Er Þorvaldur sjálfkjörinn?!?

Maður hefur á nokkrum bloggum séð því slegið fram í dag að Þorvaldur Gylfason hljóti að vera sjálfkjörinn sem Seðlabankastjóri.

Nú vill maður ekki gera lítið úr því að hann hafði hárrétt fyrir sér þegar hann fór að gagnrýna lánaútþensluna í bankakerfinu. En væntanlega hljóta fleiri þættir að skipta máli - og það er út í hött að gefa sér að hann einn hafi séð hvert stefndi, þó hann hafi haft hærra um það aðrir. Margir fræðimenn vilja síður taka þátt í opinberri umræðu eða pólitískum deilum, og aðrir geta starfs síns vegna ekki tjáð sig um þjóðfélagsmál - það á tvímælalaust við um  Má Guðmundsson.

Hér er ferilskrá Þorvalds Gylfasonar: Ef frá eru talin sumrin 1971-1972 hefur hann aldrei starfað í Seðlabanka, og síðustu áratugi hefur hann fyrst og fremst starfað við kennslu, rannsóknir og ritstörf og eitthvað við ráðgjöf. Hann virðist enga stjórnunarreynslu hafa (þetta er nokkur hundruð manna vinnustaður).

Mér hefur ekki tekist að finna ferilskrá Más Guðmundssonar á netinu - maður myndi fyrirfram ætla að ferill hans gerði hann öllu hæfari. Lengi var hann aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og síðustu ár í stjórnunarstöðu í Alþjóðagreiðslubankanum, í alþjóðlegu umhverfi.

Ein tjása to “Er Þorvaldur sjálfkjörinn?!?”

  1. Annas Sigmundsson tjáði sig:

    Már Guðmundsson hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri og staðgengill framkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss frá árinu 2004.

    Már var aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands 1994-2004.
    Hann var efnahagsráðgjafi Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi fjármálaráðherra, 1988-1991.
    Már er með BA gráðu í hagfræði frá Essex og M.phil. gráðu frá Cambridge University.
    Fæddur 1954 og á þrjú börn.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...