ótaktísk mótmæli
Margir hafa úttalað sig um það hversu vafasamt það sé að mótmæla daglega fyrir utan heimili fólks, og ég hef ss. litlu við það að bæta.
Nema því hvað þetta er með eindæmum ótaktískt og vinnur ef eitthvað er gegn markmiði mótmælanna, sumsé að knýja viðkomandi stjórnmálamann til afsagnar.
Stjórnmálamenn segja sjaldnast af sér vegna mótmæla hjá fólki úti í bæ eða greinaskrifa í blöðin, heldur vegna þrýstings innan frá í eigin baklandi eða flokki. Guðmundur Árni Stefáns hökti lengi í stól heilbrigðisráðherra á sínum tíma, en hætti á endanum þegar nokkrir flokksfélaga hans lýstu því yfir að þeir myndu greiða atkvæði með vantrauststillögu á hann sem var væntanleg.
Þorgerður Katrín hættir eftir að hafa orðið fyrir gríðarlegum þrýstingi innan flokksins, sem var tímasettur rétt fyrir flokksráðsfund.
Sama má segja um búsáhaldabyltinguna - ríkisstjórnin fór ekki frá vegna mótmælanna, heldur vegna þess að grasrótin í Samfylkingunni ásamt nokkrum óbreyttum þingmönnum, beygði forystuna, meðan að mótmælaaldan stóð sem hæst.
Eigi mótmælin að ná fram markmiðum sínum þurfa þau að kynda undir þrýstingi innan Samfylkingarinnar, ekki að afla samúðar. Þarna fer sumsé allt saman, hæpinn málstaður, lélegir mannasiðir og lítil pólitísk dómgreind. Er þá ekki til eitthvað gott kenniorð sem lýsir þessum “mótmælendum”?

4.24.2010 kl. 19:24
Ég held að greiningin taki ekki mið af mikilvægu atriði. Þ.e. því að í óróleikaástandi er hægt að hafa áhrif á innanflokksástandið með mótmælum eins og þessum.
Ef Steinunn Valdís er dag eftir dag í neikvæðu ljósi í fjölmiðlum getur flokkurinn hugsað sem svo að hún sé ekki á vetur setjandi.
Samfylkingarmenn snérust gegn Imbu og stjórnarsamstarfinu eingöngu vegna mótmælanna.
Þannig að það er alveg ljóst að svona mótmæli hafa virkað og geta virkað. Þótt fæstir sjái sóma sinn í að gefa eftir fyrr en þeir finna fyrir rýtingunum í bakinu.
4.24.2010 kl. 19:33
Ég er hræddur um að þú hafir algerlega misst af punktinum.
Það er algerlega rétt að mótmæli geti haft áhrif á innanflokksástand, og að skynsamlegri mótmæli ættu í rauninni að gera Steinunni Valdísi erfitt fyrir.
Þessi mótmæli við heimili hennar ganga hins vegar of langt. Afla henni stuðningsgreina og vinna gegn því að einangra hana. Þess vegna eru þau ótaktísk.
4.24.2010 kl. 20:29
Ég er ekki viss um að þessi greining sé að öllu leyti rétt hjá þér.
Í fyrsta lagi er ég ekki fullkomlega sannfærður þegar því er slegið föstu að _þessi_ mótmæli gangi of langt, aðallega vegna þess að það ganga einhvernveginn öll mótmæli alltaf of langt.
Og öll mótmæli afla alltaf því sem mótmælt er stuðningsmanna. Öll mótmæli hafa þau áhrif að stuðningsmenn þess sem mótmælt er þjappa sér þéttar saman.
Í endann held ég að það sé erfitt að dæma mótmæli fyrr en það liggur fyrir hvort þau bera árangur eða ekki og því mjög erfitt ef ekki útilokað að fella dóma um hvort mótmæli gangi of langt eða ekki.
Tilgangur mótmæla er að vekja athygli á hlutum, baráttumálum. Og ef þessi mótmæli eru dæmd út frá því hafa þau náð markmiði sínu: Fólk er að tala um Steinunni Valdísi! Fólk sem hugsanlega hafði ekki hugmynd um hana eða hennar styrkjamál er allt í einu að kynna sér af hverju þetta fólk er að mótmæla. Fólk sem var fullkomlega indifferent gagnvart Steinunni Valdísi hefur nú myndað sér skoðun á henni. Sumir hafa vafalaust fyllst samúð með henni - en ég held að jafnvel margir þeirra sem nú hafa samúð með henni útaf mótmælunum hafi líka mjög neikvæðar skoðanir á henni sem stjórnmálamanni.
Mótmæli geta aldrei virkað ein og sér: Ef það gerist ekkert annað en að nokkrir furðufuglar fari og standi fyrir utan heimili hennar eða einhverra annarra stjórnmálamanna gerist ekkert. En ef það fer líka af stað umræða - fjölmiðlar fara að fjalla um málefni viðkomandi og spyrja af hverju er verið að mótmæla fær viðkomandi á sig neikvæða athygli og ef hún er nægilega mikil neyðist viðkomandi til að segja af sér.
Þú verður líka að athuga að yfirleitt er fólk sem stendur í mótmælum eins og þessum fólk sem er á jaðri stjórnmálaumræðunnar. Fólk sem ekki tekur virkan þátt í flokkstarfi eða skrifar greinar sem fást birtar í dagblöðum eða heldur úti víðlesnum bloggsíðum. Þetta er fólk sem hefur engin tök á að hafa áhrif á stjórnmálaumræðuna. Aðra en að standa með gjallarhorn og potta og pönnur og gera hávaða.
