Archive for September, 2007

Ummælin

“Venjulegir borgarar, sem stóðu í þeirri trú að þeir gætu gengið óhultir um Austurstræti um miðjan dag á laugardegi kunna vel að meta afstöðu borgarstjóra til vínkælis á þeim stað.”

Staksteinar Morgunblaðsins taka upp hanskann fyrir borgarstjóra. Villi hlýtur að kunna honum miklar þakkir fyrir þessa málsvörn. ;)

The Basic Values of Icelandic Society

Usually, I dont blog in English.

However, lately we have noticed a bit of misunderstanding about the basic values of Icelandic society, so I decided to translate the list into english. Hopefully, this will help someone.  Please note that the list might have changed since I learned it in elementary school. …

1) It´s forbidden to pee on a wall in downtown Reykjavík after 10 pm on weekends.
2) It´s forbidden to delay traffic of cars or any other vehicles, on roads or in other places, such as work areas.
3) Free speach is allowed and the society encourages open and unchained debate and exchange of opinion by accepted means.
4) Police officers and other employees enacting government policy are not to be disturbed.
5) Foreigners below age 24 are not to get engaged, married or in any other way emotionally involved to Icelanders without connections in the Icelandic Althingi (which happens to be the oldest Parliament in the world etc.).
6) Icelandic nature is our own and not other peoples business.
7) Protesting foreign dictators on official visits in Iceland is allowed as long as the dictator does not notice the protest.
8) The Icelandic government, on behalf of the Icelandic people, can for politically convenient reasons support any war it wishes without having any responsibility whatsoever for the consequences.
9) Foreign employees in foreign companies working for government supported projects are de facto not protected by the Icelandic law.
10) America was discovered by Leifur Eiríksson the Lucky, whom was, is and always will be an Icelander.
11) This list can be changed on a day-to-day basis in accordance with political opinions of Icelandic officials.
12) Iceland is a free and open democracy. Icelanders and visitors to Iceland should be thankful for that.

Engin skýring á dularfullu háttalagi bíls?

Ég giska á að þessum blaðamanni verði seint falið að sjá um að skrifa bílablað. Skýringin er jú næsta augljós. Bíllinn er dísilbíll. Hann hefur verið í gír. Höggið hefur dugað til að ýta honum í gang. Flóknara er það líklega ekki. …

Hrist upp í bókmenntaheiminum?

Kannski mátti eiga von á þessu frá einhverjum. Hressileg árás á nýafstaðna bókmenntahátíð þarna á ferðinni.

Tekinn

Ég var of seinn að sjá bílinn handan við hæðina og náði ekki að hægja á mér í tíma. Og fljótlega kom maður út og hljóp yfir veginn. Beindi fingrinum að mér og ég þurfti að gera svo vel að leggja.

Blástakkar í umferðareftirliti. Og minn var Tekinn.

En löggæslan er samt með öðrum brag úti á landi en í miðbæ Reykjavíkur.  Þetta voru ágætis strákar held ég, og á svipuðum aldri og ég. Sá sem hafði hlaupið út var nánast vandræðalegur yfir því að gera mér það ómak að stöðva mig fyrir of hraðan akstur, en reyndi að bera sig vel.

Þegar ég var kominn inn í lögreglubílinn var hinn öllu formlegri, sýndi mér mælingu, las upp spurningar, rétti mér skýrslu og útskýrði. Ég var bara kammó og gekkst við öllu saman. Og svo var það búið.

Og þá vill maður þegar formsatriðin eru yfirstaðin auðvitað alltaf fullvissa alla um að maður sé vel upp alinn og siðmenntaður, enda úr sama héraði eða því sem næst. No hard feelings, svo maður efnir til kurteislegs spjalls. “Eruð þið annars báðir úr Borgarnesi,” spurði ég. “Jú, jú,” sagði sá í bílstjórasætinu. Og hinn bætti við: “Er Margrét í Dalsmynni ekki amma þín?”

Ég stórefast um að hann hafi e-n tímann tekið hana fyrir of hraðan akstur. En kannski einhvern tímann þegar hún ferðaðist á puttanum. :)

Að reka flóttann?

Það er ekki annað hægt en að glotta í kampinn yfir síendurteknu hlutskipti Óskars Magnússonar. Kolkrabbinn hlýtur að fara að hugsa sig tvisvar um áður en úthlutar honum nýrri stjórnunarstöðu, sjálfsagt má þá treysta því að innan tíðar verði fyrirtækið komið undir Baugsveldið. Skyldu þeir gera´nn að Seðlabankastjóra næst?

Það er þetta með tannkremið

“Vegna eðlis þessarar fréttar er ekki boðið upp á að lesendur geti lýst skoðunum sínum á henni.”

Ákkúrat. Tannkrem er alvörumál og ekki upp á það bjóðandi að almennir lesendur geti tjáð sig um alvörumál af þessu tagi.”

Tíðindi frá SUS þingi

Eftir því sem ég kemst ná brá aldeilis til tíðinda á SUS þingi fyrir austan: Gorbachev var kosinn formaður en Garry Kasparov 1. varaformaður.

Heimildarmaðurinn kýs nafnleysi, en hann er mjög áreiðanlegur!

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...