Dularfullt vesen á flakkara
Jæja, nú vantar mig gáfuleg innlegg frá tölvu- og tækjagúrúum.
Ég á rúmlega ársgamla Toshiba tölvu sem keyrir á Windows Vista. Hún “bluescreenar” undireins þegar ég tengi hana við flakkara sem ég á frá fyrri tíð, og á villumeldingunni má skilja að það sé windows sem slökkvi á öllu til að koma í veg fyrir skemmdir.
Flakkarinn geymir fyrst og fremst öryggisafrit og gömul gögn, og þar sem mig hefur ekki vantað neitt af honum fyrr en núna hef ég ekki gert neitt í þessu, fyrr en í gær, þegar ég leit við hjá tölvulögnum félaga. Hann grunaði að flakkaraboxið væri etv búið að skemmast - en eftir nokkrar tilraunir varð hann alveg ráðalaus, og orðlaus líka.
Í stuttu máli var ekkert að harðadisknum og heldur ekki flakkaranum. Við tengdum hann við makka og aðra PC tölvu, sem keyrði á windows XP, og það komu engin vandamál upp. Mín tölva var líka tengd við annan flakkara, og nokkra USB lykla sem gekk með öllu áfallalaust fyrir sig.
Þannig að tölvan mín er í besta lagi og þessi tiltekni flakkari er í fullkomnu lagi líka. Nema að þau virðast ómögulega geta talað saman. Einhver sem getur útskýrt hvert vandamálið gæti verið, og þá ekki síður hvað ég get gert í málinu?

3.3.2010 kl. 16:28
Windows Vista var búið til úr gömlum hjólbörum og gúmmískóm.
Þú verður greinilega að uppfæra í Windows 7.
3.3.2010 kl. 16:30
Uppfærðu Wndows Vista, náðu í SP2 fyrir Windows Vista hérna.
http://www.microsoft.com/downloads/details.aspx?FamilyID=a4dd31d5-f907-4406-9012-a5c3199ea2b3&displaylang=en
Byrjaðu á þessu. Annars geturu sent mér tölvupóst ef þú þarft meiri hjálp.
3.3.2010 kl. 16:42
Takk fyrir þetta. Er þegar byrjaður að sækja SP2 og vona það dugi.
3.3.2010 kl. 17:26
(Afsakid utlenska stafi …)
Thetta gaeti verid galladur velbunadur i tolvunni - modurbord, minni, aflgjafi. Ekki endilega viss um ad thad se malid.
Sammala thvi ad thetta gaeti verid Vista sem tharf uppfaerslu.
Thetta gaeti lika verid onytur rekill. Sem sagt rekillinn (driverinn) sem Vista tharf ad nota til ad tala vid USB graejuna. Get imyndad mer ad sa rekill se ekki raestur upp fyrr en ad tolvan faer i samband thennan bunad sem hun telur ad eigi ad nota thann rekil. Reklinum er fyrad upp, og hann onytur, bjogun verdur a grunnvirkni kerfisins (a “kernel level”), og velin neglist i bluescreen.
Thu gaetir profad ad raesa velinni upp med Linux a geisladiski eda USB-lykli. T.d. Ubuntu Linux. Thad raesir sig upp i skjabordsvidmot an thess ad snerta thad sem er inni a tolvunni fyrir. Ef velin, keyrandi linux, frikar ut thegarflakkarinn er tengdur, tha er oruggt ad thad se velbunadur sem er ad strida ther. Annars er thad Vista sem er med einhverjum haetti ordid truflad a gedi.
3.3.2010 kl. 18:34
SP2 rúlar og vandamálið er leyst. Hef kommentin frá Kristleifi í handraðanum þegar hún blúskrínar næst. :)
3.3.2010 kl. 18:36
Vá hvað ég á mikið eðaltónlist þarna sem ég var búinn að gleyma. Upprifjunin ætti að endast mér til vorsins. Af hverju var ég ekki búinn að ganga í þetta fyrr?