Guðmundur hættir

Guðmundur Magnússon hættir sem ritstjóri DV. Það er nokkur tíðindi, og spurning hvort hann skili sér þá ekki fljótlega aftur í bloggheima?

Síðan veit maður ekki alveg hvað á að lesa í lokaorðin í fréttinni.

Og hér er öflugt fólk sem er fullfært um að halda verkinu áfram og hrinda í framkvæmd þeirri stefnumótun stjórnenda að tengja vefinn miklu betur en áður  við aðra miðla fyrirtækisins, DV og tímaritin.

Er ekki hægt að skilja þessi ummæli á þá leið að eigendurnir hafi gefist upp á dv.is sem sjálfstæðum netfréttamiðli og hafi ákveðið að hann verði vefur birtings, sem endurbirtir styttar fréttir, sameinast mannlífsorðrómnum, og birtir tísera sem eiga að selja DV (blaðið) og áskriftartímaritin?

Comments are closed.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...