Archive for January, 2008
Nyhedsavisen og Hollywood …
Sú var tíðin að Halldór Laxness var að þreifa fyrir sér í Hollywood, með klénum árangri. Hætti því og reyndi í staðinn að kenna Íslendingum að tannbursta sig.
Það er greinilegt að fleiri eru orðnir sigldir menn: Gunnar Smári snýr nú aftur á ritvöllinn og virðist hafa kokkað upp drög að sinni eigin Alþýðubók í útlegðinni.
Til minningar
Þetta er nottla frekar illkvittið. En minning fyrir það.
Þessum …
var líka misboðið út af skrílslátunum í Ráðhúsinu

Aðgerða þörf?
Þetta gengur nottla ekki lengur að lögfræðingastéttin vaði svona uppi: Nú þurfa allir sannir og vandaðir Sjálfstæðismenn að taka sig saman og stöðva þetta augljósa samsæri dómara og lögfræðinga gegn trausti almennings á stéttinni.
Fyrir slysni
… held ég að ég hafi eytt tveimur kommentum sem ég ætlaði að samþykkja. Mannleg mistök. Endilega setjið þau inn aftur sem fyrst.
Óvænt ánægja?
Villi kann þetta sko:
Aðspurður hvort Sjálfstæðismenn hafi ekki þurft að gefa heldur mikið eftir við gerð samningsins, en bent hefur verið á að baráttumál frjálslyndra fái þar mikið vægi, segir Vilhjálmur: „Það kom bara í ljós að okkar áherslur og áherslur Ólafs eru einfaldlega mjög svipaðar.”
Undir lok sama viðtals:
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins stendur sameinaður að þeirri ákvörðun að mynda meirihluta með Ólafi F. Magnússyni. „Við stöndum algjörlega hundrað prósent þétt saman. Allar sögur um ágreining í okkar flokki eru bara hugarburður einhverra manna úti í bæ,” segir Vilhálmur og bætir við: „Við vinnum málin sem einn maður eins og við gerðum þegar við stýrðum borginni.”
Stórfrétt af NATO?
Er meiriháttar stefnubreyting framundan hjá NATO? Maður myndi halda að einhver ætti að spyrja Ingibjörgu út í þetta:
The west must be ready to resort to a pre-emptive nuclear attack to try to halt the “imminent” spread of nuclear and other weapons of mass destruction, according to a radical manifesto for a new Nato by five of the west’s most senior military officers and strategists.
