Archive for July, 2007

Spurningin:

Hefur verið til íslensk hljómsveit sem heitir nafni sem byrjar á “Ð”?

Stórfrétt úr fjölmiðlaheiminum?

Ég uppgötvaði stórfrétt dagsins í íslenskum dagblöðum í stigaganginum í morgun. Ég las hana ekki í blöðunum, heldur í fingrunum. Blaðið var þykkara en Fréttablaðið, án þess að auka- eða sérblöð skýrðu það. Það hefur held ég ekki áður borið við.

Innblað Fréttablaðsins, “Allt” er að sjálfsögðu ekki “alvöru” blað. Það hlýtur að vera eitthvað meira að frétta en þetta.

Mér þætti gaman að vita hvað maðurinn sem stjórnar þykkt blaðanna í Skaftahlíð er nákvæmlega að hugsa, enda þykir mér erfitt að trúa því að þetta endurspegli breytt hlutföll í rekstrargæðum þessara tveggja blaða.

Blað sem er lesið af mjög mörgum á hverjum einasta degi getur misst yfirburðastöðu sína mjög hratt, og jafnvel á nokkrum vikum. Skyldi finnast nokkur maður í stjórnendastöðu inni á Fréttablaðinu sem er með það á hreinu hve langur tími leið frá því að Fréttablaðið var endurstofnað með nýjum eigendum þangað til það var komið fram úr Morgunblaðinu, risaeðlu síðustu áratuga, í leshlutfalli?

Orðskrípi dagsins: Með ólíkindum

… er í boði norðlenzka “ólíkindatólsins” Stebbafr, og tileinkað aðdáendahópnum sem er ekki enn búinn að fá færslu dagsins - sem er reyndar með ólíkindum.

Hér má með hjálp google finna 233 nýlegar færslur eftir kappann sem innihalda orðalagið með ólíkindum.

Ef aðeins er flett upp fyrir gamla bloggið hans (sem er importað á moggabloggið) er 72 niðurstöðum minna. Það gerir þá líklega 161 ólíkindi síðan hann byrjaði á moggablogginu í september í fyrra. Ólíkindatólið hefur því notað orðalagið “með ólíkindum” upp á rétt rúmlega annan hvorn dag síðan þá.
Til að fullrar sanngirni sé gætt er rétt að taka fram að sjálfsagt er honum nokkur vorkunn, enda með ólíkindum afkastamikill í skrifum sínum um íslenskar fréttir. Og til að enn frekari sanngirni sé gætt er líka rétt að taka fram að google tvítelur líklega ekki þær færslur þar sem orðalagið “með ólíkindum” kemur tvisvar fyrir.

En hér með hefur orðskrípið “með ólíkindum” komið fyrir sex sinnum í þessari einu færslu. Ég vonast, með þessu áframhaldi, til að toppa kónginn um miðjan október eða svo.

En þá áhugamenn um lifandi og fallegt tungumál sem kunna af málefnalegum ástæðum að vilja afstýra þessari samkeppni eru eindregið hvattir til að setja uppástungur um annað orðalag sömu eða sambærilegrar merkingar í kommentakerfið hjá mér, okkur Stefáni til gagns.

Viðbót: Hér er nánari sundurgreining á ólíkindum Stefáns:

86x er með ólíkindum
53x reyndar með ólíkindum
34x eiginlega með ólíkindum
7x alveg með ólíkindum
6x var með ólíkindum
6x auðvitað með ólíkindum
5x og með ólíkindum

Restin eru síðan önnur ólíkindi

Árinu eldri?

Nei. En þó fáeinum dögum eldri, eins og gengur.

Raspútin lifir

Ég spái byltingu í Noregi á næstu árum.

Frekar af “greiðslunum”

Eftir því sem ég kemst næst hefur Saving Iceland reyndar einhver fjárforráð. Ein erlend náttúruverndarsamtök munu hafa styrkt þau, og einhverjar tekjur voru af styrktartónleikum sem haldnir voru fyrr í sumar.

Varðandi handtökur, þá hafa einhverjir handtekinna fengið sektir, jafnvel upp á krónur 100.000. Sennilegasta skýringin á orðróminum er þá væntanlega sú að S.I. hafi greitt þessar sektir að einhverju eða öllu leyti, og etv annan kostnað (lögfræðing?).

