Meðmæli fyrir Pressuna
SME greindi frá því í að gær að Halldór Ásgrímsson hefði hafnað viðtali við Mannlíf fyrir réttu ári síðan, en hann vildi heldur ekki tjá sig við blaðamann Vísis.is í fyrradag um rannsóknarskýrsluna. Bloggfærsla SME er með fyrirsögnina Vondir fjölmiðlar:
Seint á árinu 2008 eða snemma árs 2009 hafði ég samband við Halldór Ásgrímsson og vildi fá að taka við hann viðtal sem ég hugðist birta í Mannlífi. Samskipti okkar fóru fram í netpóstum. Nokkur bréf voru skrifuð. Niðurstaða Halldórs var sú, að eftir að hafa lifað og starfað um hríð í Danmörku hafði hann séð muninn á hversu miklu betri danskir fjölmiðlar voru, en þeir íslensku.
Á þeim forsendum afþakkaði hann viðtalið. Hann svaraði hinsvegar ekki hvort hann sæi mun á ágæti danskra og íslenskra stjórnmálamanna.
Reyndar vekur þetta svar Halldórs spurningar um það hvort það geti verið að utanríkisráðherra til margra ára hafi ekki fylgst með neinum erlendum fjölmiðlum fyrr en hann var fluttur til Danmerkur. En eftir sem áður hljóta það að teljast mikil meðmæli fyrir Pressuna að heimsborgarinn Halldór Ásgrímsson, eftir áralangar samanburðar- og gæðarannsóknir á dönskum fjölmiðlum, kjósi hana til að tjá sig um rannsóknarskýrsluna. [1|2|3|4|5]*
Ritstjórar annarra fjölmiðla hljóta jafnframt að spyrja sig hvað þeir séu að gera vitlaust.
*Jújú, ég geri fastlega ráð fyrir því að fleiri fréttir af skoðunum Halldórs birtist eftir því sem líður á daginn.

4.27.2010 kl. 12:40
Þetta er drepfyndið.
4.27.2010 kl. 12:52
taktak. Þessi færsla skrifaði sig eiginlega sjálf. :þ