Googleábending

Ég get eiginlega ekki stillt mig um að birta þennan link, og í kjölfarið spurningu: Má í gervöllum sjálfstæðisflokknum finna einn, bara einn, stuðningsmann Davíðs með sæmilega meðalkunnáttu í googleuppflettingum

12 tjásur to “Googleábending”

  1. Friðrik tjáði sig:

    Þetta eru allt niðurstöður sem hafa endað inni á vefnum EFTIR að maðurinn var ráðinn í Seðlabankann.

  2. Hólmgeir Guðmundsson tjáði sig:

    Skoðaði reyndar bara fyrstu 3 gúgl-síðurnar, en þar fann ég aðeins einn link sem ekki tengdist hinni nýlegu upphefð bakastjórans okkar. Um hann er vissulega færsla á Wikipediu, en sú færsla er mjög Seðlabanka-miðuð. Og þessi eini “ó-Seðlabankalegi” linkur ? Norska símaskráin ;)

  3. Gunnhildur tjáði sig:

    Það er mjög eðlilegt að efstu niðurstöður séu um skipan hans sem Seðlabankastjóra. Google tekur nýbirt efni fram yfir gamalt og eins sorterar leitarvélin niðurstöður í samræmi við IP tölur, þannig að notendur á Íslandi fá íslenskar síður framarlega í röðinni. Þegar ég gúggla “Central Bank” er heimasíða Seðlabankans t.d. önnur í röðinni. Það er hún tæpast hjá þeim sem eru staddir annarsstaðar í veröldinni.

  4. Jón H. Jakobsson tjáði sig:

    Ég prófaði nafnið hans og svo líka að þrengja leitarstrenginn einvörðungu við nafnið.

    Fyrsta leitin skilaði ca. 17.500 síðum og sú seinni ca. 13.900.

    Davíð Oddsson skilar reyndar yfir 200.000 niðurstöðum bæði með og án þrengri leitarstrengs. Spurning hvort að viðkomandi þurfi að vera með x ákveðin fjölda hits á Google til að þessi tiltekni hópur telji það marktækt ?

  5. Hermann tjáði sig:

    Til hamingju, þú kannt að gúggla. Þú kannt hins vegar greinilega ekki að lesa.

  6. Ásta B tjáði sig:

    Til þeirra sem skrira hér á undan.
    Nú er ég ekki google sérfræðingur en mér var bent á að þær færslur sem birtast fyrst séu frá því landi sem googlað er í.
    Í mínu tilfelli íslenskar þar sem ég er stödd á Íslandi þegar ég googla.
    Þá þurfum við að fara aftar en fyrstu síðurnar til að skoða útlendar færslur.

  7. svansson tjáði sig:

    Téður Hermann fær sérstakar heillaóskir fyrir þetta skítakomment. Til að bjarga heiðri hans frekar en hann á skilið er þó rétt að árétta að ég átti eftir að approva kommentin sem birtust fyrir ofan þar sem var búið að útskýra fyrir einfeldningum eins og honum hvernig google virkar. ;)

  8. aaaaaaa tjáði sig:

    http://w2.hidemyass.com/index.php?q=aHR0cDovL3d3dy5nb29nbGUuY29tL3NlYXJjaD9xPVN2ZWluK0hhcmFsZCslQzMlOTh5Z2FyZCZhbXA7aGw9ZW4mYW1wO3N0YXJ0PTIwJmFtcDtzYT1O

    Það voru mjög fáar google niðurstöður áður en þessi norski tók við. Getur einhver fundið þær?

  9. Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur tjáði sig:

    “Skítlegt eðli komst í tísku á Íslandi. Yfirgangur, hótfyndni, ógnanir, græðgi, rógburður, dylgjur, spilltar mannaráðningar, sleikjugangur, sjúkleg persónudýrkun, ritstuldur, menningarlegur náriðilsháttur svo eitthvað sé nefnt.

    Öllu var hent á hvolf og lestir urðu að dyggðum og heimskan að viti.”

  10. Tomas Gunnarsson tjáði sig:

    Ég google ekki frá Íslandi, og það er rétt að google síðan lítur pínulítið öðruvísi út en sú sem hér er linkað á.

    En það er því sem næst ekkert sem kemur upp þegar leitað er að Svein Harald Øygard, sem er ekki tengt Íslandi og Seðlabankanum.

    Sbr. wikipediuna, þar sem textinn er: Svein Harald Øygard is a Norwegian economist. He is currently head of the Central Bank of Iceland.

    Það er því ekki hægt að segja að Hr. Google hafi haft mikið af Sveini að segja, svona áður en hann kom til Íslands.

  11. G. Tomas Gunnarsson tjáði sig:

    Ég googla ekki frá Íslandi og fæ örlítið öðruvísi síðu upp, en þá sem er linkað á hér.

    En niðurstöðurnar eru nokk þær sömu, það eru engar færlur eða fréttir af “nojaranum” áður en hann tekur við sem Seðlabankastjóri á Íslandi.

    Eitt besta dæmið er auðvitað wikipedia síðan þar sem segir: Svein Harald Øygard is a Norwegian economist. He is currently head of the Central Bank of Iceland.

    Hr. Google hefur því ekki haft mikið af Sveini að segja áður en hann kom til Íslands. Mest er um síður þar sem boðið er upp á að skoða hvað Sveinn hefur borgað í skatt og hvað hann hefur í laun. Norðmenn setja jú slíkar upplýsingar á netið.

  12. Sigurjón tjáði sig:

    Þið hljótið að vera að grínast ?

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...