Könnun: Finnst aumkunarverðari Íslendingur?

Það er langt síðan ég bryddaði síðast upp á skoðanakönnun. En svona fyrst það sem brennur heitast á Bubba Morthens þessa dagana er að verja útrásarvíkinga en hamast á Sindra Eldon (enda augljóslega mál málanna í dag hvort hann getur spilað á bassa eða ekki) hlýtur maður að spurja sig:

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...

Ef einhverjum dettur aumkunarverðari Íslendingur í hug má gjarnan koma af stað umræðu í kommentakerfinu, helst undir fullu nafni þó. ;)

13 tjásur to “Könnun: Finnst aumkunarverðari Íslendingur?”

  1. Daði tjáði sig:

    Bubba er hálfgerð vorkunn. En þeir eru nokkrir í sömu sveit settir, HH Gissurarson, Friðjón á Eyjunni, Ólafur Arnarson, Sigurður G. Guðjónsson, Davíð Oddson, Brynjar Níelson, Björn Bjarnason, Styrmir Gunnarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Bjarni Benediktsson, Villi Vill og þau 25% þjóðarinnar sem trúa þessu fólki í blindni og ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þrátt fyrir allt sem á undan er gengið.

    PS; Vinsamlegast ekki nota bendla mig við kommúnisma, sósíalisma eða Samfylkinguna bara út af því að ég bendi á nekt keisarans. Ég kaus XD í síðustu borgarstjórnarkosningum og m.a.s. eina ríkisstjórn Davíðs Oddsonar. Fool me once, shame on you, fool me twice…

  2. svansson tjáði sig:

    Hálfgerð vorkunn segirðu.

    Er það ekki orðabókarskilgreiningin á aumkunarverður, að það sé einhver sem maður ætti hálfpartinn að vorkenna, en manni líður bara alls ekki þannig. ;)

    Og ég hef aldrei kallað neinn kommúnista eða e-ð þaðan af verra nema hann eigi það skilið. Þú verður að gera eitthvað meira af þér til að fá þannig stimpil en að skilja Stefán Ólafsson og Þorvald Gylfason útundan í upptalningunni. ;)

  3. hlin tjáði sig:

    Valmöguleikarnir í þessari skoðanakönnun ættu að vera “nei” og “jú”. Eins og könnunin er sett upp núna er varla hægt neitt annað í boði en að segja nei.

  4. svansson tjáði sig:

    Ég stend við þessa útgáfu, enda alltaf veikleikamerki að viðurkenna yfirsjónir, mistök eða lögbrot. ;)

  5. Bobbi tjáði sig:

    Bubbi er aumkunarverður en þó bara hálfdrættingur miðað við Davíð Oddsson og taglhnýtinga hans.

  6. svansson tjáði sig:

    Bobbi, ég er mjög ósammála. Er alls ekki að verja DO og co. Aumkunarverður er bara engan veginn lýsingarorðið sem á við, og almennt er það ekki lýsingarorð sem maður hefur um glæpona, fjárglæframenn eða spillta pólitíkusa.

    Það er hins vegar algerlega málið fyrir fallna alþýðuhetju.

  7. MargrétJ tjáði sig:

    Verð nú að segja að þetta mér finnst lágkúra. Sama hvað má segja um Bubba, þá er þetta of langt gengið.
    Við erum að tala um skoðanaskipti milli Bubba og Sindra, sem skipta þjóðina, þig og mig, nillz máli. Þú færir þig á lægsta plan með þessu og fyrir utan að vera óskaplega óáhugavert, þá er þetta illgjarnt og verulega óþroskað.

  8. svansson tjáði sig:

    Margrét: Bestu þakkir fyrir þessa sýnikennslu í málefnalegu kommenti á háu plani. ;)

  9. Daði tjáði sig:

    Svona skoðanakönnun segir í raun minna um Bubba Morthens heldur þann sem setur hana upp.

  10. svansson tjáði sig:

    Þessi skoðanakönnun segir nánast berum orðum að ég er enginn sérstakur aðdáandi hans í dag - og ef e-ð er að marka atkvæðin er ég fjarri því einn um það. ;)

  11. E.R. tjáði sig:

    Margrét mætti vera gestapenni á þessari ágætu síðu, gæti t.d. skrifað “föstudagsflippið” eða slíkt, ritfær kona með eindæmum.

  12. Sérhver tjáði sig:

    Já.
    Davíð Oddsson.

  13. Pétur tjáði sig:

    Segir meira um Bubba en um Keikó…

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...