Meira um hrefnur

Ég stórefast um að það sé rétt hjá Andrési og fleirum að það sé enginn markaður fyrir þetta Hrefnukjöt. Þó að eftirspurnin hér heima sé ekki veruleg hefur hún samt alltaf verið einhver. Veitingahús bjóða upp á hrefnukjöt á matseðlum, og hún er inni í myndinni hjá fólki sem grillréttur. Ég sá hana stundum og stundum ekki í stórmörkuðunum og hún var mjög lengi fáanleg hjá Deplu í Kolaportinu (sem er held ég einhver besta fiskbúð landsins).

Efnahagslegt gildi þessara veiða er í sjálfu sér ekki neitt, nema þá einna helst til að halda mönnunum á skutlunum í æfingu. Þetta magn er auðvitað grín miðað við það sem var og hét þegar við veiddum mikið til útflutnings.

Er ekki bara verið að halda áfram veiðum sem við vorum þegar byrjaðir á? Hér er í það minnsta ekki um neina meiriháttar stefnubreytingu að ræða, og það er ekki eins og menn ætli aftur að taka nokkrar langreyðar.

Þetta hefur enn sem komið er ekki haft neinar katastrófískar afleiðingar á alþjóðavettvangi, þó líklega megi tala um óþægindi.

Auðvitað eiga menn líka að hafa tækifæri til að skapa sér markaði fyrir afurðir (eða endurbyggja). Einu sinni var enginn markaður fyrir svínakjöt á Íslandi. Skyrdrykkir þekktust ekki, heldur ekki margvíslegir innfluttir ferskir ávextir og grænmeti. Markaðir fyrir nýjar vörur verða í fæstum tilvikum til vegna eftirspurnar, heldur hefjast þeir hjá frumkvöðlinum sem skapar/þróar nýja vöru og skapar sér markaði fyrir hana. Sem getur tekið mjög langan tíma, og er í mörgum tilvikum eilíft ferli.

Þess vegna gengur ekki upp að ætla að banna eitthvað með þeim rökum að markaðurinn sé ekki fyrir hendi. Ef það er hægt að bú’ann til eiga menn að fá tækifæri til þess og ef það gengur ekki upp hljóta menn að hætta því fyrir rest.

Og það gildir það sama um hvalkjöt og aðrar vörur, að ef ætlum að kalla þetta frjálst hagkerfi þurfa að vera mjög góðar ástæður fyrir því ef það á að hindra hér skapist stabíll markaður fyrir Hrefnukjöt.

Þetta veiðimagn af Hrefnu er líklega innan við 1% af árlegri heildarkjötneyslu Íslendinga, og kílóverðið af Hrefnukjöti hefur verið mun ódýrara en á öðru kjöti.

Menn geta í sjálfu sér deilt endalaust um það hvort hér sé fyrir hendi markaður eða hversu stór hann sé í augnablikinu (ég hugsa að hann sé þarna þó hann sé frekar smár). En það væri frekar “döh” að reyna að halda því fram að það sé ekki hægt að skapa markað fyrir Hrefnukjöt hér á landi, eða hvar sem er annars staðar í heiminum ef því er að skipta.

Comments are closed.

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...