Bjargar Jón Gnarr íhaldinu?

Það hafa fáir viljað segja það upphátt, en í rauninni trúir enginn öðru en að Sjálfstæðisflokkurinn sé á leiðinni frá völdum í Reykjavík.

Ekki það að menn hafi haft mikið út á flokkinn að setja eftir að Hanna Birna tók við borgarstjórastólnum. Hún hefur siglt mjög vel í gegnum þetta, og samkvæmt könnun dagsins hefur hún meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn.

En pólitík er pólitík. Það er á brattann að sækja fyrir framsóknarhækjuna, og jafnvel þó hún næði inn manni er Einar Skúlason líklegri en hitt til að vinna með vinstri flokkunum. Það mun enn vera hundur í vinstri flokkunum, og engin stemmning fyrir því hjá Samfylkingunni að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.

Og það eru engar líkur á því að íhaldið nái hreinum meirihluta upp á gamla mátann, og nær lagi að baráttan standi um að ná 7. manninum inn. Þannig að staðan er ekki góð.

Nema ef vera skyldi fyrir glæsilega niðurstöðu Besta flokksins í skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Það liggur fyrir að næstu ár verða erfið í borgarstjórn, enda þarf að skera niður þar eins og annars staðar. Það er útilokað að nokkur stjórnmálamaður með snefil að veruleikaskyni vilji taka við völdum í svona árferði í trausti stuðnings frá grínframboði - og hvað gerist þá ef að Besti flokkurinn nær tveggja manna oddaaðstöðu í borgarstjórn.

Jú - það verður de facto útilokað að mynda meirihluta í borgarstjórn nema með Sjálfstæðisflokknum, og þá gildir einu hvort hann fær sex eða sjö fulltrúa.

Þannig að ég leyfi mér að efast um að stjórnarandstaðan í höfuðborginni hafi húmor fyrir uppátækinu. …

2 tjásur to “Bjargar Jón Gnarr íhaldinu?”

  1. hallur tjáði sig:

    Það er nokkuð öruggt samkvæmt þessari könnun að Einar Skúla er inni - vanta 0.1% skv. þessari könnun þar sem 40% eru óákveðnir. Það er nokkuð öruggt ef litið er til skoðanakannanna á þessum tíma gegnum tíðina.

    En það er rétt að Jón Gnarr gæti reddaðíhaldinu, því það er væntanlega erfiðara að mynda stjórn Smfylkingar, VG, Jóns Gnarr og xB. Slík staða gæti þvingað Eínar í að halda sama stjórnarmunstri - enda hefur það gengið vel!

  2. naxokurijeg tjáði sig:

    naxokurijeg…

    Download mp3 with Children of the Corn

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...