Vandi Ögmundar - og fleirra

Ögmundur tjáir sig mjög afdráttarlaust um söluna til Magma, og svo sem fátt í máli hans sem kemur á óvart. Hann gagnrýnir eigin ríkisstjórn harkalega fyrir að leyfa þessu að gerast.

Áður en lengra er haldið er líklega rétt að taka fram að ég er ekki andvígur því að eignarhald á auðlindum sé erlent - en þetta er hins vegar engan ásættanleg staða; að orkufyrirtæki fari í þvingaðar sölur vegna lélegs reksturs, og á útsöluverði. Eins og ég lít á málin, þá er ástæða þess við viljum eiga þessar auðlindir sá hagnaður sem þær geta skapað okkur, og ef við getum fengið meira út úr því að selja þær að hluta til er það fyrst og fremst jákvætt - og snýst að mestu leyti um að fá góð verð. Það er ekki tilfellið hér.

Vandinn við málflutning Ögmundar er að þessi sala snýst ekki um það hvaða skoðanir menn hafa á erlendu eignarhaldi á orkulindum eða auðlindum almennt, heldur snýst þetta bara um rekstur. Annars vegar rekstur orkufyrirtækjanna sem slíkan, og hins vegar fjárhagslega stöðu eigendanna. Ef að fyrirtækið stendur ekki undir skuldum, og eigandinn getur ekki komið inn með fjármagn er þetta einfaldlega búið.

Sem leiðir hugann að Landsvirkjun. Það er illa varðveitt leyndarmál að þar eru erfiðir gjalddagar framundan á næstu árum, og að þar getur brugðið til beggja vona. Hún er líklegur kandidat fyrir næsta slag um eignarhald á okkar orkulindum, á eftir þeim sem nú er líklega tapaður. Staða hennar var ekki áhyggjuefni fyrir nokkrum árum, því ríkissjóður var skuldlaus og hefði getað gripið Landsvirkjun í greiðslufalli. Nú er það breytt - ríkissjóður er hættulega skuldsettur, með mikinn hallarekstur, í fjárhagslegri gjörgæslu, og engin þjóð í heiminum vill lána okkur fjárhæðir sem hafa einhverja þýðingu nema við séum í prógrammi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Með öðrum orðum, að við getum hæglega tapað Landsvirkjun líka. Ef við viljum geta bjargað henni frá erlendum auðhringjum verður að koma stöðu ríkissjóðs í lag.

Það vantar töluvert upp á trúverðugleikann hjá Ögmundi og lagsmönnum hans hjá Vinstri Grænum sem eru helstu andstæðingar allra tillagna um niðurskurð á hjá ríkinu, og sem hefur raunverulega tekist að fá ríkisstjórnina til að draga lappirnar í allri sinni viðleitni til draga úr útgjöldum. Því ef menn vilja að ríkissjóður geti bjargað Landsvirkjun verða menn að koma rekstri hans í lag.

Það gengur einfaldlega ekki upp að tala í stríðsyfirlýsingum gagnvart erlendu eignarhaldi og gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að “leyfa þessu að gerast” á sama tíma og maður berst hatrammlega gegn því að ríkissjóður sé í stakk búinn til að gera neitt.

Comments are closed.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...