Hverju hreytti Ólafur í Helga?
Viðtal Helga Seljan við Ólaf F í kvöld var kostulegt, svo ekki sé meira sagt, og verður sjálfsagt mikið skoðað á netinu. Svo það er ekki úr vegi að benda líka á útgöngu Ólafs úr þættinum, á meðan Þórhallur kynnir næsta atriði. Er strax í byrjuninni hér. Hreytir einhverju í Helga, tæmir vatnsglasið sitt í einum teyg og strunsar svo út í beinni.
Hvað skyldi maðurinn eiginlega hafa sagt. ;)

7.31.2008 kl. 12:10
Góður! Ég tók ekki eftir þessu fyrr en ég sá þetta hjá þér.
7.31.2008 kl. 13:14
Ég sá þetta eiginlega ekki heldur fyrr en naskur maður benti mér á það. :)