Archive for September, 2009

Fallin ríkisstjórn

Afsögn Ögmundar hlýtur að þýða endalok ríkisstjórnarinnar.

Það mjög ólíklegt að Ögmundur sér gersamlega að misskilja stöðuna í Icesave málinu: Honum hlýtur að vera það ljóst að viðsemjendurnir í málinu eru Bretar og Hollendingar, en ekki Samfylkingin. Þessi afsögn snýst því ekki um styrkja samningsstöðu þess hóps VG innan VG sem vill ekki ganga lengra í samningsátt, heldur snýst hún um það að sýna að sá hópur hafi ekki hyggju að semja frekar í málinu.

Það er því ekki og verður enginn ríkisstjórnarmeirihluti fyrir lausn á Icesave sem aftur er forsenda þess að fáum Icesavelán sem aftur er forsenda þess að efnahagsáætlanir ríkisstjórnarinnar haldi.

Hveitibrauðsdagarnir eru liðnir og ljóst að stjórnin getur ekki lifað mikið lengur á grundvelli gamals draums um samstarf tveggja vinstri flokka, ef að samstöðuna skortir. Líklega á hún skammt eftir, enda væri það ábyrgðarlaust að láta þetta lafa lengur í sama vandræðagangi.

Þetta eru gleðitíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, enda er hann líklegri en Framsóknarflokkurinn til að vera viðræðuhæfur um að klára Icesavemálið með svipuðum hætti og Samfylkingin vill.

Þó er ekki útilokað að Framsóknarflokkurinn sé tilbúinn að kokgleypa hvert einasta orð sem Sigmundur Davíð hefur látið falla frá því hann hóf sinn stjórnmálaferil. …

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...