Afleiðingarnar aukaatriði
Að vísu víkur forsetinn nokkrum almennum orðum um mikilvægi sáttar við umheiminn í yfirlýsingu sinni. En ástæðurnar sem hann ber fyrir sig eru djúpstæð andstaða, mikilvægi sáttar og hugsanlegur meirihlutavilji á Alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, sem þó var hafnað á þingi.
Það er ekkert hægt að segja um á þessari stundu hvernig þetta spilast - þvert á móti má segja að óvissan um framvinduna sé eitt af aðalatriðum málsins í dag.
Nema í huga í forsetans.
Því hann virðist eftir verulega íhugun hafa gert það upp við sig að pólitískar afleiðingar, hvort sem þær lúta að efnahagsáætlunum stjórnvalda eða samskiptum við umheiminn, séu aukaatriði þegar forsetinn beitir málskotsréttinum. Ef forseti telur að óvinsældir séu nægar, eða ósamstaða meðal þjóðarinnar sé nógu mikil, þá beri honum að vísa því til þjóðarinnar.
Fyrir vikið getur hann lýst því yfir í yfirlýsingu sinni að lausn Icesave deilunnar við nágrannaríki sé þjóðinni nauðsynleg á sama tíma og stöðvar málið, án þess þó að hann komi fram með neina sýn á hvernig ákvörðun hans geti stuðlað að betri lausn eftir að þjóðin hafnar henni (sem öllum hlýtur að vera nokkuð ljóst að verði niðurstaðan).
