Sorglegt ástand á Friðjóni?

Það er í það minnsta leitt hvað eldist ungur. - en gott hann skuli geta yljað sér við hlýjar minningar frá formannstíð Gulla í SUS - var það ekki 1994?

Það hafa alltaf fyrirfundist “grand old men” í öllum ungliðahreyfingum - en hingað til hafa þeir yfirleitt verið lausir við elliglöp.

Friðjón á held ég Íslandsmet í ungliðastarfi. Þegar ég var að byrja í Vöku var hann enn að láta sjá sig í kosningabaráttum, og var þá altalaður sem eini aktívi félagsmaðurinn með minni aftur fyrir tímann sem félagið hafði verið í minnihluta. Þetta var 2001, og félagið búið að vera í útlegð frá 1991. Og ekki ber á öðru enn hann sé enn að. Tveir áratugir í ungliðastarfi á hægri vængnum? Það er hreint ekki lítið - ég get ekki annað en borið virðingu fyrir því, enda voru þrjú ár of stór skammtur fyrir mig.

Þetta gæti reyndar verið eitthvað meiri tími - þetta er bara það elsta sem ég veit fyrir víst um starfsaldurinn hans í þessu.

Það er reyndar ekki síður virðingarvert að hann skuli enn geta hafið sig upp af innblásinni reiði yfir birtingarmyndum skoðanakúgunar og flokkshollustu - einkum hjá gömlum keppinautum í hinum stórfurðulegum innanflokksátökum sem ungliðahreyfingin var heltekin af á tímabili.

Það hefur löngum verið einkenni elliglapa, hversu ótímabærar sem þau kunna að vera, að elstu minningarnar verða mönnum hugleiknar, og af þeim stafar ákveðnum ljóma, en síðari tíma minningar hverfa, eða verða óljósar þannig að tímasetningum og staðreyndum slær saman í hrærigraut. Þannig að mér finnst rétt að rifja það upp fyrir Friðjóni og kannski fleirum að opin umræða um lögleiðingu fíkniefna lagðist af innan SUS og Heimdallar í kringum 2002, meðan bandamenn hans voru enn með völdin á báðum vígstöðvum.

Sjálfum finnst mér enginn ljómi stafa frá átökunum í SUS á þessum árum, og er feginn að vera laus við þetta. Ég hef ekki trú á því að almennur vilji sé meðal núverandi SUS-ara (sem flestir eru yngri en Friðjón) til að fara aftur í þetta far - og allra síst myndi ég vilja eyða ellinni í bömmer út í gamla andstæðinga frá þessum tíma.

Þannig að ég vona bara heitt og innilega, Friðjóns sjálfs vegna, að hann nái að slíta bæði hugann og fæturna úr ungliðastarfinu í sátt við Guð og menn, áður en hann leggst nú fyrir fullt og allt í kör í elli sinni. ;)

Ein tjása to “Sorglegt ástand á Friðjóni?”

  1. Friðjón tjáði sig:

    Það er rétt að umræðan um lögleyfingu fíkniefna innan Sus og Heimdalls varð sjálfdauð um það leyti sem Frjálshyggjufélagið var stofnað.

    EN, umræðunni var ekki hafnað.

    Ég er sjálfstæðismaður, ekki í neinu stríði við núverandi forystu Sus. Kann vel við núverandi formann og alla sem ég þekki í stjórn Sus. Sem furðulegt nokk eru ekki fáir, miðað við að ég sé nánast lagstur í kör.

    Mér fannst skilaboðini merkileg.

    En það er fyndið að þú ert í sama gamla skotgrafagírnum….

Kannanir

Fyrirfinnst nokkur aumkunarverðari Íslendingur en Bubbi Morthens?

View Results

Loading ... Loading ...