gúglséníið Jónas.is

Jónas Kristjánsson hæðist af sínu alkunna lítillæti af þeirri hugmynd að hestar sem þekkja mannalykt verði þjálfaðir til björgunarstarfa.

Hef lítið vit á hestum, enda á ég svo fáa, að ég get talið þá. Því kom flatt upp á mig, að þjálfa ætti þefhesta til að finna týnt fólk á fjöllum. Forsíða Fréttablaðsins fjallaði um þetta í gær. Skildist mér, að gangnahestar séu nærri því að þefa fé uppi í haustleitum. Fræði, sem ég hef aldrei heyrt. Brá mér á Google og fann ekkert um þetta, svo að þetta er líklega uppfinning í Borgarbyggð. Fleiri húsdýr en hestar hafa dulda hæfileika. Ég hef lengi haft áhuga á að selja sauðfé til erlendra herja. Kindur hafa dulda hæfileika til að komast yfir rimlahlið og gaddavírsgirðingar. Gagnlegur kostur í innrásum.

Líklega er Jónas ekkert séní þegar kemur að notkun leitarvéla. Ég fór á google og sló inn “searh horse finds people by smell” og þar kom þessi grein í 8. sæti.

Þannig að teljararnir eru ekki einu notforritin þar sem Jónas.is gæti aukið við kunnáttu sína. Og þó hann eigi allþónokkra hesta getur hann greinilega lært sitthvað fleira um þá líka - enda alltaf gaman að hafa augun opin og læra nýja hluti. ;)

6 tjásur to “gúglséníið Jónas.is”

  1. Friðjón tjáði sig:

    það er pínu fyndið Guðmundur að leitarstrengur þinn á gúglinu sé stafsettur eins og hann er.

    Það eru greinilega fleiri gúglséní en Jónas. :)

  2. Svenni tjáði sig:

    Minnir óneitanlega á þegar Davíð sagðist hafa gúglað Svein Harald eftirmann hans í embætti Seðlabankastjóra og ekki hafa fundið stafkrók um hann þar.

  3. svansson tjáði sig:

    Takk fyrir ábendinguna Friðjón - já og hjartanlega til hamingju. Þú hefur áreiðanlega setið um mig lengi og beðið eftir svona tækifæri. ;)

    Mér er það reyndar nokkuð óvæntur heiður að vera uppnefndur gúglséní fyrir augljósa innsláttarvillu. …

  4. Jóni tjáði sig:

    þetta er rétt,ég átti hest sem fann sjálfur (lausa)fé á örfæfum sjálfur en ég var ófær um að stjórna sökum ölfunnar,hik

  5. MargrétJ tjáði sig:

    Íslenskir hestar hafa örugglega þroskað með sér gott og mikið þefnæmi. Það er nefnilega í tísku hér að blinda hesta. Toppur faxins látinn vaxta niður á granir. Þetta er náttúrlega bara “dyrplageri” á hæsta stigi.
    Íslenskir knapar og hestaeigendur velja tískuna frekar en velferð hesta sinna.
    Þefskynið ofvex örugglega í takt við sjónleysið.

  6. Friðjón tjáði sig:

    Yup.
    Þannig eyði ég dögum mínum. Á refresh takkanum.

    Nú get ég farið heim.
    Takk.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...