Samkvæmt einkar áreiðanlegum heimildum Svansson.net munu stjórnendur Moggabloggsins innan skamms bæta eftirfarandi ákvæðum við skilmála Moggabloggsins í ljósi nýskeðra atburða:
1. Moggabloggið skal vera vettvangur fólks, um eða yfir meðalgreind, sem stunda umræður með siðprúðum og vitrænum hætti, og iðkar af metnaði þá kúnst að tjá sínar skoðanir um helstu mál landsmanna af yfirburðameinleysi. Moggabloggarar skulu vera sjálfum sér, moggablogginu og öðrum moggabloggurum til sóma.
2. Bloggurum á Bloggablogginu [sic] er skylt að haga skrifum sínum, kommentum sem að þeim er beint, og færslum bloggara um þá úti í bæ, með þeim hætti að ekki rísi upp götudómstóll á moggablogginu.
3. Notendum Morgunblaðsins er skylt að haga skrifum sínum og andmælum þannig, séu þeir nokkuð mikið lesnir á þeim tíma sem andmælin koma fram, að þeir trufli ekki sálarró þóknanlegra moggabloggara.
4. Níðvísur gegn feministum og öðrum þjóðfélagshópum sem eru innundir hjá ritstjórn Morgunblaðsins, skulu áfram vera heimilar, en þó með þeim skilyrðum að þær séu vel ortar, með réttri stuðlasetningu, og setu (”z”) þar sem það á við.
5. Moggabloggið, sem annars tekur ekki, hefur aldrei tekið og mun aldrei taka neina ábyrgð á skrifum notenda sinna, áskilur sér rétt til að loka bloggum þeirra af ástæðum sem annars eru ekki skilgreindar sérstaklega í skilmálum þessum, ef andrúmsloftið kallar upp á það.
6. Viðbætur þessar taka gildi þegar í stað og eru afturvirkar. Þeim moggabloggurum sem hafa athugasemdir við það er frjálst að flytja sig annað áður en síðum þeirra verður lokað vegna ítrekaðra brota á skilmálum blog.is