Archive for July, 2008

Djúpþenkjandi DV-hagfræði

Ég má eiginlega til með að birta þennan gullmola vegna þess hvað hann er lýsandi fyrir hve hagfræðilega djúpþenkjandi sandkornsritarar DV eru þegar svo ber við. Sjá hér.

Varnarlaus Geir
Enginn fæst lengur til að verja aðgerðaleysi Geirs H. Haarde í efnahagsmálum og því er spáð að fall hans verði að veruleika fyrr en síðar.

Það er mat einhverra að eina ráðið hjá Geir til að halda anditinu sé að grípa til afgerandi aðgerða hið fyrsta og endurvekja trú á íslenska efnahagskerfið. Þá þarf hann að hreinsa út andstæðinga sína á borð við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Davíð Oddsson, seðlabankastjóra og aðalhöfund íslensku kreppunnar.

Það er nefnilega það - við þurfum að hreinsa út BB og DO til að endurvekja trú á efnahagskerfið …

Vel orðað svar

Bandarískur bókasafnsfræðingur fékk kvörtun frá sanntrúaðri móðir vegna barnabókar sem fjallar um hjónaband tveggja homma. Hann skrifaði vandað svar og birtir það hér á blogginu sínu. Góð lesning. Svona á að gera þetta. :)

You feel that a book about gay marriage is inappropriate for young children. But another book in our collection, “Daddy’s Roommate,” was requested by a mother whose husband left her, and their young son, for another man. She was looking for a way to begin talking about this with son. Another book, “Alfie’s Home,” was purchased at the request of another mother looking for a way to talk about the suspected homosexuality of her young son from a Christian perspective. There are gay parents in Douglas County, right now, who also pay taxes, and also look for materials to support their views. We don’t have very many books on this topic, but we do have a handful.

In short, most of the books we have are designed not to interfere with parents’ notions of how to raise their children, but to support them. But not every parent is looking for the same thing.

Hvað með Þjóðleikhúsið

Hefur einhver maður haldið því fram nýlega að Þjóðleikhúsið sé af einhverjum ástæðum sérstakt lýti á 19. aldar götumyndinni á Hverfisgötu. Og það sama má segja um þjóðmenningarhúsið.

Ég er hlynntur því að menn reyni að hafa svipaðan heildarsvip á miðbænum og nú er, en maður kann Sjálfstæðisflokknum í borginni litlar þakkir fyrir að hafa leitt öfgamenn í þessum efnum til valda í borginni.

Hvernig er það, var Björgólfur annars ekki búinn að láta gera einhverjar teikningar að verslunarmiðstöð í þessum reit sem Engilbert keypti fyrir hann í miðbænum? Sem Listaháskólahúsið er hluti Gæti legið einhver fiskur undir steini þar?

Á Jens Guð DV.is?

Nei, líklega ekki. En það stendur núorðið alltaf á blogggáttinni við bloggið hans. “Jens Guð á dv.is”.

Svo skoðaði ég betur og sá að það stendur eitthvað svipað við fleiri sem munu vera sérlegir DV-bloggarar. En Jens er líklega sá eini sem ég hef lesið hingað til.

Mér finnst þetta vera svona semi hallærislegt. Að DV.is sé að stæla bloggarakonseptið á Eyjunni, að þeir skuli ekki gera það betur og að þeir skuli láta bloggarana sína klína einhverju svona smáprómói á Blogggáttina, svo að allir viti nú að þeir bloggi á DV.is

Hverju hreytti Ólafur í Helga?

Viðtal Helga Seljan við Ólaf F í kvöld var kostulegt, svo ekki sé meira sagt, og verður sjálfsagt mikið skoðað á netinu. Svo það er ekki úr vegi að benda líka á útgöngu Ólafs úr þættinum, á meðan Þórhallur kynnir næsta atriði. Er strax í byrjuninni hér. Hreytir einhverju í Helga, tæmir vatnsglasið sitt í einum teyg og strunsar svo út í beinni.

Hvað skyldi maðurinn eiginlega hafa sagt. ;)

EndurhæWiing

Hér er verið að nota Nintendo Wii leikjatölvuna í endurhæfingu.

Nýja leitarvélin

… er ekki að gera góða hluti fyrir mig. Hún virðist ekki vita að bloggsíðan mín sé til en finnur nokkuð marga sem hafa talað um þennan Svansson á sínum bloggum í gegnum tíðina. Það er ekkert sérstaklega “cuil”, er það nokkuð?

Ef hún verður vinsæl neyðist maður líklega til að tala ótæpilega um sjálfan sig í 3. persónu á þessum vettvangi.

Friðhelgi einkalífs bara fyrir Gyðinga?

Ísraelskt dagblað, Ma’ariv, tók upp á því um daginn að birta einkabréf sem Barack Obama, forsetaframbjóðandi með meiru, hafði skrifað til Guðs og skilið eftir í Grátmúrnum. Einnig setti blaðið ljósmynd af bréfinu á forsíðuna. Sjá hér.

Bréfið sem slíkt er varla bitastætt.

Lord,

Protect my family and me. Forgive me my sins and help me guard against pride and despair. Give me the wisdom to do what is right and just. And make me an instrument of your will.

Eins og við mátti búast eru ekki allir Ísraelar á eitt sáttir við að blaðamenn sitji um bréf af þessu tagi á helgum stað. Og þetta lét talsmaður blaðsins hafa eftir sér í virðulegri fjölmiðil þar í landi.

Barack Obama’s note was approved for publication in the international media even before he put in the Kotel, a short time after he wrote it at the King David Hotel in Jerusalem. In any case, since Obama is not a Jew, publishing the note does not constitute an infringement on his right to privacy.

Þá vitum við það - bara Gyðingar eiga heimtingu á að einkabréf sem þeir kunna að skrifa til Guðs séu ekki birt á forsíðum dagblaða.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...