Archive for April, 2009

Svínaflensan talin mild

Samkvæmt þessari frétt gera vísindamenn ráð fyrir því að svínaflensan verði tiltölulega mild, og hugsanlegt sé að hún valdi minna tjóni en hefðbundnir inflúensufaraldrar gera árlega, þó með þeim hefðbundna fyrirvara að flensan geti hugsanlega stökkbreyst á einhverjum tímapunkti.

Líklegt sé þó að hún verði eitthvað alvarlegri en hefðbundin flensa, en ekkert í líkingu við til að mynda spænsku veikina. Kvikindið er sumsé fjarri því hættulaust, en það er enn sem komið er engin ástæða til að fara í sérstakan hamfaragír. Þetta virðust snúast um upplifun og athygli frekar en raunveruleg hætta sé á ferðum.  Talið um heimsfaraldur virðist ekki snúast um neitt sem við vitum fyrir víst, heldur vegna fjölmiðlaathygli.

“Let’s not lose track of the fact that the normal seasonal influenza is a huge public health problem that kills tens of thousands of people in the U.S. alone and hundreds of thousands around the world,” said Dr. Christopher Olsen, a molecular virologist who studies swine flu at the University of Wisconsin School of Veterinary Medicine in Madison.
“Any time someone dies, it’s heartbreaking for their families and friends,” Olsen said. “But we do need to keep this in perspective.”

“This virus doesn’t have anywhere near the capacity to kill like the 1918 virus,” which claimed an estimated 50 million victims worldwide, said Richard Webby, a leading influenza virologist at St. Jude Children’s Research Hospital in Memphis, Tenn.

“There are certain characteristics, molecular signatures, which this virus lacks,” said Peter Palese, a microbiologist and influenza expert at Mt. Sinai Medical Center in New York. In particular, the swine flu lacks an amino acid that appears to increase the number of virus particles in the lungs and make the disease more deadly.


“We expect to see more cases, more hospitalizations, and, unfortunately, we are likely to see more deaths from the outbreak,” Health and Human Services Secretary Kathleen Sebelius told reporters Wednesday on her first day at work. But certainly nothing that would dwarf a typical flu season. In the U.S., between 5% and 20% of the population becomes ill and 36,000 people die — a mortality rate of between 0.24% and 0.96%.

And a pandemic doesn’t necessarily have a high fatality rate. Even in Mexico, the fatalities may simply reflect that hundreds of thousands of people have been infected. Since the symptoms of swine flu are identical to those of a normal flu, there’s no way to know how many cases have evaded government health officials, St. Jude’s Webby said.

Svínaflensa í vatnsglasi?

[Viðbót kl. 15:17. Samkvæmt þessari frétt hafnar WHO því að 159 séu látnir vegna svínaflensunnar. Segir aðeins sjö staðfest dauðsföll vegna svínaflensu. ]

Áður en maður sannfærist um að heimsfaraldur sé í nánd er ágætt að setja hlutina í samhengi:  Það búa 110 milljónir manna í Mexíkó, og í Mexíkóborg allri búa yfir 22 milljónir. Og svo skulum við velta því fyrir okkur hvort veröldin öll myndi einhvern tímann riða á barmi taugaáfalls ef það myndi spyrjast út í heim að nokkur hundruð Íslendingar hefðu sýkst af hugsanlegu nýju afbrigði af inflúensu, og einn væri látinn.

Miðað við að staðfest tilfelli eru komin um víða veröld má ætla að veikin sé orðin nokkuð útbreidd í Mexíkó, og miklu fleiri sýktir en leitað hafi aðstoðar lækna. Enginn þeirra sem hefur greinst utan Mexíkó virðist alvarlega veikur - hefur þurft að leggja nokkurn þeirra inn?

Að vísu lést barn í Bandaríkjunum, en það reynist reyndar vera frá mexíkóskum landamærabæ en farið með það til Bandaríkjanna í lækningaskyni. Við megum ekki gleyma því að hefðbundin inflúensa leggur alltaf einhverja í gröfina - einkum eldra fólk og ungabörn, án þess að menn telji það vera sérstakan heimsfaraldur sem kalli á lokun flugvalla og þar fram eftir götunum. Það látast allt að því 500.000 manns árlega vegna hefðbundinnar inflúensu.

