Archive for November, 2007

Hinsegin Andarungi

Mér skilst að nýlega hafi orðið eigendaskipti á Ljóta Andarunganum á lækjargötu, og að nýir eigendur ætli að gera  hann að “hinsegin” stað. Þá vantar borgina aftur jazz stað - hann var í þann veginn að taka við af Rósenberg sem ´gætis tónlistarstaður.

Fíkniefnaneyslan í MH

Litlasys kom áðan með eintak af skólablaði Menntaskólans í Hamrahlíð, Beneventum,  sem er víst að koma út í dag. Meðal efnis er könnun sem send var í pósti á alla eða flesta nemendur skólans. Það er sláandi að sjá að næstum helmingur fjórða árs nema segist hafa neytt fíkniefna.

Að vísu er spurningin almenn, en fyrr í könnuninni er spurt um áfengisneyslu, svo að sjálfsagt á svarið einkum við ólögleg fíkniefni, en svona skiptust svörin á árgangana:

1. ár: Já, 8,4 %, Nei 91,6%
2. ár: Já 16,9%, Nei 83,1%
3. ár: Já 33,1%, Nei 66,9%
4. ár: Já 46,6%, Nei  52,7% (auðir 0,7%)

Og miðað við hvernig vöxturinn er milli ára er ekki ólíklegt að prósent þeirra sem hafa prófað verði komin yfir 50% þegar skólaárið er liðið. Síðan er nottla spurning með þetta hvort fólk svarar af heilindum. …

Eru annars til tölur til samanburðar fyrir aldurshópinn almennt?

Óvænt músíkuppgötvun.

Magnað. Fyrir tilviljun upp úr einhverju grúski sló ég inn Ben Gibbard (Postal Service, Death Cab for Cutie ofl.) á radioblogclub og fann hans útgáfu af Joga með Björk.

Ég dýrka eiginlega orðið allt sem þessi náungi gerir - og það spillir ekki fyrir að hann er glettilega líkur félaga Hauki. ;)

Radiohead á næstu Hróarskeldu

Hróarskelduhátíðin gerir kunnugt í dag að Radiohead muni spila á næstu Hróarskelduhátíð - sjá hér.

Sjálfsagt er það kynnt núna þar sem miðasala hefst þann 1. desember. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig miðasalan verður á þessa hátíð eftir slagveðrið í sumar. :)

Frétt dagsins: Aðgerðir gegn skráaskiptum

… í gær er annars eins og stundum áður á Baggalúti.

Fjör fyrir úngpólitíkusana

Það hlýtur aldeilis að verða fjör hjá úngpólitíkusunum þegar þessi lög hafa náð fram að ganga. Sérstaklega þeim sem tveir þingmenn skipta á milli sín. Rétti upp hönd sem heldur að það fyrirkomulag muni endast lengi en aldrei verði einn assistant á mann.

Karlmennska dagsins

Þetta eru auðvitað ódauðleg ummæli:

Það er ekki vegna þess að við séum eitthvað hræddir við SMÁÍS heldur vegna þess að vesenið er bara svo mikið í kringum þetta. Við ætlum að gefa lénið og þá munum við ekki lengur stjórna síðunni. Hvenær þetta gerist veit ég ekki með vissu.

Átakanlegt að horfa upp á

Já, það er átakanlegt að horfa upp á þetta skot, þarna í blálokin.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...