Punktablogg
Hannes segist hafa ráðfært sig við Gunnlaug Sævar, og skrifað Davíði Oddssyni bréf til að útskýra afstöðu sína til Falun Gong mótmælanna frekar. Heldur hann í alvörunni að þetta sannfæri menn um að frásögn Hreins sé uppspuni frá rótum, eða því sem næst? Síðast þegar ég vissi var það sérsvið skrímsladeildarinnar, og hyggilegt prinsippatriði að ljúga aldrei, bara með hálfsannleik og orðhengilshætti.
Þessi deila þeirra er annars að opinbera takmörk hugmyndarinnar um frjálsan markað. Báðir aðilar tapa meira eftir því sem þetta heldur lengur áfram og samt geta þeir ekki samið um að hætta þessu. Epískt.
—–
Talandi um Falun Gong. Nokkrum vikum eftir mótmælin kom skoska landsliðið í fótbolta hingað til að leika við það íslenska og Már Örlygsson skrifaði þetta flotta ádeilublogg sem einhverjir muna sjálfsagt eftir. Alger klassík.
Af nýlegri gæðapistlum hlýtur maður að benda á Deiglupistil Þórlinds Kjartanssonar í dag: Ég vaknaði ekki of seint. Dagurinn byrjaði of snemma.
—–
Gunnar I. Birgisson fallinn - það eru í sjálfu sér stórtíðindi. Leitt að hann skuli ekki geta tapað með reisn.
Hann er áreiðanlega að íhuga sérframboð, eða í það minnsta að leiða hugann að því. Hann er ekki týpan sem gefst auðveldlega upp. Efast samt um að hann kýli á það, enda vandfundinn sá flokkur sem hefur minni þolinmæði gagnvart slíku en íhaldið. Þó Gunnar sé um margt öflugur er hann enginn Albert Guðmundsson, og þar að auki hlýtur hann að átta sig á því að það er engin leið fyrir hann að ná bæjarstjórastólnum með slíku framboði, jafnvel þó allt heppnist eins og best verður á kosið.
—–
Horfði á Gettu Betur í gær og sárnaði það fyrir hönd bernskuslóðanna að hvorugt liðið gat giskað á hvaða nesi Haffjarðará og Straumfjarðará tilheyrðu. Hélt að örnefni væru eitt af því sem væri æft í þaula. Það er ekki eins og Haffjarðaráin sé einhver smáspræna.
—-
Björn.is fagnar fimmtán ára bloggafmæli. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei litið á Björn sem bloggara, enda get ég ekki séð að skrif verði sjálfkrafa blogg þó þau birtist á netsíðu og að skrifað sé með reglulegum hætti. Þessi skrif eru frekar í ætt við pólitíska pistla að formi til. Hann fær samt prik fyrir dugnaðinn. [Edit: Björn talar ekki sjálfur um blogg, heldur tók ég það upp að óathuguðu máli af linkafyrirsögninni á Eyjunni sem segir: "Met. Björn hefur bloggað í 15 ár" . ]
—-
Aftur í Falun Gong mótmælin. Hér er auglýsingin fræga, eða .pdf af henni (SBS fær þakkir fyrir að benda mér á linkinn). Ég var ekki viss um það hvort ég hefði verið á henni á sínum tíma, og var ánægður að hitta mig fyrir í svo góðum hópi fólks. ;)

2.22.2010 kl. 13:57
Hrikalega vorum við miklar hetjur frelsis og mannréttinda…
2.22.2010 kl. 16:53
Þótt laxveiðimenn geti svarað þessu með Snæfellsnesárnar tvær án umhugsunar er alveg eðlilegt að aðrir taki sér 5-8 sekúndur í að átta sig á þessu. Ég er viss um að bæði lið hefðu svarað rétt hefðu þetta ekki verið hraðaspurnignar.