Archive for April, 2008
Gengismunur
Ætli sveiflur í gengi krónunnar gagnvart Evru geti útskýrt það sem á milli ber hér?
Ólöglegu kynningarnar
Valdimar birtir myndir af kynningunum sem Ölgerðin var dæmd fyrir - sem er meira en flestir fjölmiðlarnir held ég.
Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart ef greidd kynning í blaði er ólögleg, enda er kynningin ekkert annað en auglýsing. En hvað ef ekki er greitt fyrir kynninguna?
Ímyndum okkur að Ölgerðin og 365 hefðu gert með sér stóran auglýsingasamning. Allar auglýsingarnar væru löglegar. En í einhverjir miðlar 365 tækju það upp, að því er virtist hjá sjálfum sér, að birta nákvæmlega sömu kynningar án þess að reikningur væri gefinn út sérstaklega fyrir þeim. Og ekkert væri kveðið á um þær í samningum milli fyrirtækjanna.
Væru þessar birtingar ekki þar með orðnar löglegar? Ég myndi halda það.
Þetta er auðvitað enn eitt dæmið um þær ógöngur sem áfengisauglýsingabannið leiðir sjálfkrafa út í. Væri ekki nær að breyta lögunum og gera einhvers konar leikreglur um það hvernig má auglýsa og hvernig ekki. Það hlýtur að mega ná fram markmiðum þessara laga (hver sem þau nú eru) án þess að reyna að halda uppi auglýsingabanni sem er lítið mál að komast fram hjá.
Einhver blaðamaðurinn ætti reyndar að spurjast fyrir um það hversu mörg mál af þessu tagi bíða afgreiðslu hjá dómstólum. Einhver sagði mér það væru nokkur hundruð - það virðist vera búið til prófmál úr hverju einasta tilbrigði við birtingu áfengisauglýsinga af einhverju tagi. Þau kosta þessu gráu svæði. …
Háð Láru
Ég hef enga trú á því að Lára Ómarsdóttir hafi ætlað sér að fabríkera uppþot eða auka á þau til að fá stærri frétt úr þessu.
En ég heyri nú ekki beint háðið í röddinni á þessari upptöku.
Er það hugsanlegt að eggjakastið hafi verið afstaðið eða legið niðri í þessari andrá, en hún hafi viljað sýna áhorfendum í mynd þá stemmningu sem var þarna andartaki fyrr? “Við rétt misstum af eggjakastinu. Spurning hvort við ættum að biðja einhvern að kasta þeim síðustu eftir að við förum í beina?”
Mér finnst ekkert ótrúlegt að blaðamaður freistist til að vilja endurskapa aðstæður sem hann missti af að ná á mynd. Ímynda mér að það sé jafnvel endrum og eins gert, sem er í góðu lagi við “normal” aðstæður. En það á kannski ekki við í óeirðum af þessu tagi, ekki frekar en ef um væri að ræða heimilisofbeldi eða slagsmál í miðbæ Reykjavíkur.
Ættarmont
Annars má ég eiginlega til með að monta mig af Atla bróðir. Líklega af því ég hef ekki mikið vit á bílum sjálfur. …

