Bloggleti og pása
Ég hef ekki verið sérlega duglegur við að blogga undanfarið og sé ekki fram á það breytist á næstunni.
Er ekki hættur, en hugsa ég taki mér sæmilega pásu.
Þangað til síðar. …
| Íhaldsbyltingin |
| Himinblá og hljóðlát |
Ég hef ekki verið sérlega duglegur við að blogga undanfarið og sé ekki fram á það breytist á næstunni.
Er ekki hættur, en hugsa ég taki mér sæmilega pásu.
Þangað til síðar. …
… er í boði þessa hundkvikindis. Alger jólasnilld. (Séð hjá Andrew Sullivan).
Nú er ég ekkert sérlega hrifinn af sorprit.com framtakinu. En það er í meira lagi langsótt að DV eigi einhvern lagalegan rétt á því að auglýsendum blaðsins sé með einhverjum hætti bent á að ritstjórnarstefna blaðsins sé í meira lagi umdeild. Nú eða þá að ekki sé tekinn saman listi yfir auglýsendur í blaðinu - síðast þegar ég vissi töldust auglýsingar til opinberrar birtingar.
Það er auðvitað hlægilegt að eigandi malefnin.com sé að senda frá sér bréf með umkvörtunum um nafnlausar ærumeiðingar sem varði við lög.
Það mætti kannski kalla þetta móralskt gjaldþrot af einhverju tagi.
Það er að sjálfsögðu vel þekkt að auglýsendur vilji ekki auglýsa í blaði ef þeir eru ekki sáttir við innihald blaðsins. Ætli birtingsmönnum væri ekki nær að taka það til íhugunar að slök ritstjórnarstefna getur beinlínis kostað peninga. Þeir verða einfaldlega að taka því, frekar en að hafa lögfræðing á launum við að verða þeim til enn frekari skammar.
Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar í kommentakerfinu hjá Símoni:
Það væri nú fróðlegt, fyrst Símon er að grenja þetta með vafasömum dæmum og vinir hans þyrpast hingað honum til stuðnings - þó með því fororði að hann hafi nú ýmislegt á samviskunni - að Símon tíundaði meint syndaregistur sitt hér? Er málið að Símon fái ekki almennilega inni í listnemaklíkunni nema hann viðurkenndi að DV, sem ungliðahreyfingarnar fóru gegn og fengu 30 þúsund til að kvitta uppá einhvern undirskriftarlista (sem er skrítið því það voru ekki nema einhverjir 50 sem viðurkenndu að þeir læsu blaðið) hafi verið voðalegt blað?
Jújú, það var ekkert að DV, né blaðamennskuna hjá Símoni. En ef hann gefur það sjálfur í skyn er það sjálfsagt bara svo hann fái að vera memm í listamannaklíkunni.
Væri Jakob ekki annars rétti maðurinn til að taka við ef e-n tímann yrði gerð gangskör að því að reka Reyni Trausta frá DV?
Ég sé ekki betur en það glitti í Einar K. Guðfinnsson á þessari mynd, vinstra megin við Angelinu. Hvað skyldi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafa verið að gera í þessum félagsskap? :D
… á failblog hér fyrir nokkru. Gaman að því. …
Bergsteinn Sigurðsson, blm. á Fréttablaðinu bendir á reglur rúv um upptökur:
Á heimasíðu RÚV má finna reglur um fréttir og dagskrárefni tengt þeim í Ríkisútvarpinu. Í níunda lið segir: “Óheimilt er að útvarpa án leyfis ummælum manns ef hann vissi ekki að þau voru hljóð- eða myndrituð, nema ummælin hafi verið viðhöfð á opnum vettvangi.”
Þarna er í engu kveðið á um undanþágur ef upptakan á brýnt erindi til almennings. Kastljós þverbraut því reglur Ríkisútvarpsins. Það breytir þó engu um alvarleika þess að ritstjórinn með hattinn er tvísaga.
Sjá einnig lengra blogg með fleiri vangaveltum um notkun upptökunnar.