Archive for September, 2008

Tvífarar

Hefnd Davíðs?

Ég hef löngum haft nokkra samúð með Jóhannesi og fleirum í orrahríðinni, en lítt hrifinn af framgöngu Davíðs og co. En ég kaupi það ekki að þessi þvingaða yfirtaka á Glitni hafi verið hefnd. Að eigendur bankans skuli fallast á þessa afarkosti sýnir hve erfið staðan var orðin. Vægari aðgerð hefði magnað upp spennu og óvissu sem hefði skemmt fyrir Glitni og hinum bönkunum. Í Morgunblaðinu í morgun kemur fram að stjórnendur bankans vonuðust eftir sveigjanleika frá Seðló gagnvart þeim veðum sem þeir buðu móti láninu - hefðu markaðirnir ekki kveikt á því?

Það má vafalítið deila um þetta verðmat. En úr því vandkvæði Glitnis voru orðin of stór biti fyrir Jón Ásgeir, var þá ekki viðbúið að hann myndi missa völdin yfir bankanum með einum eða öðrum hætti?

Guðmundur Magnússon veltir því upp hvort eigendur bankans hafi átt innistæðu fyrir slíku trausti að almenningur ætti að lána þeim þessa peninga. Ég hugsa að það hafi aldrei verið “issue”. Neyðarlán Seðlabankans snúast einfaldlega ekki um að bjarga eigendum banka, hvort sem vandkvæðin eru til skemmri eða lengri tíma. Tilgangurinn er að tryggja stöðugleika og trúverðugleika fjármálakerfisins í heild sinni.

Það er skiljanlegt að Baugsmenn séu ósáttir við niðurstöðuna, enda er hún þeim persónulega dýr. En meðan þeir geta ekki bent á hvaða aðra leið Seðlabankinn hefði geta farið, sem hefði með jafnafgerandi hætti varðveitt fyrrnefndan fjármálastöðugleika er erfitt að trúa því að hér hafi fyrst og fremst verið um hefnd Davíðs að ræða.

Gleðiefni þrátt fyrir allt

Þó þetta hafi verið svartur dagur fyrir bankakerfið getur maður líklega glaðst yfir því að Glitnir skuli ekki lengur heita Íslandsbanki.

[Viðbót 8:22 30sept.] Fyrri linknum breytt. Eins og sjá má af kommentum var hann ekki á fréttasafn leitarvélarinnar Yahoo af yfirtöku Glitnis, heldur á myndband af unglingum á busaballi í framhaldsskólanum þar sem mín ástkæra yngrisystir stundar nám, en hún lánaði mér sína tölvu náðarsamlegast í 20 mínútur fyrir svefninn. Það voru sumsé mistök af minni hálfu. Mér hefur eitthvað misfarist þegar ég ætlaði að “copy”-a slóðina á fréttasafnið seint í gærkvöldi. Nú vona ég bara að þessum blindfullu unglingum hafi ekki misboðið að vera bendlaðir við ófarir íslenskra fjármálamanna. :)

Nafnlaus auli

Af smærri áhyggjuefnum, þá er einhver sveppur að senda mér nafnlausar déleringar í kommentakerfið. Viðkomandi er Guðvelkomið að endurtaka þær undir fullu nafni og þá skal ég birta þær - en þess má geta að kunningi minn fann IP-töluna hans í tölvupóstinum sínum og nafnið þar í leiðinni. Internetið getur stundum verið dásamlegt. ;)

Atvinnumennsku í póker

Ég er að velta því fyrir mér að leggja allt annað á hilluna og gerast atvinnumaður í póker. Hugsa að það sé minni áhætta en að vinna heiðarlega vinnu í þessu þjóðfélagi, svo fremi sem nettengingin klikkar ekki.

Ríkið tekur 75% í Glitni

… var bankakunningi minn að segja mér.

