Athugasemdir við Orðið
Þekkjandi eitthvað til SUS átaka hlýt ég að gera athugasemdir við nýjasta Orðið á Götunni. Það er algerlega fráleitt að túlka 7 atkvæða tap sem merki um að áhrif Deigluhópsins séu að fjara út.
Ég veit ekki til þess að komið hafi til átakafunda hjá Tý í meira en áratug. Félagið, sem næst stærsta aðildarfélagið í SUS, hefur löngum verið traust vígi “Garðabæjarklíkunnar” eða annarra Deigluandstæðinga, hvaða nafni sem þeir hafa verið nefndir gegnum tíðina. Átökin hafa fyrst og fremst verið í Heimdalli, sem hinn svokallaði Deigluhópur hefur haft mjög óskoruð yfirráð yfir síðan 2004, og þau treystust í sessi frekar en hitt, þegar Árni Helgason sigraði Davíð Þorláksson mjög afgerandi nú í haust.
Þetta eru sumsé fyrsta atlagan sem kemur gegn ráðandi hóp í Kópavogi, og var að því er virðist ansi nálægt því að heppnast. Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir núverandi stjórn SUS ef að hennar traustustu baklandsfélög, eru nærri fallin - en mér þykir líklegt að óánægja með flugferðina til Ísafjarðar í haust sé að þjappa mönnum saman gegn “Garðabæjarklíkunni”.
Það gefur eiginlega augaleið að fyrst Deigluhópurinn gerir nú í fyrsta skipti frá upphafi atlögu að traustu andstæðingavígi, og vantar aðeins sjö atkvæði, þá hlýtur hópurinn að vera að eflast frekar en hitt. Týr í Kópavogi var eitt af lykilfélögunum við framkvæmd þessarar byltingar, ásamt Garðabæ, en flest atkvæðin sem komu með leiguflugi komu í gegnum þessi félög.
Það er forvitnilegt orðalag að tala um “eftirminnilegan” sigur á Ísafirði í haust: Sigurverararnir skipulögðu altso leynilega flugferð með atkvæði sem fóru í hálfsdagsferð til Ísafjarðar og lentu nokkrum klukkustundum áður en kjörfundur hófst. Byltingarframboðið var ekki fullmannað, og þar sem stuðningsmenn Fanneyjar Birnu drógu framboð sín til baka er stjórn SUS ekki fullmönnuð, og hefur til dæmis enga fulltrúa frá NA-kjördæmi. Nýkjörinn formaður var ekki tilbúinn að svara að spurningum um kosningum og neitaði sjónvarpsviðtali daginn sem hann var kjörinn. Það eru til mörg betri lýsingarorð en eftirminnilegt til að lýsa þessu. ;)
