Fjölmiðlatepokar dagsins
Það kemur í sjálfu sér lítið á óvart að Björgvin Guðmundsson sé gerður að ritstjóra Viðskiptablaðsins. Hann hefur verið gera góða hluti og var yfirmaður þeirra á Morgunblaðinu sem fluttu sig yfir. Þá liggur það fyrir að hann hefur lengi verið í nánum tengslum við eigendur blaðsins og er án efa sá sem þeir vilja, enda var maður hálfhissa að hann skuli ekki frá upphafi hafa verið með ritstjóratitilinn.
——
Mónitor kom í fyrsta skipti út með Morgunblaðinu í dag. Þetta er fínasta blað, enda ekki við öðru að búast hjá Birni Braga. En það er spurning hversu langlíf þessi útgáfa verður.
Þetta er þriðja tilraunin sem Morgunblaðið gerir til útgáfu á dægurblaði fyrir ungt fólk sem dreift er með blaðinu. Sú fyrsta var 24/7 fyrir kannski 7-8 árum, og fyrir 3-4 árum var Málið gefið út. Hvorug útgáfan virtist ganga upp, og maður áttar sig ekki á því af hverju það ætti að ganga betur núna þegar auglýsingamarkaður er mjög takmarkaður og áskrifendur Morgunblaðsins enn færri en í síðustu atlögum.
——
Maður áttar sig ekki á því hvernig ÁJF datt í hug að reyna að ljúga til um útlendingaröðina, eftir að hafa tjáð sig um hana við blaðamann - þeir taka í langflestum tilvikum öll samtöl upp. Hefði ekki verið betra að viðurkenna einfaldlega að þetta hefðu verið mistök og að leitað yrði annarra leiða til að hjálpa einstæðum mæðrum, eldri borgurum eða fötluðum að stytta biðtímann.
—–
Annars eru slæmu fréttir dagsins þær að nýtt stríð hefur brotist út á milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að enn sem komið er hefur aðeins verið tekist á um það hvorum tekst að finna langsóttari ástæður til að segja sig frá Stöðugleikasáttmálanum. …
—–
Ein af merkilegri fréttum landsins er að eitt merkasta frumkvæði síðari ára sé nú formlega orðið ríkisrekið. Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) mun nú næstu fimm árin sjá um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves, en áður sá Hr. Örlygur/Mr. Destiny um hana. Orðið á götunni er hins vegar að í rauninni muni Þorsteinn Stephensen og co. hjá Örlygi áfram sjá um hátíðina, en með ÚTÓN eigi að vera yfir hátíðinni til að tryggja hún nýtist sem best til að markaðssetja íslenska tónlist erlendis. Sjáum til hvað verður.
—–
Og að lokum: Pressan birti í fyrradag frétt um 8 ára pókersnilling sem fær ekki greiddan 57 milljón króna vinning. Ef marka má þessa umræðu á íslenska pókervefnum 52.is er þetta lygasaga sem byrjaði að ganga á netinu fyrir hálfum mánuði eða svo.
