Archive for July, 2009

Hver er þá lögmannskostnaður Íslendinga?

Það er vissulega nokkuð stór biti ef Íslendingar eiga að greiða nokkra milljarða í lögmannskostnað fyrir Breta.

En í kjölfarið vaknar forvitnileg spurning: Hver er lögmannskostnaður okkar vegna Icesave viðræðnanna. Það er held ég hætt við því að sá kostnaður sé töluvert lægri, og það skýrir ef til vill eitt og annað.

Á hvaða kjörum var lánið?

Í ljósi þessara frétta vaknar önnur spurning sem hefur held ég farið fram hjá fjölmiðlum: Á hvaða kjörum var þetta lán Björgólfsfeðga hjá Kaupþingi?

Nú veit ég ekkert um lánakjörin, en það virðist fljótt á litið mjög sérstakt að þetta lán hafi ekki verið greitt upp við fyrsta tækifæri, eða þá endurfjármagnað, en maður hefði haldið að þeim björgólfsfeðgum hefðu átt að bjóðast betri lánakjör út á veðin fyrir þessu láni á góðæristímanum, en um það leyti sem Lansinn var keyptur - þeir voru nú held ég alltaf með allt veðsett upp í topp og jafnvel gott betur en það.

Svo maður veltir því fyrir sér hvort kjörin hafi verið sérstaklega góð?

Öryggi ógnað?

Maður ætti kannski að vera að gera lítið úr hótunarbréfum sem fólki eru send - en það er fullmikið sagt að þar með sé öryggi einhvers ógnað. Það væri rétt lýsing ef einhver hefði ráðist að starfsmanni með steytta hnefa eða einhver því hættulegri vopn, og hún væri ekki beinlínis röng ef einhver hefði elt starfsmann á leið heim úr vinnu eða setið um heimili hans.

Þetta hótunarbréf er eina skýringin sem maður hefur séð á þessu kryptíska orðalagi í fréttatilkynningunni - en bankinn skýrir þá óvenjulegu ákvörðun sína, að ræða þetta mál opinberlega, með þeim rökum að öryggi starfsmanna hafi verið ógnað. Þegar nær lagi virðist að þeim hafi verið hótað. Og hvorugt eru reyndar góð rök fyrir því að fara ekki eftir settum reglum um bankaleynd, sem bankarnir og fleiri bera fyrir sig í tíma og ótíma.

Annað hvort mega bankarnir ræða mál sem eru í vinnslu við fjölmiðla eða ekki - hótunarbréf á ekki að breyta neinu um það, nema of svo kynni að vera að af einhverjum ástæðum hafi téð bankaleynd verið túlkuð mun þrengra algera nauðsyn ber til?

WashPost rukkar fyrir aðgang að blaðamönnum

Samkvæmt þessari frétt hefur dagblaðið Washington Post tekið upp á þeirri forvitnilegu nýbreytni að rukka Lobbýista fyrir aðgang að blaðamönnum og ráðamönnum - fyrir 25.000 dollara á haus. Í formi ráðstefnuhalds, að sjálfsögðu.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...