Afmælisgjöfin
Á þessu myndbandi, sem ég sá fyrst hjá Sigurjóni fær ung stúlka Lexus í 15 ára afmælisgjöf. Hún bregst við með mikilli reiði, grætur, sakar móður sína um heimsku af verra taginu og að hafa eyðilagt allt. Og var bíllinn þó draumagjöfin.
Ástæðan er tímasetningin. Hún vildi fá hann afhentan í afmælisveislunni sinni.
En það segir kannski líka sögu um það sem oftar en ekki er að gerjast innra með þeim sem mestum tíma og orku eyða í það að safna péningum: Allt gengur þetta út á að ganga í augun á meðbræðrunum eða sýna/sanna yfirburði sína. Fyrir fimmtán ára stúlku hefur það gildi að fá afhentan dýran bíl frammi fyrir öllum sem hún hefur nokkurn tímann þekkt, en annars hefur hún ekkert með kvikindið að gera.
