Skúbb dagsins - fleiri kærur væntanlegar

Samkvæmt einkar áreiðanlegum heimildum ætlar feministafélagið ekki að láta þar við sitja að kæra Valitor (Visa), heldur eru sambærileg málaferli við eftirfarandi fyrirtæki í farvatninu:

Allir bankarnir, einnig seðlabankinn.
Allar raftækjavöruverslanir þar sem sjónvörp eru fáanleg.
Allar tölvuverslanir.
Öll símafyrirtækin, sem bjóða upp á netþjónustu, þó ekki Nova að svo stöddu.
Farice hf (sem á og rekur Farice sæstrenginn).

En svona án gríns, að þessi kæra hefði aldrei verið lögð fram ef það væri enn einhver töggur í Spaugstofunni.

2 tjásur to “Skúbb dagsins - fleiri kærur væntanlegar”

  1. SHIFT-3 tjáði sig:

    En hvað með launagreiðendur? Bera þeir enga ábyrgð fyrir að láta dónakallana fá alla þessa peninga? Vilhjálm Egilsson og Samtök atvinnulífsins í tugthúsið!

  2. svansson tjáði sig:

    Að maður tali nú ekki um bókaverslanirnar með tímaritin!

Kannanir

Hvað viltu gera með lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

  • Bæta Birni Bjarnasyni á listann (27.0%, 38 Votes)
  • Afskrifa prófkjörið og velja upp á nýtt (27.0%, 38 Votes)
  • Kjósa listann sem fyrst á þing (22.0%, 32 Votes)
  • Skila auðu (13.0%, 19 Votes)
  • Gera kjörseðilinn ógildan (eða sitja heima) (11.0%, 16 Votes)

Total Voters: 143

Loading ... Loading ...