Sé það raunin er frétt Björns Malmquist einfaldlega röng - og ennfremur spurning af hverju heimildin leiðir hann ekki á rétt spor.

Greitt fyrir mótmæli

Hvað myndu menn segja ef það væri fyrsta frétt í ríkissjónvarpinu að Heimdellingar hefðu fengið laun fyrir að sitja yfir skattskrám svo aðrir kæmust ekki í þær? Ramakvein frá sósíalistaarminum? Háværar fyrirspurning frá blaðamönnum um það hver borgaði fyrir uppátækið?

Ég held ekki. Þvert á móti hugsa ég að nokkuð hátt hlutfall villtasta vinstrisins myndi kveikja á því að þessi frétt hlyti að vera eitthvað hæpin.

Og að sama skapi finnst mér erfitt að trúa því að margir trúi fyrstu frétt (ójá - þeir gerðu þetta að fyrstu frétt) Ríkissjónvarpsins í gær, um að mótmælendur fái greitt fyrir að vera handteknir. Samkvæmt heimildum sem fréttastofan telur traustar.

Rétti upp hönd sem efast um að heimildin sé komin frá lögreglunni.

Það er kannski rétt að geta þess að Stebbifr er fullkomlega sannfærður um að fréttastofan hefði aldrei gert þetta að fyrstu frétt nema hafa mjög solid heimild - en sjálfur er ég ekki jafnsannfærður.

Man annars einhver eftir frétt þar sem lögreglumaður fullyrti að skipulögð glæpasamtök skipulegðu flutning sígauna til landsins?

Ég hef enga trú á því að Saving Iceland eigi nokkurt fé að gagni í sínum sjóðum. Af hverju ætti ungt félag, með fólki af jaðri stjórnmálalitrófsins, flest á menntaskólaaldri, sem þar að auki gefur sig út fyrir að virða ekki lög, að hafa fjárráð sem eldri og borgaralegri samtök hafa ekki? Það er fátt sem bendir til þess að nokkur einasta fjárfesting sé í mótmælunum sem staðið er fyrir. Og reyndar er ekkert til sem bendir til þess að samtökin séu til sem lögaðili, sem þýðir að þau geta ekki einu sinni átt bankareikning nema þá á nafni einhvers félagsmanns.

Svo hvaðan kom þá greiðsla fyrir handtöku, ef einhver var? Ef heimildarmaðurinn er eins traustur og fréttastofan telur, hvað sagði hann þá um hvaðan greiðslan kom?

Ein spurning: Nú er þetta varla nema handfylli af einstaklingum sem hefur verið handtekin. Vilji einhver komast í samband við þá er það sjálfsagt ekki mikið mál - til að mynda með því að biðja um símanúmer hjá þeim hjá talsmönnum samtakanna. Svo spurningin er: Gerði Björn Malmquist nokkra einustu tilraun til að tala beint við einhverja af þeim handteknu og spurja út í orðróm af þessu tagi?
Kannski það sé Hannes Smárason sem er að borga þetta, rétt eins og hann átti víst að vera bakhjarlinn að auglýsingaherferð Draumalandsins fyrir síðustu alþingiskosningar.

En líklega ætti ég ekkert að vera að tuða yfir fréttamennskunni. Úr því haft var samband við talsmann Saving Iceland og honum gefið færi á að neita þessu getur ekki neitt verið athugavert við þetta - er það nokkuð?

Að sjá feigð

Merkisfrétt á Eyjunni um köttinn Óskar. En þó er nokkur mínus á henni að láðst hafi að nota hið gamalgróna íslenska orð “feigð” til að lýsa hæfuleikum Óskars, sem er tvímælalaust köttur dagsins.

Ekki það að ég sé sérstaklega hjátrúarfullur, en ég hef nú samt alltaf verið þess nokkuð sannfærður að skepnur beri skynbragð á þessa hluti. Hafa ekki allir langreyndir kúasmalar séð kúna sem er á leið í slátrun hegða sér öðruvísi? ;)

Og það eru til ótalmargar frásagnir af feigð sem sást á fólki hér á landi, frá mörgum tímum, þó feigð Njáls sé sjálfsagt þekktust af þeim, þegar hann bað fólk að snúa aftur inn í bæinn og Skarphéðinn gerði honum það til geðs að deyja með honum - enda óttaðist hann ekki dauða sinn.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...