Viðbót2: Kaupverðið er um 85 milljarðar íslenskra króna, sem er líklega rúmlega hálfvirði fyrir bankann. Hvaða áhrif skyldi það hafa á sameiningarviðræður við Byr?

Viðbót: Svona hljóðar fréttatilkynningin:

Press release

Reykjavik, Iceland 29 September, 2008
*  The government of Iceland pays 600 million euros  for a 75% share
  in Glitnir Bank.
*  New equity will be issued.
*  Customers, bond holders and employees will not be affected.
*  The measure strengthens Glitnir's capital ratio and liquidity.
*  Lárus Welding has been asked to continue in his role as CEO and
  has agreed to do so.
*  The funding position of the bank deteriorated in a few days.
*  The Board of Directors and the Bank's largest shareholders have
  accepted the government's offer.
The government of Iceland has announced that it will acquire a 75%
stake in Glitnir Bank at the price of 600 million euros. This new
equity will be issued today. The Board of Directors and largest
shareholders of Glitnir have accepted the offer subject to the
approval of a shareholders' meeting. Glitnir's funding has been
successful this year despite very challenging market conditions.
Nonetheless, the events unfolding in international financial markets
in the past two weeks have had unforeseen consequences drastically
changing the conditions of Glitnir's short-term funding. In light of
this, the Board of Directors of Glitnir Bank had meetings with the
Central Bank of Iceland to discuss possible solutions to the
challenge that the Bank was facing. These discussions led to the
government of Iceland posing an offer to buy a 75% stake for 600
million euros. The government has asked Lárus Welding to remain in
his role as CEO which he has agreed to. The offer was posed late last
night and a Board meeting was called in Glitnir this morning. At that
meeting it was decided to accept the offer, thus securing a very
strong owner and principal shareholder for the bank.
Glitnir's core operations are solid and the Bank has this year placed
great emphasis on increasing its core earnings this year. Furthermore
this year the Bank has successfully increased efficiency and cut
costs.

Lárus Welding, Glitnir CEO
,,The Board and Management of Glitnir have diligently worked at
securing the bank's funding in the past months' turbulent markets but
unfortunately the bank saw adverse development in the past few days.
Having the government as an owner strengthens the capital base of the
bank and removes all doubt about Glitnir's financial strength. We
have seen similar things happen in the countries around us, which
reflects the tough position that currently prevails in international
financial markets. Our customers will not be affected by these
changes and Glitnir will continue to place primary emphasis on
providing good and reliable services.  I also believe I can state
that the measures reflect the authorities' strong faith in Glitnir
and are an important part of securing financial stability in the
country. This has changed the landscape of the Icelandic financial
market. Glitnir remains strong as a result."

Thorsteinn Már Baldvinsson, Chairman of Glitnir Bank
"I have emphasised incresing efficiency in the bank's operations. I
am sorry that we were not able to solve this as we had initially
planned.  This conclusion, however, secures the bank's future and the
interests of its customers and employees. This is very important to
me. Our people have done a tremendous job in very difficult market
conditions."

For further information:
Bjorn Richard Johansen, MD of Global Corporate Communications,
brj@glitnir.no and through mobile +47 47 800 100

Sigrun Hjartardottir, Head of Investor Relations, sihj@glitnir.is and
through mobile +354 844 4748

Mar Masson, Head of Corporate Communications, mm@glitnir.is and
through mobile +354 844 4990

---END OF MESSAGE---

Facebook í hnotskurn?

Jónas hress, að vanda

Jónasi Kristjánsson er hress að vanda. Athyglisvert að helsta mentor íslenskra blaðamanna sé fyrirmunað að hafa rétt eftir mönnum, eða að hann geri sér sérstaklega far um að snúa út úr fyrir þeim.

Ekki vil ég þó gera lítið úr reynslu hans af blaðamennsku og/eða ritstjórn, og oft er gaman að lesa Jónas.  Hann er vel að sér um fjölmiðla.

