Archive for May, 2010

Vandi Ögmundar - og fleirra

Ögmundur tjáir sig mjög afdráttarlaust um söluna til Magma, og svo sem fátt í máli hans sem kemur á óvart. Hann gagnrýnir eigin ríkisstjórn harkalega fyrir að leyfa þessu að gerast.

Áður en lengra er haldið er líklega rétt að taka fram að ég er ekki andvígur því að eignarhald á auðlindum sé erlent - en þetta er hins vegar engan ásættanleg staða; að orkufyrirtæki fari í þvingaðar sölur vegna lélegs reksturs, og á útsöluverði. Eins og ég lít á málin, þá er ástæða þess við viljum eiga þessar auðlindir sá hagnaður sem þær geta skapað okkur, og ef við getum fengið meira út úr því að selja þær að hluta til er það fyrst og fremst jákvætt - og snýst að mestu leyti um að fá góð verð. Það er ekki tilfellið hér.

Vandinn við málflutning Ögmundar er að þessi sala snýst ekki um það hvaða skoðanir menn hafa á erlendu eignarhaldi á orkulindum eða auðlindum almennt, heldur snýst þetta bara um rekstur. Annars vegar rekstur orkufyrirtækjanna sem slíkan, og hins vegar fjárhagslega stöðu eigendanna. Ef að fyrirtækið stendur ekki undir skuldum, og eigandinn getur ekki komið inn með fjármagn er þetta einfaldlega búið.

Sem leiðir hugann að Landsvirkjun. Það er illa varðveitt leyndarmál að þar eru erfiðir gjalddagar framundan á næstu árum, og að þar getur brugðið til beggja vona. Hún er líklegur kandidat fyrir næsta slag um eignarhald á okkar orkulindum, á eftir þeim sem nú er líklega tapaður. Staða hennar var ekki áhyggjuefni fyrir nokkrum árum, því ríkissjóður var skuldlaus og hefði getað gripið Landsvirkjun í greiðslufalli. Nú er það breytt - ríkissjóður er hættulega skuldsettur, með mikinn hallarekstur, í fjárhagslegri gjörgæslu, og engin þjóð í heiminum vill lána okkur fjárhæðir sem hafa einhverja þýðingu nema við séum í prógrammi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Með öðrum orðum, að við getum hæglega tapað Landsvirkjun líka. Ef við viljum geta bjargað henni frá erlendum auðhringjum verður að koma stöðu ríkissjóðs í lag.

Það vantar töluvert upp á trúverðugleikann hjá Ögmundi og lagsmönnum hans hjá Vinstri Grænum sem eru helstu andstæðingar allra tillagna um niðurskurð á hjá ríkinu, og sem hefur raunverulega tekist að fá ríkisstjórnina til að draga lappirnar í allri sinni viðleitni til draga úr útgjöldum. Því ef menn vilja að ríkissjóður geti bjargað Landsvirkjun verða menn að koma rekstri hans í lag.

Það gengur einfaldlega ekki upp að tala í stríðsyfirlýsingum gagnvart erlendu eignarhaldi og gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að “leyfa þessu að gerast” á sama tíma og maður berst hatrammlega gegn því að ríkissjóður sé í stakk búinn til að gera neitt.

Könnun: Finnst aumkunarverðari Íslendingur?

Það er langt síðan ég bryddaði síðast upp á skoðanakönnun. En svona fyrst það sem brennur heitast á Bubba Morthens þessa dagana er að verja útrásarvíkinga en hamast á Sindra Eldon (enda augljóslega mál málanna í dag hvort hann getur spilað á bassa eða ekki) hlýtur maður að spurja sig:

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...

Ef einhverjum dettur aumkunarverðari Íslendingur í hug má gjarnan koma af stað umræðu í kommentakerfinu, helst undir fullu nafni þó. ;)

Sérstakt gildismat

Þeir Ingólfur Helgason og Steingrímur Kárason vissu áreiðanlega hverju þeir gátu búist við þegar þeir flugu til landsins til að mæta í yfirheyrslu. Tafarlaust gæsluvarðhald og kjölfarið ákæra, síðan farbann þar til dómur hefur fallið - og það ekkert frekar þeim í hag. En þeir mættu samt.

Ekki það þeir verðskuldi sérstaklega hrós fyrir það - þvert á móti hefði maður haldið að þetta sé nokkuð borðleggjandi ákvörðun. Dæmd refsing fyrnist ekki ef maður er landflótta nægilega lengi - og það hljómar ekki eins og sannfærandi möguleiki fyrir menn af þessu kaliberi að vera landflótta ævilangt.

