Archive for March, 2009

Googleábending

Ég get eiginlega ekki stillt mig um að birta þennan link, og í kjölfarið spurningu: Má í gervöllum sjálfstæðisflokknum finna einn, bara einn, stuðningsmann Davíðs með sæmilega meðalkunnáttu í googleuppflettingum

Hoppípolla með hreim

Sá þetta hjá Einari: We are scientists að covera Hoppípolla með Sigurrós. Textinn er á íslensku - þeir fara eftir atvikum nokkuð vel með hann bara.

Kjörskrárþjófnaðurinn mikli

Það er víst búin að vera að flakka saga í dag um að einhverjir óprúttnir aðilar, jafnvel frá Valhöll, hafi tekið sig til og komist yfir félagatal Samfylkingarinnar vegna ágallans í netprófkjörinu.

Tæknilega er slíkt forrit tiltölulega einfalt og fljótskrifað - það er nokkuð algengt menn skrifi ýmis smáforrit til að sækja fyrir sig gögn. Hins vegar er ekki hægt að gera það sporlaust, heldur er tiltölulega auðvelt að finna hvaðan gögnin eru sótt ef sama IP-talan er að fletta upp hátt í 300.000 manns.

Vandinn við kenninguna er tilgangurinn - það er í rauninni enginn sérstakur akkur í því fyrir Sjálfstæðisflokkinn að komast yfir þessi gögn.

Félagatal flokkanna hefur mest gildi í innanflokkskosningum af einhverju tagi, einkum í átökum eða valdabaráttu, enda kjörskrá, samanber til dæmis gagnrýnina frá Vinstri grænum í NV kjördæmi, þar sem Jón Bjarnason virðist hafa haft aðgang að félagatali sem aðrir höfðu ekki.

En eftir því sem ég kemst næst fá frambjóðendur í Samfylkingunni aðgang að þessum gögnum þegar um prófkjör eða annað álíka er að ræða.

Þá hefðu VG og Framsóknarflokkurinn meiri hag af þessu en Sjálfstæðisflokkurinn þar sem innbyrðis skörun kjósendahópa milli þessara flokka er meiri. Það er að segja, skráðir Samfylkingarmenn myndu fæstir fást til að kjósa Íhaldið á góðum degi, en hinir tveir flokkarnir gætu ef til vill lokkað fáeina til sín. Samt ekki marga, og flestir sæmilega hæfir kosningastjórar mundu telja að tímanum yrði betur varið í að eltast við aðra kjósendur en nákvæmlega þá sem menn beinlínis vita að eru flokksbundnir annars staðar.

Það væri klárt brot á persónuverndarlögum fyrir aðra en flokksskrifstofur að geyma gögn af þessu tagi. Ef ég man rétt er flokkunum sjálfum óheimilt að afhenda nokkrum félagsmanni rafrænt félagatal út úr húsi, til að koma í veg fyrir að pólitískar skoðanir einstaklinga séu til á gagnagrunnum úti í bæ. Þeir fá félagatalið einungis á pappír, sem oftast er það dökkur að ekki er hægt að ljósrita hann eða skanna með góðu móti. Og verða að gera svo vel að skila því að loknu prófkjöri. Þannig að fyrir einhverja kosningamaskínu innan samfylkingarinnar myndu fást þau þægindi að menn gætu lesið félagatalið anno 2009 (það úreldist fljótt) af tölvuskjá. Frekar langsótt.

Sumsé: Það er vel mögulegt að einhverjir hafi stokkið til. En það hefði þá líklega bara verið til að segja frá því. Tæknilega er þetta lítið mál, en ég átta mig bara ekki á því hvað menn hefðu talið sig vera að græða á uppátækinu.

Linx: Gott blogg um blaðadauða

Gott blogg frá Clay Shirky um netvæðingu fjölmiðla og óhjákvæmilegan dauða dagblaðsins.

Dögg um frambjóðendurna

Dögg Pálsdóttir kvartar undan því að hafa ekki fengið aðgang að upplýsingum um sitt gengi í prófkjörinu, sem er gott og blessað. En merkilegt að hún skuli hengja þessar kvartanir utan í frétt um útkomu Kristjáns Júlíussonar í NA-kjördæmi. Þetta moggablogg sko. …

Könnun um lista íhaldsins í bænum

Hér er ein krúttleg og vélmeint könnun um væntanlegan lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Hvað viltu gera með lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

  • Bæta Birni Bjarnasyni á listann (27.0%, 38 Votes)
  • Afskrifa prófkjörið og velja upp á nýtt (27.0%, 38 Votes)
  • Kjósa listann sem fyrst á þing (22.0%, 32 Votes)
  • Skila auðu (13.0%, 19 Votes)
  • Gera kjörseðilinn ógildan (eða sitja heima) (11.0%, 16 Votes)

Total Voters: 143

Loading ... Loading ...