En ég hef bloggað daglega, eða svo að segja, í að verða 7 ár, fylgst með þróun bloggs bæði hér heima og erlendis álíka lengi, er mikill aðdáandi til að mynda talkingpointsmemo og fleirra sem eru að blanda saman bloggi og fréttamennsku, og þekki sögu bloggs á Íslandi aftur til ársins 1999, þegar þeir fyrstu voru að byrja. Svo maður ætti kannski ekki að taka alvarlega tuð í gamalmenni, sem gefur sig út fyrir að vera bloggari, en virðist ekki kunna að linka á þá sem hann tjáir sig um (eða skammast út í), eins og flestum betri bloggurum hafa þótt vera mannasiðir frá upphafi.

Ég er ekki viss um að Jónas skilji eðli bloggs til fulls. Þau eru ekki leiðarar eða viðbót við hefðbundna fjölmiðla: Þau ganga út á tjáningu og umræðu, eru síkvik, enda eru nánast allir bloggarar með kommentakerfi. Og löngu áður en kommentakerfi urðu algeng náðu bloggarar sömu áhrifum fram með því að linka/trackbakka hvorn annan, og fylgdust svo með í teljurunum hvort þeir hefðu fengið viðbrögð við því sem þeir voru að setja fram á hverjum tíma.

Jónas linkar hins vegar aldrei, og er ekki með kommentakerfi. Virðist líta svo á, að fyrst hann sé fyrir gráglettni örlagana hvergi með ritstjórastól sem stendur, sé “blogg” tilvalinn vettvangur til að slengja fram skammti dagsins af fullyrðingum áður en farið sé á hestbak eða veitingahús.

Svo það kemur kannski ekki á óvart að hann skuli þvert á allt sem heitir á góðri íslensku “kommon sense” halda að ég þykist hafa leyfi til að hafa rangt fyrir mér.

Svo það er rétt að halda því aftur til haga að ég fullyrti aldrei neitt (sem Jónas mætti e.t.v. taka sér til fyrirmyndar á köflum, það er þó smekksatriði) og um leið og leiðrétting barst var hún birt sómasamlega með mjög skýrum hætti - mun betur frágengin en tíðkast í fjölmiðlunum sem Jónas er sérfróður um.

En svo ég taki nú fyrir allan misskilning, þá er það sem ég átti við að bloggarar eru ekki blaðamenn og ekki hægt að ætlast til þess þeir stundi vinnubrögð blaðamanna, og skrifi ekki neitt nema hringja fyrst og fá öll smáatriði á hreint. Auðvitað fylgir því hætta á mistökum, eins og ég kynntist sjálfur í gær. Hver gerir ekki mistök? En þá er bara að leiðrétta sig og leyfa allri gagnrýni að koma fram.

En það verður auðvitað hver og einn að hafa sinn eigin standard í þeim málum, og við skulum láta reyna á karlinn Jónas. Að sjálfsögðu tel ég mig hafa skyldu um að fara sem réttast með og ég óska hér með eftir að Jónas dragi fullyrðingar sínar um annað til baka.

Ennfremur, og vísa þar með til góðra bloggmannasiða sem hafa þekkst í að verða áratug, að hann smelli nú inn link á þessa færslu með greinargóðum hætti, enda er hann ekki með kommentakerfi. Svo mikið er víst að varla er ég lesinn af öllum lesendum hans. Og einhverjir gætu átt eftir að ramba á þessa bloggfærslu hans gegnum leitarvél. Vonandi telur hann að þeir eigi heimtingu á sem mestum og réttustum upplýsingum (burtséð frá mér sem á reyndar einnig hagsmuna að gæta í því efni. ;)

Svo nú er að sjá hvaða standard þessi helsti mentor íslenskra fjölmiðlamanna í áratugi setur á sitt eigið blogg þegar kemur að gagnrýni og leiðréttingum! :)

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...