Furðulegir SUS styrkir

Ég get ekki sagt annað en að þessi frétt komi mér í opna skjöldu. En það á eflaust eitthvað meira eftir að koma í ljós hvernig þessum styrkjum var háttað.

Varðandi þá Borgar og Þórlind er rétt að geta þess að þeir hafa báðir margra ára starfsreynslu sem blaðamenn, bæði á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Ennfremur hafa þeir stússast í pólitík í samanlagt yfir þrjátíu ár, og eru tiltölulega sjóaðir “spindoktorar”. Það væri algerlega út í hött ef þeir væru að ljúga í þessu viðtali. Bæði eru þeir fullfærir um að taka einhvern gáfulegri spuna á þetta, en þó fyrst og fremst af þeirri einföldu ástæðu að þeir eru nógu sjóaðir til að vita hvað það er heimskulegt að ljúga í fjölmiðlum.

6 tjásur to “Furðulegir SUS styrkir”

  1. Friðjón tjáði sig:

    Borgari og Þórlindi til varnar verður að benda á að 25 milljónir af 33 frá Landsbankanum er stóri Steinþórs Gunnarss Steina í Kók styrkurinn.

    Þess vegna er ekkert skrítið að þeir kannist ekki við málið ef þetta er eitthvað sem fór inn á reikning Sus fyrir misskilning. Borgar þarf kannski að spyrja fyrrv. framkvæmdastjóra sambandsins um þessi mál.

  2. svansson tjáði sig:

    Jájá, og hinir eru áreiðanlega tengdir alþingis- og sveitastjórnarkosningum árin 2005 og 2006, og því ekki farið í rekstur sambandsins.

    Síðan eru engir styrkir að koma í formannstíð Þórlinds.

  3. JR tjáði sig:

    Það er með skýringar á þessum peningum eins og öllu öðru vegna bankahrunsins, það veit engin neitt og það skilur engin neitt !

    En, það eru allir á tugmilljóna launum, því ábyrgðin er svo mikil !

    Það hefur ekkert breyst , þið eruð allir aular og verðið það áfram !

  4. svansson tjáði sig:

    JR: Bestu þakkir fyrir þetta málefnalega komment - þó mér sýnist það reyndar vera almenns eðlis án þess að tengjast upprunalegu bloggfærslunni sérstaklega. ;)

  5. svansson tjáði sig:

    Nema nottla þér hafi borist inherjarupplýsingar um að formaður SUS sé á tugmilljónalaunum. ;)

  6. photo tjáði sig:

    Á meðan félög og stjórnmálaflokkar þurfa lítið sem ekkert að gera grein fyrir bókhaldi, að þá liggur það í augum uppi að þægilegasta leið til að koma fjármagni undan skatti, er að skrá það á slík félög!

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...