Tindersticks myndbandaruna
Tindersticks eru á leið til landsins í september - hér er myndbandaruna sem ég tók saman með þeim á RadioNinja. Mæli enn og aftur með þessari síðu.
| Íhaldsbyltingin |
| Himinblá og hljóðlát |
Tindersticks eru á leið til landsins í september - hér er myndbandaruna sem ég tók saman með þeim á RadioNinja. Mæli enn og aftur með þessari síðu.
Fór á Indy í gærkvöld. Ágætis mynd. En það voru mér sár og mikil persónuleg vonbrigði að það skyldi ekki vera eins og eitt hasaratriði með flugvélum í henni, úr því þeim tókst að setja öll möguleg önnur stef af hasaratriðum í hana. Og já, það er í alvörunni auðveldara að telja upp það sem ekki var, frekar en það sem var. Ef maður færi bara á eina Hollywoodmynd á ári ætti það einmitt að vera mynd eins og Indy4, því þar fær maður nánast allan skammtinn. :)
Það kemur lítið fram á þessum vef um hver stendur að honum. En samkvæmt leitarvél Isnic er Jón Gerald Sullenberger skráður eigandi lénsins baugsmalid.is. Gamanaðissu …
(Uppfært: Ok, þetta var ekki alveg rétt hjá mér, sbr komment. Ég hefði sjálfsagt átt að gefa mér tíma til að lesa dýrið betur. …)
Og það er hellingz að frétta.
Tindersticks eru á leið til landsins. (Sá þá í Köben í útskriftarferð 2003. Spurning með Reunion?)
TPM hefur tekið saman eftirlætismóment úr fréttafulltrúaferli Scott McClellan (video).
TPM reynir líka að stinga út leiðarvísi að sigri Obama í forsetakosningunum
Á Kistunni hefur Haukur Már Helgason þýtt grein e. Alain Badiou sem er einn helsti fílósóf franskra kommúnista. “Tilgátan um kommúnisma”. Hún er svolítið tilvistarkreppuleg og leggur út af sigri Sarkozy.
National Review ritdæmir McClellan: “McClellan tries to walk a fine line between echoing Bush haters and saying utterly irresponsible things.”
Webbinn er fyndinn, eins og alltaf: “Það er hábölvað að fá engan fyrirvara að jarðskjálfta eins og þeim sem kom í gær. Hann kom fólki gersamlega í opna skjöldu. Þetta sýnir betur en nokkuð annað, nauðsyn þess að hlera Ragnar, dag og nótt.”
Deiglan.com, Pawel: Kalda stríðið fyrir hálfvita.
Á þessu ári, fram til apríl, fóru 3,5 milljónir dollara í netauglýsingar hjá framboði Obama, og þar af 2,8 til google. Það eru ágætis yfirburðir. …
Ég var sumsé ásamt karli föður mínum á miðhálendi Snæfellsness að lappa upp á girðingu þegar kvikindið fór af stað. Sennilega vorum við inni við Urðardal um þetta leyti, í um 500 m hæð yfir sjávarmáli. Og fundum ekki neitt - þar með er búið að láta vita af því. (Já, og mæðuveikigirðingin varð ekki fyrir tjóni af skjálftanum. ;)
… og með Weezer
Eftir að hafa lesið þetta gróf ég upp yfirlýsinguna sem Þorsteinn Pálsson birti á sínum tíma eftir að Hallgrímur Helgason réðst á hann í Frbl. Þegar Jóhann Hauksson hafði nýlega sagt upp. Læt hana fljóta með hér á eftir, ef einhverjir fleiri skyldu vera að reyna að rifja þetta upp. Ekki veit ég hvað er rétt í þessu máli, en það er amk þegar búið að neita því sem Jóhann heldur fram, að skrif hans um hleranirnar hafi ráðið úrslitum:
Yfirlýsing Þorsteins Pálssonar í heild sinni:
Vegna yfirlýsinga Jóhanns Haukssonar blaðamanns í Morgunblaðinu og ljósvakamiðlum síðustu daga vil ég taka þetta fram: Allar ásakanir um að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafi með beinum eða óbeinum hætti haft áhrif á innri málefni ritstjórnar Fréttablaðsins eru rangar og með öllu tilhæfulausar. Fyrir þeim er ekki svo mikið sem flugufótur.
Það rétta í málinu er þetta:
1. Skömmu eftir að ég kom að Fréttablaðinu í lok febrúar færði fréttaritstjórinn, Sigurjón M. Egilsson, í tal við mig að hann vildi, ásamt ýmsu öðru, koma fram breytingum varðandi stjórnmálafréttaskrif blaðsins sem Jóhann Hauksson hafði með höndum. Ég sagðist vilja meta þau sjálfstætt yfir lengri tíma áður en ég féllist á tillöguna. Þegar kom fram á vor sýndist mér mat fréttaritstjórans vera rétt. Ég taldi hins vegar rétt að verkaskipti að þessu leyti yrðu við lok vorþings við eðlileg kaflaskil í þeim störfum. Það varð niðurstaðan.
2. Fréttaritstjórinn gaf út skriflegar leiðbeiningar 18. apríl sl.um efnistök varðandi einn þeirra þátta sem Jóhann Hauksson annaðist. Þær leiðbeiningar voru að engu hafðar.
3. Fréttaritstjórinn ræddi 11. maí sl. við Björn Þór Sigbjörnsson blaðamann um möguleika á því að hann tæki að sér, þegar þar að kæmi, hluta þeirra verka sem Jóhann Hauksson hafði með höndum. Ljóst má vera að með öllu var útilokað að fréttaritstjórinn hafi á þeim tíma séð fyrir viðbrögð Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra vegna óbirtrar greinar Jóhanns Haukssonar. Sú grein birtist 2.júní.
4. Þriðjudaginn 6. júní sl. gerði ég, ásamt fréttaritstjóranum, Jóhanni Haukssyni grein fyrir áformuðum breytingum. Honum var sagt að þær byggðust á heildarmati á skrifum hans um lengri tíma. Við töldum að í þeim hefði ekki verið gætt þess jafnvægis sem fréttalesendur Fréttablaðsins eiga að geta gert kröfu um. Jóhann Hauksson spurði hvort einhver einstök skrif hans væru tilefni þessa. Hann fékk mjög skýr svör um að svo væri ekki. Hann spurði beint hvort kvörtun Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra frá 2. júní væri ástæða. Hann fékk skýr svör um að svo væri ekki. Það er því algjör uppspuni að gefið hafi verið í skyn að sá tölvupóstur væri ástæða breytinganna. Það hefði enda ekki verið sannleikanum samkvæmt og í fullu ósamræmi við ofangreinda atburðarás.
5. Tölvupóstur Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra barst 2. júní sl. Hann var sendur í samriti til mín og Jóhanns Haukssonar. Ég ræddi það mál ekki við Jóhann og því síður við sendandann.
6. Mér er mætavel ljóst að vegna fyrri starfa minna er auðvelt að sá frækorni tortryggni um hvaðeina sem ég tek mér fyrir hendur. Í þessu tilviki hefur það verið gert á grófan hátt með aðferðum sem ekkert eiga skylt við blaðamennsku.
7. Vegna greinar Hallgríms Helgasonar rithöfundar í Fréttablaðinu í gær um þetta mál get ég upplýst að fréttaritstjóri Fréttablaðsins greindi honum frá staðreyndum þessa máls áður en greinin fór í birtingu. Hallgrímur Helgason rithöfundur ver svo heiður sinn sjálfur.
12. júní 2006
Þorsteinn Pálsson
…..