Aðstæður og lífskjör í Mexíkó eru líka oft á tíðum nokkuð ólík því sem við þekkjum - til að mynda hefur fjórðungur heimila í mexíkóborg ekki aðgang að skólpkerfinu, drykkjarvatn er mengað, loftmengun er mikil. Talið er að 40% íbúa þar lifi undir fátæktarmörkum.

Það eru engar áreiðanlegar upplýsingar til um flensuna í Mexíkó. Stjórnvöld ekki talin hafa verið að standa sig, og hafa til að mynda ekki reynt að hefta útbreiðslu með því að setja ættingja látinna eða aðra sem hafa umgengist í læknismeðferð - þeir virðast jafnvel engin lyf hafa fengið.

Enn sem komið er virðist engan veginn ljóst að við eigum alheimsfaraldur í vændum. Allar upplýsingar eru af skornum skammti - og af því litla sem maður sér virðist fjarri því augljóst að þessi inflúensa sé mikið alvarlegri en þær sem við erum vön.

Um heiður Þráins

Ég myndi ekki segja að ég væri beinlínis heillaður af Þráni Bertelssyni sem stjórnmálamanni, og ég hef fram til þessa ekki áttað mig á því hvað hann er að gera á heiðursmannalistalaunum.

Hann bloggar sjálfur um það hér í dag - hljómar eins og ágætis reyfari, og gæti þess vegna verið satt. En það þýðir ekki að það hann hafi verðskuldað heiðurslaunin á sínum tíma! Af lýsingu hans sýnist mér einna helst að Friðrik Þór hafi skrifað bréf og stungið upp á því að einhver fengi heiðurslaun frá Alþingi fyrir kvikmyndagerð, en hafi ekki kunnað við að stinga upp á sjálfum sér, og því tiltekið Þráin í sinn stað - enda veit ég ekki til þess að framlag Þráins hafi fram til þessa þótt spönn meira en Friðriks. En þar með verður varla hjá því komist að Frikrik fái heiðurslaun sjálfur þegar fram líða stundir.

Síðan hafi einhverjir þingmenn viljað taka Friðrik á orðinu, en að málið hafi orðið pólitískt bitbein vegna andstöðu Davíðs - þar með varð það að pólitísku þrátefli til nokkurra ára.

Eða með öðrum orðum, þetta virðist ekki hafa snúist um mat þingmanna á ævistarfi Þráins sem slíku, heldur var það fyrst hugsað sem dúsa til kvikmyndagerðarmanna sem hafa enda unnvörpum farið í gjaldþrot fyrir listina, og varð seinna einhvers konar spurning um að beygja Davíð - sem er nú alltaf ágætis málstaður út af fyrir sig.

En ef það þurfti endilega að setja einhvern á heiðurslaunalista þvert á vilja Davíðs, hefði þá ekki mátt smella Sigurði A. Magnússyni með? Undir Kalstjörnu er ein af merkari bókum sem ég hef lesið. …

Menn geta svo sem lagt sjálfstætt mat á þessar kvikmyndir hans ef menn muna eftir þeim. Nýtt Líf og Dalalíf slógu í gegn á sínum tíma - en ég get ekki séð að þær séu listaverk af því taginu sem eru veitt heiðurslaun frá Alþingi fyrir. (Kannski Júlíus Kemp komi næstur fyrir Veggfóður?) En ég man ekki nógu vel eftir Magnúsi.

Annars held ég það mætti gera athugasemdir við ýmsa fleiri á listanum yfir heiðurslaunalistamenn, en það er önnur saga.

Það er alveg fráleitt að taka Þráin sérstaklega af heiðurslaunum þó hann taki sæti á þingi. En það má alveg ræða um réttmæti þess þá sem nú, þó það eigi að heita einhver óskrifuð regla að menn séu á þessum lista fram í andlátið.

Síðan er það annað mál að Þráinn sér nú fram á betri fjárhag en löngum áður, og orðinn þingmaður fyrir hreyfingu sem hefur siðbót á stefnuskránni. Úr því Þráinn er á sérstökum heiðurslaunum, sem eru viðbót ofan á aðrar tekjur, væri honum þá ekki ljúft og skylt að nota þau til að greiða til dæmis útistandandi laun og aðrar kröfur sem til féllu við gerð myndanna, þó vissulega séu þær fyrndar samkvæmt öllum lögum?

