Archive for the ‘Ábendingar’ Category

Forvitnileg yfirsjón

Eiríkur Bergmann skrifar lærðan pistil um dapurleg örleg þeirra sem skipta um flokk og fara yfir í Sjálfstæðisflokkinn eftir afhroð Gísla S. Einarsonar í prófkjörinu á Akranesi.

Raunar minnist ég ekki nokkurs stjórnmálamanns sem hefur almennilega tekist að fóta sig í Sjálfstæðisflokknum eftir að hafa sölsað yfir úr öðrum flokki.

Það er reyndar rétt hjá honum að Íhaldið hefur oft tekið þunglega á móti fólki sem kemur annars staðar að. Eftir sem áður er rétt að halda því til haga að í sama prófkjöri tók þátt Karen Jónsdóttir sem hafnaði í 3. sæti. Hún skipti úr frjálslynda flokknum yfir í xD á miðju þessu kjörtímabili. Forvitnileg yfirsjón þar á ferðinni hjá svo rómuðum nákvæmnismanni. ;)

gúglséníið Jónas.is

Jónas Kristjánsson hæðist af sínu alkunna lítillæti af þeirri hugmynd að hestar sem þekkja mannalykt verði þjálfaðir til björgunarstarfa.

Hef lítið vit á hestum, enda á ég svo fáa, að ég get talið þá. Því kom flatt upp á mig, að þjálfa ætti þefhesta til að finna týnt fólk á fjöllum. Forsíða Fréttablaðsins fjallaði um þetta í gær. Skildist mér, að gangnahestar séu nærri því að þefa fé uppi í haustleitum. Fræði, sem ég hef aldrei heyrt. Brá mér á Google og fann ekkert um þetta, svo að þetta er líklega uppfinning í Borgarbyggð. Fleiri húsdýr en hestar hafa dulda hæfileika. Ég hef lengi haft áhuga á að selja sauðfé til erlendra herja. Kindur hafa dulda hæfileika til að komast yfir rimlahlið og gaddavírsgirðingar. Gagnlegur kostur í innrásum.

Líklega er Jónas ekkert séní þegar kemur að notkun leitarvéla. Ég fór á google og sló inn “searh horse finds people by smell” og þar kom þessi grein í 8. sæti.

Þannig að teljararnir eru ekki einu notforritin þar sem Jónas.is gæti aukið við kunnáttu sína. Og þó hann eigi allþónokkra hesta getur hann greinilega lært sitthvað fleira um þá líka - enda alltaf gaman að hafa augun opin og læra nýja hluti. ;)

WashPost rukkar fyrir aðgang að blaðamönnum

Samkvæmt þessari frétt hefur dagblaðið Washington Post tekið upp á þeirri forvitnilegu nýbreytni að rukka Lobbýista fyrir aðgang að blaðamönnum og ráðamönnum - fyrir 25.000 dollara á haus. Í formi ráðstefnuhalds, að sjálfsögðu.

Flott hjá Obama

Hérna virðist um að ræða mjög eftirtektarvert “múv” hjá Hvíta húsinu.

Nico Pitney hefur bloggað um óeirðirnar í Íran fyrir Huffington Post, og hefur verið í beinu sambandi við Írani gegnum netið. Svo virðist sem Hvíta húsið hafi haft samband við hann í morgun og boðið honum að koma með spurningar frá írönskum borgurum inn á blaðamannafund með forsetanum í Hvíta húsinu.

Þarna er um að ræða töluvert stílbrot í samskiptum Hvíta hússins við fjölmiðla. Það tíðkast ekki að Hvíta húsið og blaðamenn tali sig saman fyrir blaðamannafundi, og þá hnjóta menn sérstaklega um að Nico hafi verið annar í röðinni, á milli AP og Reuters, en það er víst gamalgróin goggunarröð á þessum blaðamannafundum þar sem AP og Reuters fá jafnan fyrstu spurningarnar.

Eins og Andrew Sullivan orðar það: “Obama Doesn’t Take Sides In Iran. But he seems to have taken a side in the old media-new media conflict.”

Sem ætti kannski ekki að koma á óvart. Hefðbundnu fjölmiðlarnir hafa staðið sig áberandi verr en bloggarar og nýmiðlar á borð við TalkingPointsmemo og HuffPost þegar kemur að umfjöllun um Íranskosningarnar.

Gáta dagsins

Svariði nú rétt, a) eða b).

