Sérstakt gildismat

Þeir Ingólfur Helgason og Steingrímur Kárason vissu áreiðanlega hverju þeir gátu búist við þegar þeir flugu til landsins til að mæta í yfirheyrslu. Tafarlaust gæsluvarðhald og kjölfarið ákæra, síðan farbann þar til dómur hefur fallið - og það ekkert frekar þeim í hag. En þeir mættu samt.

Ekki það þeir verðskuldi sérstaklega hrós fyrir það - þvert á móti hefði maður haldið að þetta sé nokkuð borðleggjandi ákvörðun. Dæmd refsing fyrnist ekki ef maður er landflótta nægilega lengi - og það hljómar ekki eins og sannfærandi möguleiki fyrir menn af þessu kaliberi að vera landflótta ævilangt.

Útrásarvíkingarnir eru einfaldlega ekki nógu margir né nógu nánir innbyrðis til að mynda samfélag landflótta Íslendinga, eins og til dæmis ólígarkar hafa gert í London (og þeir eru auðvitað heldur ekki í bráðri lífshættu ef þeir snúa heim). Og maður hefði haldið að allir væru þeir með sterk vina- og fjölskyldubönd hér heima.

Þótt þetta sé ekki peningaleg ákvörðun er þetta samt “bisness” - og maður þarf að vera frekar öfugsnúinn í hjartanu til að líta á ævilanga útlegð (40+ ár) sem betri kost en að sitja nokkur ár í hvítflibbafangelsi.

Látum lögleysuna hjá Sigurði Einarssyni liggja milli hluta. Veltum frekar fyrir okkur gildismatinu sem lesa má út úr þessu, að vera tilbúinn að fórna að verulegu leyti öllum félagslegum tengslum hér á Íslandi frá langri ævi, eins og þau skipti minna máli en einhverjir peningar á leynireikningum. Og kannski kemst maður í leiðinni spönn nær því að skilja hvernig þetta allt saman gat gerst.

3 tjásur to “Sérstakt gildismat”

  1. Gunnar J tjáði sig:

    Það getur vel verið að maður sé að vanmeta peningana á leynireikningunum.

    Svo eru flestir þessir menn búnir að vera sama og útlægir frá Íslandi frá hruni og þeir því vanir að vera úti. Þarf ekki að vera það mikil breyting að geta ekki komið til Íslands.

  2. Andrés tjáði sig:

    Væri miklu meira virði fyrir alla sem eru í þessari stöðu að skila öllu sem þeir eiga og byrja upp á nýtt á Íslandi.

    En hið ljúfa líf virðist of ávanabindandi til að menn geri þetta.

  3. svansson tjáði sig:

    Kannski ekki alveg öllu. ;)

    Ég er ekki viss um að þeir hafi upp til hópa nægilega sterka sjálfsmynd til að gera það.

    Ég man til dæmis eftir drottningarviðtalinu sem Bjarni Ármanns mætti í. Ég held að hann hafi í alvöru verið að reyna, og að hann hafi gengið eins og langt og hann persónulega gat á þessum tímapunkti. Ég man ég hugsaði með mér að þetta væri eiginlega ekki nóg, en maður hlyti samt að gefa honum kredit. Og að maður gæti eiginlega ekki ætlast til þess af nokkrum manni að hann yrði heiðarlegri við aðra en við sjálfan sig.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...