygja nöfn sín með ýmsum hætti á stuðningsmannasíðum sínum á facebook. ;)

  1. Bjarni Benediktsson - 1450 stuðningsmenn (+30)
  2. Þórlindur Kjartansson - 715 stuðningsmenn (+69)
  3. Guðlaugur Þór Þórðarson - 616 stuðningsmenn (+81)
  4. Rósa Guðbjartsdóttir - 580 stuðningsmenn (+152)
  5. Illugi Gunnarsson - 569 stuðningsmenn (+123)
  6. Íris Róbertsdóttir - 494 stuðningsmenn (+69)
  7. Erla Ósk Ásgeirsdóttir - 413 stuðningsmenn (+64)
  8. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 401 stuðningsmaður (ný)
  9. Haukur Þór Hauksson - 393 stuðningsmenn (nýr)
  10. Unnur Brá Konráðsdóttir - 378 stuðningsmenn (ný)
  11. Ólöf Nordal - 313 stuðningsmenn

Annars vekur kynjaskiptingin á þessum lista sérstaka athygli - þetta eru þeir sem ég fann sem hafa yfir 300 stuðningsmenn á facebook. Tryggvi Þór Herbertsson er ekki langt undan reyndar.

Facebookkeppnin mikla, Staðan

Hef lítið náð að blogga í dag vegna flensu - en við skulum halda áfram að fylgjast með facebookkeppninni miklu! Uppfærðar tölur síðan í gær, og fjölgum kandidötum upp í 15. Fleiri ábendingar óþekkta fésbókarspútnikka óskast takk.

Hér eru uppfærðar tölur frá því í gær í Facebookkeppni frambjóðendanna um fjölda stuðningsmanna.

  1. Jóhanna Sigurðardóttir - 4076 (+28)
  2. Bjarni Benediktsson - 1415 stuðningsmenn (nýr)
  3. Katrín Jakobsdóttir - 792 stuðningsmenn (+18)
  4. Steingrímur J. Sigfússon - 721 stuðningsmenn (nýr)
  5. Þórlindur Kjartansson - 646 stuðningsmenn (+92)
  6. Guðlaugur Þór Þórðarson - 535 stuðningsmenn (+18)
  7. Svandís Svavarsdóttir - 484 stuðningsmenn (+5)
  8. Anna Pála Sverrisdóttir - 480 stuðningsfélagar (+6)
  9. Pétur Tyrfingsson - 469 stuðningsfélagar (+12)
  10. Illugi Gunnarsson - 446 stuðningsmenn (+43)
  11. Rósa Guðbjartsdóttir - 428 stuðningsmenn (ný)
  12. Íris Róbertsdóttir - 425 stuðningsmenn (ný)
  13. Magnús Orri Schram - 389 stuðningsmenn (nýr)
  14. Bryndís Gunnlaugsdóttir - 388 stuðningsmenn (+5)
  15. Erla Ósk Ásgeirsdóttir - 349 stuðningsmenn (+19)

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...