Archive for March, 2008

Eftirtektarverðir linkar

Bandaríski Seðlabankinn skoðar nú reynslu frænda okkar í Skandinavíu af því að þjóðnýta banka í kreppu.
Freedomfries eru aftur byrjaðar að rúlla.
Slate hefur farið af stað með efnisliðinn The Hillary Deathwatch [1|2|3].
Gallup: Obama kominn með tíu prósenta forskot á Hillary á landsvísu.
Editor & Publisher segja auglýsingasamdráttinn í bandarískum dagblöðum vera þann mesta í hálfa öld. Netauglýsingasala virðist líka vera að dragast saman.
Framboðmaskínu Clinton gengur illa að greiða reikningana. Meðal þess sem ekki er greitt eru heilbrigðistryggingagjöld launaðra starfsmanna framboðsins.
Rapparinn 50 Cent hefur dregið fyrri stuðningsyfirlýsingu sína við Clinton til baka og styður nú Obama. (Tekið skal fram að hann er ekki “superdelegate”.)
Gorbachev afneitar kristni af gefnu tilefni.

Clinton um Serbíuferðina

Marsverðbólgan: Hvað olli

Hér er fréttin á vef hagstofunnar um verðbólguna í mars. Verðbólga í mars einum (ekki á ársgrundvelli) er 1,47%, og 0,25% af því er vegna hækkunar á bensíni og olíum. Hækkun á eldsneyti er því meira en 1/6 af verðbólgunni í þessum mánuði.

Sé stjórnvöldum alvara í því að halda verðbólgunni niðri er engin ein aðgerð sem myndi gera meira til að draga úr verðbólgu en að lækka bensínskattana.

Sauðfjárbændum slátrað?

Ég hef ekki trú á því að Ingibjörg Sólrún fái að óbreyttu samþykkt hjá samstarfsflokknum að lækka tolla innflutt kjöt sem hefur “óbein áhrif” á íslenskan landbúnað.

Áhrifin eru nefnilega töluvert beinni en Ingibjörg virðist gera sér grein fyrir því að að verð á lamba- og nautakjöti fylgir í rauninni öðru kjötverði að verulegu leyti.

Kúabændur hafa sínar tekjur fyrst og fremst af mjólkursölu og lítrahækkunin hjá þeim bjargar þeim líklega flestum (en þó ekki öllum). Sauðfjárbændur hafa enga slíka réttingu fengið, enda engar tekjur á leið kassann hjá þeim fyrr en að lokinni næstu sláturtíð í haust. Og það liggur ljóst fyrir að þar verður ekki um neina tekjuaukningu að ræða ef ríkisstjórnin ætlar sér að lækka matvöruverð með tollalækkunum - þvert á móti.

Tek þó fram að ég er ekki andvígur lægra matvöruverði.

En við skulum hafa það í huga að af öllum þeim einstaklingum í þjóðfélaginu sem annars hafa óskerta starfsorku eru líklega engir sem hafa verra peningalega en margir smæstu sauðfjárbændanna. Svo það skýtur svolítið skökku við ef formaður þess flokks sem alltaf talar um jöfnuð ætlar að setja á oddinn í kreppubyrjun aðgerðir sem myndu fyrst og fremst bitna á þeim.

Ekki síst í ljósi þess að það eru hækkanir á innfluttum vörum sem munu valda mestu um hækkun á neysluverðsvísitölunni og setja samningana í uppnám. Blasir það ekki við að lægri bensínskattar ættu að vera fyrsta mál að dagskrá - eða hvað er ríkið beinlínis að græða mikið þar þessa dagana?

Vestmannaeyjar rokka

Þetta var hin besta helgi sem maður upplifði þar. En er aftur kominn heim. :)

Við hefðum sýknað ef …

Eins og við mátti búist fóru ýmsar misgáfulegar umræður af stað þegar lögbanninu á torrent.is var vísað frá. Sem betur mátti líka finna góð innlegg, eins og til dæmis hjá Stefáni Boga.

Dómurinn tekur … ekki endanlega afstöðu heldur vísar málinu frá vegna vanreifunar. Lögmaður Istorrent vísaði nefnilega ekki til laga 30/2002 nema í framhjáhlaupi við munnlegan flutning málsins og gerði ekki neina sérstaka grein fyrir því af hverju sýkna ætti stefnda á grundvelli þeirra laga. Dómstólar eiga ekki að grafa upp lögfræðilegar röksemdir fyrir aðila, heldur ber þeim að koma sínum sjónarmiðum að sjálfir. Þess vegna sitjum við uppi með það … að dómurinn segir nánast berum orðum ,,Við hefðum sýknað ef þú hefðir bara rökstutt mál þitt rétt.”

(Feitletruninni er einkum beint til Andrésar.)

Frumkvöðull dagsins

… er þessi ungi maður, Efraim Diveroli. Hann er aðeins 22 ára gamall og er í fréttum í BNA þar sem þess er óskað að hann beri vitni fyrir þingnefnd um það hvernig hann fékk 300 milljón dala samning við ríkið fyrir skömmu um um að birgja afganska herinn með skotfærum. Pentagon fullyrðir að fyrirtækið hans hafi verið með bestu tilboðin.

Þess er getið í fréttum af þessum framtakssama unga manni að stjórnarformaðurinn í fyrirtækinu hans er lærður nuddari. Þeir fengu fyrsta samninginn í janúar.

Ljósmyndin er “mugshot”, sennilega síðan hann var handtekinn fyrir að vera með fölsuð skilríki.

Og var þetta gæðavara?

Sennilega ekki:

Since then, the company has provided ammunition that is more than 40 years old and in decomposing packaging, according to an examination of the munitions by The New York Times and interviews with American and Afghan officials. Much of the ammunition comes from the aging stockpiles of the old Communist bloc, including stockpiles that the State Department and NATO have determined to be unreliable and obsolete, and have spent millions of dollars to have destroyed.

Einnig virðist honum á þessum stutta tíma tekist hafa tekist að eiga viðskipti við menn á svörtum lista yfir grunaða vopnasmyglara, og er sennilega búinn að brjóta bandarísk lög með því að kaupa skotfæri framleidd í Kína.

Altso hress gæi. Byrjaði i þessum bransa 2004 - sennilega 18 ára.

Ekkifrétt dagsins: Frumheimildin Þorsteinn

Rétt eins og það eru varla fréttir lengur að Styrmir og Co. hafi haft fyrirframvitneskju um húsleitina hjá Baugi þá er það eiginlega heldur enginn frétt að Karl Th. fullyrði að Þorsteinn sé heimildin fyrir því að hann hafi heyrt þetta umtalaða símtal.

Varla sá Kristinn hann. Og Styrmir hefði varla gloprað þessu út úr sér í Staksteinunum. Og það liggur víst fyrir að ekki hefur þetta verið grafið upp með síðbúnum hætti úr tölvupóstunum sem Fréttablaðið geymdi.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...