Íhaldið, talnagrúsk
Á vef xd.is er hægt að sjá .pdf með öllum tölum fyrir efstu tíu frambjóðendur.
Þar sést til dæmis að Gísli Marteinn Baldursson getur í sjálfu sér vel við unað þar sem hann er næstur Júlíusi Vífli í kjöri um 2. sæti, meðan að Þorbjörg Helga fær fæst atkvæði þar af þeim sem kepptust um sætið, með 20. atkvæðum minna en Geir Sveinsson. Júlíus er með nokkuð traust forskot á keppinauta sína, og 300 atkvæðum ofar en Gísli Marteinn.
Á hinn bóginn fer Gísli Marteinn sjaldnast á blað af borgarfulltrúunum. Um 40% kjósenda virðasta sleppa honum þegar 5554 atkvæði hafa verið talin - hann er með nánast sömu heildaratkvæða tölu og nýliðinn Hildur Sverrisdóttir (sem er út af fyrir sig mjög góður árangur hjá henni).
Jórunn Frímannsdóttir og Áslaug María eru mjög jafnar og skipta ef til vill aftur sæti síðar í talningunni, en annars sýnist mér ólíklegt að þetta breytist frekar.

1.24.2010 kl. 12:40
Mér finnst að Gísli Marteinn megi alveg hugsa sinn gang í pólitík, hann sést ekki nema rétt fyrir kosningar, og þá eingöngu með einhver skipulagsmála gæluverkefni.
Gísli Marteinn á, að mínu mati, ekki lengur erindi í pólitík, hans tími er kominn og farinn og hann ætti að hleypa öðrum að.
Hann hefur setið við í nokkuð mörg ár og ekkert afrekað, hann er búinn að vera og nýtti sér ekki þau færi sem gáfust.