Archive for December, 2007

Ummæli dagsins

Björn Bjarnason:

Ég er bara vanhæfur þegar á að ráða Þorstein. Ekki þegar á ekki að ráða hann.

Reyndar sagði hann þetta ekki. Eða í það minnsta hvergi mér vitanlega. …

Hinar umsóknirnar

Jújú, Þorsteinn hafði svosem verið að sækja um embætti áður og ekki fengið. En Sjálfstæðisflokkurin hvílir á kristnum grunni og fer auðvitað ekki að hafna syni Davíðs þrisvar sinnum. …

Hætt á Vefþjóðviljanum?

Svo Þorsteinn Davíðsson er orðinn dómari. Skyldi hann þá fara að hætta skrifa reglulega pistla á Vefþjóðviljann?

Örnu Aspar málið - hvernig fór það aftur

Nú er ég að reyna að rifja upp hvernig það aftur fór með mál Örnu Aspar Magnúsardóttir, sem var handtekin í Ísrael og sett í nokkuð harðar yfirheyrslur hjá Ísraelsku leyniþjónustunni. Það mun hafa verið sumarið 2005, og Davíð Oddsson var utanríkisráðherra. Hvernig tók utanríkisráðuneytið á því máli?

Uppgjöfin hjá Birtíngsmönnum.

Ef ég man rétt á Sigurjón nokkur prósent í DV. Hvað verður um þau í þessum hrókeringum?.

Það er annars frekar fyndið hvað þessar æfingar allar hafa tekið langan tíma. Ég held það séu liðnir margir mánuðir síðan eigendurnir ákváðu að þeir vildu fá Reyni Traustason sem ritstjóra DV, en líklega er það fyrst núna sem hann nær fullum yfirráðum yfir blaðinu. Fyrst meðritstjóri, síðan aðalritstjóri e-s konar og loksins ritstjóri núna. Var það annars ekki á DV sem einhver hafði fyrir nokkrum árum starfstitilinn aðalritstjóri?

Sigurjón var auk eignarhlutarins með mjög langan starfssamning og langan uppsagnarfrest. Skyldi hann hafa sambærileg kjör hjá Mannlífi.

Ritstjórastaða Mannlífs er annars að verulegu leyti blaðamennskustarf. Þarna hafa oftast verið ritstjóri og aðstoðarritstjóri í fullu starfi, og síðan lausablaðamenn. Sigurjón hefur held ég ekki mikið fengist við blaðamennsku í ritstjórnarstörfum síðustu ára.

Það er líklegt að þessum mannabreytingum fylgi fleiri stefnubreytingar en uppgjöfin á Ísafold og úr þeim má lesa ákveðna uppgjöf hjá stjórnendunum: Ísafold náði ekki að festa sig í sessi. Í rauninni er einfaldlega verið að leggja hana niður. DV vefurinn virðist þrátt fyrir ágæta lesningu ekki komist inn á auglýsingamarkað og því enginn rekstrargrundvöllur, og einhver breyting framundan á honum. DV í ritstjórn Sigurjóns, sem mikið var látið með, hefur ekki náð að festa sig í sessi sem dagblað, og nú á að reyna með nýjum skipstjóra. Ef til vill má vænta breytinga þar líka en maður veltir því fyrir sér hvað gerist fyrr: Að DV leggi upp laupana eða það fari aftur í lesmælingu. Það hlýtur að gera annað hvort á endanum.

Allt hafa þetta verið dýrar tilraunir. Manni finnst ekki líklegt að það komi fleiri dýr tilraunaverkefni í fjölmiðlun úr þessari átt. Sagan Öll og Golfblaðið virðast þó í það minnsta halda áfram, og kannski þeir bæti ef til við tímaritum til viðbótar í framtíðinni. En við eigendaskiptin um árið ætluðu menn sér stóra hluti í íslenskum fjölmiðlum, settu í þær töluvert fé en svo hafa fjárfestingarnar ekki staðið undir væntingum.

Uppgjör um hvað?

Leit á nýjasta Mannlíf á kaffihúsi í hádeginu. Heldur fannst mér nú lítil innistæða fyrir fullyrðingum sem koma fram í kynningu á því, um að uppgjör sé framundan hjá Íhaldinu.

Björn hefur þegar neitað því hann ætli að hætta á næsta ári. Hvað varðar erfiða tíma framundan stendur mest lítið um það hvað átt sé við. Það eru engar nýjar fréttir í því að hundur sé í Davíðsmönnum og ef til vill Davíði sjálfum - en um hvað eru þá væntanleg átök? Hvort Björn fær sendiherrastól eða ekki? Verður gerð atlaga að formanninum á næsta landsfundi. Á að reyna að plotta Samfylkinguna úr ríkisstjórn líkt og Björn Inga?

Það held ég varla. Staðan hjá Íhaldinu er frekar einföld, og búin að vera um hríð: Þetta er tiltölulega stabílt, en þeir sem höfðu völd í skugga Davíðs eru fúlir yfir að hafa þau ekki lengur. Að öðru leyti er ekki mikið að frétta úr þeirri átt.

Leynistríð Davíðs, stendur á forsíðu blaðsins, en það er litlu bætt við það í greininni sjálfri. Reyndar er því slengt fram að Davíð hafi meiri áhrif á forystu Framsóknarflokksins en Sjálfstæðisflokksins, að hann og Geir ræðist ekkert við, og að hann sé í góðu símasambandi við Svavar Gestsson í Kaupmannahöfn - og að þeir hefðu verið búnir að plana saman næstu ríkisstjórn þarna í vor. Já og að Davíð sé að semja ræður Guðna um efnahagsmál. Hljómar sennilegt …

Lífeyrissjóðirnir og öryrkjarnir

Loksins sér maður e-ð sem er sæmilega upplýsandi skrifað um lífeyrissjóðina og Öryrkjana.

Hugsjónamaðurinn á Torrent.is

Las nýverið viðtal við forsprakka torrent.is í The Reykjavík Grapevine, og ég get nú ekki sagt það hafi komið vel út fyrir hann. Til að mynda sagðist hann greiða sjálfum sér hátt í 400.000 krónur á mánuði í laun, og hafði eftir endurskoðandanum sínum að hann yrði að gera það. Það er nokkuð langsótt kenning, en eftir því sem ég kemst hefur lítið eða ekkert selst af auglýsingum á vefinn. Hins vegar býðst notendum að styrkja hann, og þá er hægt að kaupa deilimagn (Ef þú hefur sumsé ekki deilt jafnmiklu og þú hefur sótt, nýturðu minni þjónustu af vefnum, en getur bætt það upp með því að borga).

Það er vissulega rétt að Skatturinn gefur út viðmið um launagreiðslur til stjórnenda í fyrirtækjum. Ef menn eru að borga sjálfum sér arð, sem er skattalega hagkvæmari en laun, ætlast skatturinn til þess að þú sért búinn að borga þér laun upp að viðmiðinu. En auðvitað getur maður borgað sér minna. Sumsé fyrirsláttur.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...