Forvitnileg yfirsjón
Eiríkur Bergmann skrifar lærðan pistil um dapurleg örleg þeirra sem skipta um flokk og fara yfir í Sjálfstæðisflokkinn eftir afhroð Gísla S. Einarsonar í prófkjörinu á Akranesi.
Raunar minnist ég ekki nokkurs stjórnmálamanns sem hefur almennilega tekist að fóta sig í Sjálfstæðisflokknum eftir að hafa sölsað yfir úr öðrum flokki.
Það er reyndar rétt hjá honum að Íhaldið hefur oft tekið þunglega á móti fólki sem kemur annars staðar að. Eftir sem áður er rétt að halda því til haga að í sama prófkjöri tók þátt Karen Jónsdóttir sem hafnaði í 3. sæti. Hún skipti úr frjálslynda flokknum yfir í xD á miðju þessu kjörtímabili. Forvitnileg yfirsjón þar á ferðinni hjá svo rómuðum nákvæmnismanni. ;)

3.1.2010 kl. 16:06
Þetta er líklega bæði rangt og rétt. Margir þeirra sem hafa verið í framboði fyrir aðra flokka hefur ekki gengið vel að komast í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn. En þó nokkur dæmi eru um að menn komi úr öðrum flokkum og gangi ágætlega hjá Sjálfstæðisflokknum og er þar líklega skemmst að minnast Illuga Gunnarssonar, sem kom úr Alþýðubandalaginu sáluga, en hann hafði þó að ég best veit ekki verið í framboði, en verið nokkuð ötull í starfi ungliðahreyfingarinnar.