Vatnspyntingar Japana

Sú aðferð sem Bandaríkin notuðu gegn föngum, og reyndu að halda fram að flokkaðist ekki undir pyntingar var “Waterboarding”. En núna sér maður að þeir refsuðu japönum sem beittu henni á bandaríska hermenn með dauðarefsingu.

Vandinn við pyntingar

Ég hef verið að fylgjast með umræðum hjá bloggurum í Bandaríkjunum um pyntingar í kjölfar þess að Obama ákvað að aflétta leynd af gögnum frá tíma Bush stjórnarinnar.

Vandinn við pyntingar er mjög einfaldur: Þær virka ekki. Þær skila ekki áreiðanlegum upplýsingum, og hörðustu einræðisríkin nota þau ekki til að fá áreiðanlegar upplýsingar, heldur til að fá falsaðar játningar, og þá kannski einna helst þegar leiðtogarnir eru algerlega dottnir úr tengslum við raunveruleikann og vilja fá staðfestingar á eigin hugarórum.

Ég má eiginlega til með að linka á frétt og info um Colonel Robin “Tin Eye” Stephens, sem að stýrði yfirheyrslum yfir njósnurum í Bretlandi á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, og yfirheyrslum yfir þýskum nasistum í stríðslok. Hans regla var einföld. Það átti aldrei að beita líkamlegu ofbeldi, og hann rak menn sem urðu uppvísir að svo miklu sem slá viðfangsefnin. Það var að sjálfsögðu ekki af mannúðarástæðum.

Never strike a man. It is unintelligent, for the spy will give an answer to please, an answer to escape punishment. And having given a false answer, all else depends upon the false premise.

Þýsku nasistarnir höfðu einnig skilning á þessu, í það minnsta einhverjir, sbr. til dæmis þennan.

Fulltrúaráðsatlagan mikla

Ég hugsa að Orðið á götunni sé að gera helst til mikið úr því að kosningin hjá Verði í gær skipti Guðlaug lykilmáli - en er kannski ögn pínlegt fyrir þá Illuga og Bjarna.

Það er nokkuð ofmælt að þetta sé hjartað í “valdakerfi” Guðlaugs. Mest af fólkinu sem starfar í hverfafélögum flokksins eru “Ordinary Joe´s” sem standa til hliðar við valdakerfi flokksins. Guðlaugur hefur hins vegar haft meiri stuðning hjá þessari grasrót þar sem hann hefur lagt töluverð rækt við hana og nær að virkja þetta fólk í sinni kosningabaráttu - og þar skiptir stjórn Varðar sem slík engu máli.

Stjórn Varðar tilnefnir eins og önnur félög fulltrúa á Landsfund, og þá tilnefnir hún nokkrar fulltrúa í kjörnefnd sem stillir upp í neðri sætin á framboðslistum, fyrir neðan þá sem hljóta brautargengi í prófkjörum.

Mér er ekki kunnugt um að þeir Kjartan, Davíð og Geir hafi nokkurn tímann reynt að hlutast til um stjórnarkjör í Verði, heldur hafi leyft þessum grasrótarkjarna að starfa nokkurn veginn óáreittum, enda erfitt að sjá að þetta skipti miklu máli.

Illa ígrunduð lögregluhótun

hér á ferðinni vegna hústökunnar við Vatnsstíg. Það liggur held ég alveg fyrir að tæpir fjórir tímar ættu að duga hústökufólki nokkuð vel til að fylla af mótmælendum og stuðningsfólki.

Annars get ég ekki séð að hústakan sem slík sé verri en að láta hús á besta stað í bænum standa auð og grotna niður. Ef eigandi hússins hefur fyrst og fremst áhuga á lóðinni ætti það að vera honum að meinalausu þó einhver nýti húsið meðan það bíður niðurrifs. Það hlýtur að mega skoða það í þessu tilviki hvort ekki megi finna út einhverja gáfulegri lausn, amk áður en menn láta hart mæta hörðu.

Youtube dauðadæmd?

Ef marka má þessa grein á youtube litla sem enga framtíð í núverandi mynd.

What are Google’s options? They seem unlikely to sustain a billion-dollar annual experiment with no path to revenue, no matter how much they paid for the original asset. In an organization feeling the sting of layoffs, is this really where Google wants to spend its money? It all depends.

Sumsé gríðarlegur kostnaður og engar tekjur upp í hann í sjónmáli. Dapurlegt. …

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...