Verður Rvk-lista xD breytt?

Ólíkt öðrum flokkum hefur verið rík hefð fyrir því innan Sjálfstæðisflokksins að breyta aldrei lista sem valinn hefur verið í prófkjöri. En nú heyrir maður að þó nokkrir innan flokksins séu á annarri skoðun.

Samkvæmt lögum flokksins er það fulltrúaráð Varðar sem ræður uppröðun á listann - prófkjörið er aðeins gilt ef meira en 50% skráðra flokksmanna taka þátt, sem gekk ekki eftir. (Þáttakan var um 40%.)

Bæði er menn ekki nógu ánægðir með heildarútkomuna. Telja listann ekki stuðla að góðri kjörsókn hjá flokknum, og að prófkjörsfyrirkomulagið hafi komið í veg fyrir að hann endurspegli vilja flokksmanna, nema ef til vill í efstu sætin. Niðurstöður í prófkjörum í öðrum landshlutum hafi einkennst af meiri breytingum.

Þá telja menn líka að þessi hefðbundna prófkjörsleið, sem oftast hefur gefið ágæta raun fyrir flokkinn, hafi ekki verið heppileg í þessu árferði. Hún hafi fælt frambærilegt fólk frá og gert nýju fólki erfiðara fyrir að fá kosningu, en allir menn þurfa að velja frá 1 og niður í 10, og langflestir kjósendur þurfa því að “fylla” kjörseðilinn sinn.

Í því samhengi má sérstaklega benda á þakið sem var sett á kostnað frambjóðenda - þó vissulega séu dýrar prófkjörsbaráttur umdeilanlegar má efast  um að ný og minna þekkt nöfn geti kynnt sig fyrir potential 20.000 manna kjósendahópi fyrir tiltölulega lágar fjárhæðir.

Næsta spurning er því hvað uppstillingarnefndin í Reykjavík kýs að gera með niðurstöður prófkjörsins, en hún útbýr tillögu að lista sem fulltrúaráðið samþykkir af gömlum vana óbreytt. Menn eiga síður von á því að uppstillingarnefndin geri róttækar, ef þá nokkrar, breytingar á efstu 10 eða 12 sætum. En það er líklegra en áður að það komi til atkvæðagreiðslu innan fulltrúaráðsins um tillögu uppstillingarnefndar.

Prófkjörin í bænum

Maður getur varla lýst sig ánægðan með prófkjör íhaldsins í Reykjavík - flokksmönnum er þó vorkunn þar sem það var ekki kannski ekki um það að ræða að holskefla nýju og öflugu fólki gæfi kost á sér, sem hefði verið nauðsynleg forsenda þess að hrista rækilega upp í þingliði flokksins í bænum. Af hverju þurfti Tryggvi Þór til dæmis að fara austur?

Það var eiginlega verra að Árni Johnsen skyldi halda sínu sæti fyrir sunnan - en maður hefði allt eins átt von á því hann myndi sigra þetta. Hann virðist hafa fengið 1300 atkvæði í 1. sætið - sennilega hafa sunnlendingar kosið Ragnheiði í 1. sæti og Unni Brá Konráðsdóttir í 2. sætið sem hún óskaði eftir.

Það er fátt sem kemur á óvart í Kraganum, en það verður að koma í ljós hvernig Óli Björn Kárason reynist. Það virðist í fyrstu hálfgerð tímaskekkja að einn helsti handlangari Davíðsmanna í fjölmiðlum taki sæti á þingi þegar valdaskeiði þess hóps er að ljúka. Það bætir varla skapið í herbúðum Guðlaugs Þórs að helsti bandamaður hans í kraganum rúlli niður listann.

Guðlaugur Þór getur í sjálfu sér vel við unað að halda 2. sæti á lista eftir að hafa verið heilbrigðisráðherra - sá stóll hefur löngum verið pólitísku galli blandinn. Staða hans innan flokksins er í sjálfu sér nokkuð góð, en það verður líka að horfa í það hver staða hans var innan flokksins fyrir ekki svo löngum tíma, þegar hann var mjög áhrifamikill í bæði borgar- og landsmálum á bakvið tjöldin.

Það sem er jákvætt er að ný forysta er að verða til í flokknum með mjög skýrt umboð og svigrúm til að fara nýjar leiðir - það mun sennilega skýrast mjög fljótlega hvert þeir Bjarni og Illugi vilja fara með flokkinn.

Þá eru það tvímælalaust af hinu góða að þrír fulltrúar Deiglukynslóðarinnar eru í baráttusætum og með góða möguleika á þingsætum, en sá hópur sneri á sínum tíma vonlausri stöðu stúdendafélagsins Vöku við og hefur mikið fram að færa í því ferli sem hlýtur að vera framundan innan Sjálfstæðisflokksins.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...