“Kafka og Kundera í Bankasýslu” er …

a) Heiti á smásögu sem gerist í litlu byggðalagi fyrir norðan?
b) Fyrirsögn á frétt í Morgunblaðinu?

Siemens og Nokia útveguðu Írönum njósnabúnað

Samkvæmt þessari frétt útveguðu fjarskiptarisarnir Nokia og Siemens írönskum stjórnvöldum tækni til netnjósna gagnvart eigin borgurum. Sem gengur mun lengra en nokkurs staðar annars staðar tíðkast.

Átakanlega dapurt

Á þessu myndbandi sést írönsk stúlka á gangi ásamt föður sínum í hópi mótmælenda - hann er í bláröndóttri peysu.

Þetta myndband sýnir sömu stúlku þar sem hún deyr í höndunum á föður sínum eftir að hafa verið skotin. Það er réttast að vara við því fyrir viðkvæma.

Síðara myndbandið hefur flogið um netið í dag. Andrew Sullivan birtir á bloggi sínu þennan tölvupóst frá vitni að atburðinum.Þar kemur fram að um kílómetri var í sjálf mótmælin - Neda og faðir hennar voru sumsé víðsfjarri átökunum og hefðu ekki átt að vera í neinni hættu.

“At 19:05 June 20th Place: Karekar Ave., at the corner crossing Khosravi St. and Salehi st. A young woman who was standing aside with her father watching the protests was shot by a basij member hiding on the rooftop of a civilian house. He had clear shot at the girl and could not miss her. However, he aimed straight her heart.

I am a doctor, so I rushed to try to save her. But the impact of the gunshot was so fierce that the bullet had blasted inside the victim’s chest, and she died in less than 2 minutes. The protests were going on about 1 kilometers away in the main street and some of the protesting crowd were running from tear gass used among them, towards Salehi St.

The film is shot by my friend who was standing beside me. Please let the world know.”

Ömurlegt

Uppfært 00:49:
Nico Pitney sem bloggar um ástandið í Íran fyrir Huffington Post hefur þessu við að bæta um stúlkuna:

6:55 PM ET — A bit more on Neda. A blogger apparently in touch with Neda’s family members offers some new details (translated by reader Nima): she was born in 1982, apparently her full name was Neda Agha-Soltan, and she was at the protest with one her professors and several other students. She was, they said, shot by a basiji riding by on a motorcycle. Also, she was apparently buried today at a large cemetery in the south of Tehran. ABC News’ Lara Setrakian writes, “Hearing reports Neda was buried in Behesht Zahra cemetery earlier today, memorial service cancelled on orders from authorities.”

Bandarískur stórbloggari rekinn

Bloggheimar í Bandaríkjunum hafa logað síðan þær fréttir bárust að stórblaðið Washington Post hefði rekið bloggarann Dan Froomkin. Hann hefur síðustu ár séð um bloggið White House Watch á vef blaðsins og vakið mikla athygli gagnrýni sína á stjórn Bush, og virtist ekki síður ætla að vera gagnrýninn á stjórn Obama.

Opinbera skýringin hjá stjórnendum blaðsins er sú að áhugi á Hvítahússvaktinni hafi minnkað síðan ríkisstjórn Bush fór frá, en fæstir virðast taka það alvarlega - og reyndar hefur blaðið ekki hrakið þá fullyrðingu að blogg Froomkin hafi enn verið eitt mesta lesna efnið á vef WaPo.

Það hefur komið fram að lengi hafði verið óánægja á ritstjórn WaPo með skrif Froomkin. Hann hafi þótt skoðanaglaður og margir þóttust sjá í skrifum hans dulda gagnrýni á fréttamennsku blaðsins. Svo mikið er víst að Froomkin stundaði ekki þau vinnubrögð að birta gagnstæð sjónarmið stjórnar og stjórnarandstöðu, heldur kafaði sjálfur ofan í þær fullyrðingar sem stjórnvöld sendu frá sér

Besta samantektin er líklega hér á Salon.

At the Post, Froomkin stated when government officials were lying; applied skepticism to claims from politicians; believed journalists should do more than mindlessly recite what each side claims; and treated politicians on all sides equally.  In a minimally healthy political culture, those would be the bare requirements for being called a “journalist.”  In the establishment media culture we have, those traits disqualify you from the term and, if they persist, get you fired.

Fleiri linka má finna í þeirri grein sem hafa áhuga á málinu.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...