Á Jens Guð DV.is?
Nei, líklega ekki. En það stendur núorðið alltaf á blogggáttinni við bloggið hans. “Jens Guð á dv.is”.
Svo skoðaði ég betur og sá að það stendur eitthvað svipað við fleiri sem munu vera sérlegir DV-bloggarar. En Jens er líklega sá eini sem ég hef lesið hingað til.
Mér finnst þetta vera svona semi hallærislegt. Að DV.is sé að stæla bloggarakonseptið á Eyjunni, að þeir skuli ekki gera það betur og að þeir skuli láta bloggarana sína klína einhverju svona smáprómói á Blogggáttina, svo að allir viti nú að þeir bloggi á DV.is

7.31.2008 kl. 13:46
Vitlaus linkur… mátt eyða þessu kommenti ef þú vilt.