Þverpólitískan hóp til Bretlands
Manni virðist af umræðum að skilningur manna úti í heimi á stöðu Íslands sé eitthvað meiri nú en fyrir ári síðan. Ef til vill felast í því tækifæri til opna aftur fyrir samningaviðræður og lenda samning sem að einhverju leyti er betri.
Ríkisstjórnin getur af augljósum ástæðum ekki bryddað upp á því, enda bundin af þeim samningi sem hún hafði þegar gert, sem og mun reyna að fá samþykktan í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég sé enn ekki fyrir mér að gerist. Kannanir sem benda til meirihlutastuðnings við lögin voru enda framkvæmdar þegar neikvæð umfjöllun erlendis var í hámarki.
Ríkisstjórnin virðins ennfremur líta á sig sem starfsstjórn, sem hafi það eina hlutverk að klára þjóðaratkvæðagreiðsluna, og óljóst hvað tekur við eftir það. Það liggur í rauninni ekki fyrir hvað tekur við eftir höfnun þjóðarinnar á lögunum. Sem skilur eftir ákveðið pólitískt tómarúm.
Sem mætti fylla upp í með því að mynda þverpólitískan hóp sem myndi gera sér ferð til Bretlands. Hæfilega fjölmennur, etv. 5-7 manns, einn þungaviktarmann úr hverjum fjórflokkanna (þó ekki endilega þingmenn) og hagfræðinga. Hópurinn myndi ráða sér öflugt breskt PR-fyrirtæki til halds og trausts og reyna að sveigja lykilmenn til. Halda þyrfti blaðamannafundi, fundi með þing- og embættismönnum, og eft ráðstefnur eða málfundi í háskólum etc. etc.
Lagt yrði upp með skilaboð sem væru e-ð á þá leið að höfnun forsetans hefði ekki aðeins komið til vegna andstöðu við ríkisábyrgð sem slíka, heldur vegna skorts á pólitískri einingu á Íslandi og óánægju með ýmis atriði í samningnum - ennfremur væri það almenn tilfinning á Íslandi að menn hefðu verið kúgaðir til hlýðni frekar en að samið hefði verið á jafnréttisgrundvelli. Og tilgangur þessa hóps væri tvíþættur. Annars vegar að undirbúa jarðveginn hér heima fyrir aðra samningalotu að loknu þjóðaratkvæði, en með öðrum vinnubrögðum og meiri pólitískri sátt milli flokka. Hins vegar að undirbúa jarðveginn í Bretlandi, bæði með því að sýna ráðandi öflum þar að pólitískur vilji væri fyrir því að standa við okkar skuldbindingar, og að Íslendingar væru þegar að eigin frumkvæði byrjaður að huga að næstu skrefum til að klára málið. Jafnframt að kynna málstað íslendinga betur, sem og áhyggjur manna hér af því að núverandi samningur sé ef til vill of þungur bit fyrir okkur til að kyngja.

1.7.2010 kl. 15:47
Sæll.
Er sjaldan sammála þér en þarna hittirðu naglann á höfuðið.
Þurfum að brjótast útúr flokkadráttum, nægur tími fyrir það seinna.
Mbkv,
MJ