Stefnumál dagsins
Ég má eiginlega til með að vekja athygli á frumlegum baráttumálum hins knáa Guffa bílasala, eins og þau koma fyrir á prófkjörsvef Sjálfstæðisflokksins.
Látum það liggja milli hluta hann vilji selja Norðmönnum drekasvæðið - það eru þessar kröfur á hendur Bretum sem vekja mesta athygli: “Ég vil líka að við sendum Bretum reikninginn fyrir fiskinum sem þeir hafa stolið af okkur í tíu þorkastríðum frá árinu 1411 til 1976.”
Það væri gaman að sjá hvernig Bretar tækju þessu innleggi á næsta samningafundi í Icesave deilunni. ;)