4.24.2010 kl. 20:33
Samfylkingarfólk mun ekki snúast gegn Steinunni vegna mótmælanna. Þvert á móti. Enda er Steinunn ekki sek um neitt.
Mótmælendurnir gera sig hins vegar að fíflum.
4.24.2010 kl. 20:35
Afsakið ef þetta er að koma inn tvisvar: Ég gat ekki séð hvort athugasemdin fór inn í fyrra skipti!
Ég er ekki viss um að þessi greining sé að öllu leyti rétt hjá þér.
Í fyrsta lagi er ég ekki fullkomlega sannfærður þegar því er slegið föstu að _þessi_ mótmæli gangi of langt, aðallega vegna þess að það ganga einhvernveginn öll mótmæli alltaf of langt.
Og öll mótmæli afla alltaf því sem mótmælt er stuðningsmanna. Öll mótmæli hafa þau áhrif að stuðningsmenn þess sem mótmælt er þjappa sér þéttar saman.
Í endann held ég að það sé erfitt að dæma mótmæli fyrr en það liggur fyrir hvort þau bera árangur eða ekki og því mjög erfitt ef ekki útilokað að fella dóma um hvort mótmæli gangi of langt eða ekki.
Tilgangur mótmæla er að vekja athygli á hlutum, baráttumálum. Og ef þessi mótmæli eru dæmd út frá því hafa þau náð markmiði sínu: Fólk er að tala um Steinunni Valdísi! Fólk sem hugsanlega hafði ekki hugmynd um hana eða hennar styrkjamál er allt í einu að kynna sér af hverju þetta fólk er að mótmæla. Fólk sem var fullkomlega indifferent gagnvart Steinunni Valdísi hefur nú myndað sér skoðun á henni. Sumir hafa vafalaust fyllst samúð með henni - en ég held að jafnvel margir þeirra sem nú hafa samúð með henni útaf mótmælunum hafi líka mjög neikvæðar skoðanir á henni sem stjórnmálamanni.
Mótmæli geta aldrei virkað ein og sér: Ef það gerist ekkert annað en að nokkrir furðufuglar fari og standi fyrir utan heimili hennar eða einhverra annarra stjórnmálamanna gerist ekkert. En ef það fer líka af stað umræða - fjölmiðlar fara að fjalla um málefni viðkomandi og spyrja af hverju er verið að mótmæla fær viðkomandi á sig neikvæða athygli og ef hún er nægilega mikil neyðist viðkomandi til að segja af sér.
Þú verður líka að athuga að yfirleitt er fólk sem stendur í mótmælum eins og þessum fólk sem er á jaðri stjórnmálaumræðunnar. Fólk sem ekki tekur virkan þátt í flokkstarfi eða skrifar greinar sem fást birtar í dagblöðum eða heldur úti víðlesnum bloggsíðum. Þetta er fólk sem hefur engin tök á að hafa áhrif á stjórnmálaumræðuna. Aðra en að standa með gjallarhorn og potta og pönnur og gera hávaða.
4.24.2010 kl. 20:44
… gaman að ótaktískum mótmælagreiningum himinblárra íhaldsmanna :) Nú á bara að rembast við að endurskrifa söguna að gömlum og góðum íhaldssið.
4.24.2010 kl. 23:25
algjört rugl. Heiftarleg mótmæli geta neytt fólk til að segja af sér. Það er taktískast að hafa mótmæli sem kröftugust. Ríkisstjórnin fór einmitt frá vegna mótmælanna.
“heldur vegna þess að grasrótin í Samfylkingunni ásamt nokkrum óbreyttum þingmönnum, beygði forystuna, meðan að mótmælaaldan stóð sem hæst.”
Já og af hverju heldurðu að grasrótin í Samfylkingunni hafi beygt forystuna? Nú af því að mótmælin voru svo svakaleg!
4.24.2010 kl. 23:53
Magnús: Ég biðst forláts á að hafa ekki verið heima þegar þú kommentaðir. Þín komment ættu héðan í frá, fyrst ég er búinn að samþykkja þig einu sinni, að birtast samstundis.
Annars takk fyrir langt komment, þó stíllinn sé reyndar í óþarflega föðurlegum áminningartón á köflum. ;)
Ég verð að viðurkenna að mér finnst það heldur þunn röksemdafærsla að það sé ekki hægt að taka afstöðu til þess hvort mótmælin gangi of langt því það einhvern veginn gangi öll mótmæli of langt. Og skil ég þig rétt að þú fyrir þitt leytir getir ekki gert það upp við þig hvort þau gangi og langt eða ekki, fyrr en það kemur í ljós hvort þau virka?
Ég er alveg til í umræðu um það hvar mörk eigi að liggja - en hljótum við ekki báðir að geta fallist á að það verði að vera til einhver mörk burtséð frá því hver útkoman er. Að tilgangurinn helgi ekki meðalið.
Við getum deilt um það hvort heimili fólks eigi að vera off limits. En spurningin er hins vegar af hverju það sé nauðsynlegt að mótmæla þar - það er hægt að ná öllum þeim markmiðum sem þú telur upp fram án þess að trufla heimilisfriðinn með mótmælum annars staðar.
4.24.2010 kl. 23:55
En minni greiningu til stuðnings, þá hef ég fylgst ágætlega með fjölmiðlum undanfarna daga og sýnist vera mun meira umtal um að þetta gangi of langt, frekar en að maður verði var við þrýsting á Steinunni að segja af sér. En linkar á fréttir sem ég gæti hafa misst af eru vel þegnir.