Archive for February, 2008

Óþarfa nafngreining í DV.is

DV tekur nú upp á því að nafngreina einn þremenninganna sem fíkniefni fundust hjá í litlu magni á Bifröst, undir þeim formerkjum að hann sé formaður sjálfstæðisflokksfélags innan skólans. Er það ekki fullmikið af hinu góða? Mynd af honum er birt með fréttinni, merkt vef ungra sjálfstæðismanna í Keflavík. Er ekki óhætt að vera fullviss um það að hún sé birt í leyfisleysi?

Af fjölmiðlum skilst mér að magnið sem tekið var hafi verið mjög lítið, og að öllum líkindum til einkaneyslu. Þannig mál enda fyrir dómstólum með sektargreiðslu, þar sem lögreglan hefur fyrir því að kæra þau, en það er allur gangur á því skilst mér. Eftirtekja húsleitanna var því nokkuð rýr, og sérsveitin varla með erindi sem erfiði.

Ég get ekki séð að formennska í innanskólaklúbb flokksbundinna sé lykilstaða í flokknum - félagið hefur að öllum líkindum hvorki fengið fjárstyrk frá flokknum til neins. né haft fulltrúa á landsþingi flokksins eða SUS.

Þarna er sumsé á ferðinni maður sem gæti verið e-ð númer í flokknum, en er það líklega ekki, sem tengist einhverju sem löggan hélt að væri stórt en er það líklega ekki - amk, fannst ekkert í húsleitinni sem benti til þess. Er það allt sem þarf nú í seinni tíð fyrir nafngreiningu í þessu blessaða fjölmiðli, sem í seinni tíð er farinn að minna sífellt meira á daga Mikaels Torfasonar.

Viðbót kl. 17:07:
Ég hringdi í formann ungra í Keflavík, sem sér jafnframt um vefinn homer.is hvaðan myndin er tekin, og hann hafði ekki gefið leyfi fyrir því að myndin væri notuð. Í framhaldinu hlýtur maður að spurja sig hvaða stefnu DV (fjölmiðillinn sem þekkir sæmdina) hefur þegar kemur að því að nota myndir af netinu.

Skilaboð til Ármanns

Myndin sem þig rámar í hlýtur að hafa heitið Skilaboð til Söndru.

Ég þykist í það minnsta kannast við sömu ummæli upp úr bók með því nafni e. Jökul Jakobsson. Svo það hlýtur einhver að hafa gert eftir henni kvikmynd og notast þar við þessi ummæli, svo frumleg sem þau eru.

Áskorun til netverja: Illmælgi takk

Ég, undirritaður, Guðmundur Rúnar Svansson skora hérmeð á bloggverja allra landa að koma með sem allrasvæsnust stóryrði í minn garð í kommentakerfinu eða á bloggsíðum (með link takk).

Félagi Már uppnefndi mig eins og allir muna á sínum tíma Spindoktor djöfulsins, og í staðinn fyrir að kæra hann eins og hefði verið eðlilegast (enda var ég að verja vondan málstað í það skiptið) ákvað ég að blogga framvegis undir þessu heiti.

Ég er orðinn sumsé orðinn leiður á hausnum “ekki nokkurs spindoktor” og vonast til að fá út úr þessu betri haus. Þetta eru auðvitað síðustu forvöð fyrir allrahanda illþýði í netheimum áður en hæstiréttur staðfestir dóminn yfir Gauki, en að sjálfsögðu mun ég að honum gegnum kæra allt níð í minn garð.

Fagnaðarefni?

Það hlýtur að vera sérstakt fagnaðarefni fyrir alla áhugamenn um uppbyggilega þjóðfélagsumræðu að þessi maður skuli hafa unnið meiðyrðamálið sitt í gær. (Þakka ásgeiri fyrir að geyma mynd af þessu)

spurning-dagsins.jpg

Að útmá ummæli

Það er forvitnilegt ákvæði í dómsorðinu í máli Hr. Impregilo vs. Gauki, um að Gauki beri að útmá ummælin af bloggi sínu.

Er þetta nýtt skref eða er þegar komin á dómvenja fyrir úrræðum af þessu tagi?

Ég get ekki séð af hverju það dugar ekki að láta dómsorðið og ómerkinguna koma fram í sömu færslu með skýrum hætti, og hugsa það væri nú almennt heppilegra en að ummælin eigi að þurkast út eins og þau hafi aldrei fallið.

Það er furðu algengur plagsiður á netinu að breyta einhverju eftir birtingu, og eyða mistökum frekar en að leiðrétta þau með viðbót, og láta þannig eins og ekkert hafi gerst. Það er kannski angi af sama meiði og að eyða ummælum úr kommentakerfum sem menn vilja síður svara.

Gamlar bloggfærslur eru nú ekki mikið lesnar, ekki frekar en gömul dagblöð. Á þá líka að klippa gamlar greinar út úr blöðum á söfnum falli dómar vegna ummæla í þeim?

Ekki ætla ég að fara að verja ummæli Gauks, en ég skil nú samt ekki í því Ómari að vera að kæra þetta. Ef hann er jafngóður almannatengill og af er látið hlýtur hann átta sig á því að það lítur nú ekki beinlínis vel út fyrir hann. Maður hefur séð margt verra en þetta sniðgengið í gegnum tíðina.

Og nú man ég ekki hvernig málið nákvæmlega lá og er að reyna að rifja þetta upp - en var það ekki eitthvað á þá leið að fjöldi starfsmanna Impregilo var að fá matareitrun á vinnustað, og hann lét hafa eftir sér í fjölmiðlum einhver ummæli í þá veru að menn þvæðu sér ekki um hendurnar?

Skipaviðskipti

Nú veit ég ekki mikið um skipaviðskipti frekar en önnur milliríkjaviðskipti. En mér þætti gaman að vita hversu auðvelt það er að koma skipi í verð á alþjóðlegum markaði á einungis hálfum mánuði, það er, ef við gefum okkur að Sæferðir hafi ekki verið komnir með kaupanda áður en þeir keyptu skipið.

Uppreist Þjóðhagsstofnunar

Ég get ekki betur séð en að þingmennirnir tveir, annar þeirra fyrrverandi aðstoðarmaður Stóra-D, séu að kalla eftir endurreisn Þjóðhagsstofnunar, sem kallinn ákvað á sínum tíma í beinni útsendingu að leggja niður vegna óánægju með veðurspárnar. Í sömu grein kalla þeir eftir því að gripið verði frammí fyrir honum við vaxtaákvarðanirnar.

Ánægður með Björn

Ég er mjög ánægður með Björn.is í dag. Það gerist nú ekki á hverjum degi. Og síðan er ég líka ánægður með gott gengi Eyjunnar í nýjustu tölum modernusar.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...