Útrásarvíkingarnir eru einfaldlega ekki nógu margir né nógu nánir innbyrðis til að mynda samfélag landflótta Íslendinga, eins og til dæmis ólígarkar hafa gert í London (og þeir eru auðvitað heldur ekki í bráðri lífshættu ef þeir snúa heim). Og maður hefði haldið að allir væru þeir með sterk vina- og fjölskyldubönd hér heima.

Þótt þetta sé ekki peningaleg ákvörðun er þetta samt “bisness” - og maður þarf að vera frekar öfugsnúinn í hjartanu til að líta á ævilanga útlegð (40+ ár) sem betri kost en að sitja nokkur ár í hvítflibbafangelsi.

Látum lögleysuna hjá Sigurði Einarssyni liggja milli hluta. Veltum frekar fyrir okkur gildismatinu sem lesa má út úr þessu, að vera tilbúinn að fórna að verulegu leyti öllum félagslegum tengslum hér á Íslandi frá langri ævi, eins og þau skipti minna máli en einhverjir peningar á leynireikningum. Og kannski kemst maður í leiðinni spönn nær því að skilja hvernig þetta allt saman gat gerst.

Til varnar bændasiðferði

Páll Ásgeir er tvímælalaust fyrirmyndarbloggari og einn af mínum uppáhalds hér á Eyjunni. Mætti blogga oftar (en það kemur nú kannski úr hörðustu átt).

Ég hef reyndar aldrei verið sammála honum, nema í besta falli að einhverju leyti. Aftur á móti rökstyður hann allt sem hann segir vel, og þó hann sé afdráttarlaus og skrifi um mál sem brenni heitt á honum er þetta stóryrðalaust.

Í gær spyr hann hvort bændur vilji fórna Þórsmörk.  Málið snýst um að Eyfellingar hyggjast nú aftur reka upp fé til beitar á Almenningum, sem er þjóðlenda upp af Þórsmörk, og afréttur frá fornu fari. Undanfarin ár hefur svæðið verið friðuð vegna beitarálags, og skógræktargirðingin sem var milli Þórsmerkur og Almenninga var fjarlægð fyrir nokkru.

Það góða við blogg Páls er að hann er með allar staðreyndir á hreinu, og virðist reyndar gera sér far um að svara fyrirfram mörgum fyrirsjáanlegum mótbárum. Þannig er ljóst af blogginu hans að:

  • Uppreksturinn er fullkomlega löglegur.
  • Á svæðinu eru a.m.k. 75 hektarar af grónu landi sem þolir beit vel
  • Ekkert er því til fyrirstöðu að girða landið af á ný, nema fjármunir.

Það er nokkuð ljóst að spurning í fyrirsögn Páls gengur nokkuð langt - það dettur held ég engum í hug að bændur á svæðinu vilji fórna Þórsmörk, og það er erfitt að áfellast bændur fyrir að vilja nýta sér rétt sem er í sjálfu sér ótvíræður - sumarbeitarlönd eru eitt stærsta hagsmunamál sauðfjárbænda, og de facto peningaleg verðmæti. Það er varla lykilatriði í málinu að einhverjir eða flestir upprekstrarmanna séu ekki sauðfjárbændur í fullu starfi (enda fáir sauðfjárbændur sem ekki starfa við eitthvað annað í dag).

Það er vel skiljanlegt að náttúruverndarsinnar og útivistarfólk vilji losna við að sauðfé fari aftur á beit á landi sem var friðað - þó trúlega hafi friðunin alltaf átt að vera tímabundin. Er samt ekki óþarfi að saka bændur um vafasamt siðferði?

Það er tiltölulega lítið mál að girða þarna á milli. Fyrir bændur eru þetta fjárhagslegir hagsmunir að nýta afréttinn. Það er líka siðferðislega hæpið að krefjast þess að þeir séu sviptir afrétti um ókomna framtíð án þess að bætur komi fyrir, eða að þeim sé tryggt nýtt beitarland.

Og þó uppreksturinn hafi verið ákveðinn fyrir gosið, þá er nokkuð augljóst að þörfin fyrir beitarlandið er mun meira eftir að það hófst, og verðmæti þess fyrir bændurna því meiri. Það er eiginlega helvíti hart að á sama tíma og þeir horfi upp á gosið í fullkominni óvissu um framtíðina sé gerð krafa um það þeir afsali sér fornum beitarrétti, og það bótalaust, en séu annars þjóðníðingar.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...