Archive for August, 2007

Get það enn

Jæja - þá er maður orðinn tveggja barna faðir, eða svona því sem næst.

Og ef einhver skyldi hafa efast um það á tímabili skal ég taka það skýrt fram að ég get enn tekið 36 klukkustunda vinnutarnir með litlum sem engum svefn, ef þess þarf.  :)

Kann enginn lengur að ráða gátur?

Spurði um daginn hvað þessir ættu sameiginlegt:

1) Brian May
2) Bjarni Felixson
3) Montgomery Scott (Scotty)
4) Winston Churchill
5) The White Stripes

Enn hefur ekkert rétt svar borist. Allir búnir að gefast upp?

Gáta: Hvað eiga sameiginlegt

Góðan daginn.

Búinn að vera frekar mjög upptekinn, en hér er gáta: Hvað eiga eftirtaldir sameiginlegt:

1) Brian May
2) Bjarni Felixson
3) Montgomery Scott (Scotty)
4) Winston Churchill
5) The White Stripes

Ekki við bjargandi

Þetta mun ekki bjarga DV. Hugmyndin er einfaldlega frá upphafi slæm - maður skilur ekki að nokkur maður skuli hafa sett pening í þetta.

DV var á sínum ágætt blað sem náði að lifa sæmilega sem snarpt fréttablað, hafði ágætis áskrifendahóp, einkum á landsbyggðinni, seldi svolítið í lausasölu og seldi alltaf vel af helgarblaðinu. Það hafði líka drjúgar tekjur af smáauglýsingunum.

Í dag er öldin einfaldlega önnur. Það eru mjög fáir líklegir til að abonnera dagblaði á tímum netmiðla og fríblaða. Smáauglýsingarnar koma aldrei aftur. Auglýsingamarkaðurinn hefur líka breyst mjög mikið á síðustu árum með tilkomu birtingahúsanna, sem stór hluti auglýsingabirtinga fer í gegnum.

Altso, DV á ekki séns. Það kann vel að vera að Reynir geti gefið því eitthvað edge, sem Sigurjón kann að vanta. En það er einfaldlega ekki við Sigurjón að sakast um hina dapurlegu lesningu blaðsins.

Veiktist blaðberinn?

Egill Helgason, sem bráðlega byrjar með bókmenntaþáttinn sinn á RÚV, er búinn að blogga tvisvar í dag, og leggur í bæði skiptin út af málefnunum. [1|2] Það mætti halda hann hafi ekki fengið lesbók morgunblaðsins nú um helgina. ;)

Snilldarmyndband

sjálfsögðu snýst þetta allt um bjór!

Fastir liðir eins og venjulega

Ég dýrka þetta sérálit, sem við munum sjálfsagt sjá oftar næstu ár.

“Hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson skiluðu séráliti. Kemur þar fram sú skoðun þeirra að þeir telji það ekki í verkahring Hæstaréttar að raða umsækjendum í hæfnisröð líkt og meirihlutinn geri.”

Tíminn verður síðan að leiða í ljós hvort þeim sem upp á það skrifa muni fjölga eða fækka með nýrri ríkisstjórn. ;)

Listi yfir íslensk götublöð/fríblöð

Ég hef reynt að fylgjast svona sæmilega með þessu í gegnum tíðina. Hér eru þau blöð sem ég man eftir, sem hafa komið út, að minnsta kosti einu sinni.

Undirtónar
Sánd
Orðlaus
Tímaritið Hans
Adrenalín
Vamm
The Reykjavík Grapevine
ReykjavíkMag
Sirkus (var það, er það ekki lengur)
Djöflaeyjan
Menntaskólablaðið Verðandi
Eimreiðin
Músík og Myndir
Málið
24/7
Flass Magazin
Hugsanlega mætti líka hafa Bændablaðið og sjómanninn í þessari upptalningu, þó þau hafi ss. mest lítið með ungt fólk að gera, ólíkt ofantöldum.  Myndir mánaðarins geta varla talist fríblöð, þar sem vídeóleigurnar kaupa eintökin af útgefandanum.
Endilega bætið við í kommentakerfið ef þið munið eftir einhverju.

Síðan veit ég um þó nokkrar tilraunir til viðbótar sem hafa komist mislangt áfram en ekki komið út.

Sum þessara blaða höfðu bakhjarla, önnur ekki - en ég veit ekki til þess að neinn þeirra sem setti stofnfé í að koma fríblaði á fót hafi komist vel frá því. Það verður gaman að sjá hvernig Monitor mun koma til með að þróast.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...