Íslenskur bardagaíþróttamaður hótar á netinu?
Það hefur löngum verið litið alvarlegum augum þegar einhverjir sem leggja stund á bardagaíþróttir sýna af sér hegðun sem er íþróttinni með einhverjum hætti ekki til sóma, og yfirleitt er reynt að koma í veg fyrir að menn sem gefa tilefni til að ætla þeir séu öðrum hættulegir æfi bardaga- eða sjálfsvarnaríþróttir.
Á töflunni má sjá “peist” af netumræðum sem einhvers staðar áttu sér stað vegna hundsins Lúkasar. (Tíunda efsta færslan, höfundur skinkuorgel). Það er einkum einn spjallaranna sem er forvitnilegur, svo við skulum grípa niður í hans komment, sem beint var gegn hinum meinta hundabana, sem þá var margnafngreindur.
Ég skrifa undir fullu nafni því það er eindregið ósk mín að þu leitir mig uppi aumingjinn þinn. Ég hefði mikla ánægju af að taka þig í gegn enda virkar þú heldur væskilslegur! Ég var líklega einn af þeim síðustu sem sáu þennan hund á lífi og leitaði að honum ófáar klukkustundirnar. Það vita allir hvar þú átt heima og þú átt ekki von á góðu greyið mitt. Þú ert sjúkur aumingji! Vona að við sjáumst sem fyrst…þú ættir kannski að goggla mig áður en þú ræðst á mig!!
Síðar sagði hann, aftur undir fullu nafni:
Verðum við strákanir ekki að kíkja á Seltjarnarnes……..það er svo fallegt þar…..án þín. það er kominn á keppni um hver nær þér!!
Síðasta komment þessa ræðumanns, enn og aftur undir fullu nafni, sem finna má þarna á töflunni hljóðar síðan svo:
ég er persónulega búinn að setja menn á þig..ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð. Þetta er lítið land og auðvelt að fylgjast með þér. Please komdu og …..þú ert greinilega gríðarlegt karlmenni….sjáumst um helgina! Það ætti ekki að vera mikið mál að finna þig ; )
Það er ekki ljóst hvaðan þetta er peistað, en hugsanlega voru þessir gullmolar skrifaðir á vefsvæði sem var öllum opið, í það minnsta á þeim tíma.
Þessi ummæli skrifaði Hilmar Trausti Harðarson. Í þjóðskrá finnst einn maður með því nafni, fæddur árið 1970. Einföld leit á google sýnir fljótt að hann vinnur á leikskóla, er með svart belti í júdó og hefur unnið til verðlauna sem keppnismaður í íþróttinni.
Ég veit ekki hvar orginallinn að þessum umræðum er, en mér sýnist eftir sem áður vera þarna á ferðinni eftirtektarvert mál - og einu gildi í því sambandi hvort hundurinn Lúkas er lífs eða liðinn.

7.18.2007 kl. 11:29
Burt séð frá því hvaða “skills” maðurinn hefur þá er hreint ótrúlegt að 37 ára gamall karlmaður skuli skrifa svona lagað.
7.18.2007 kl. 14:11
Bara 36, þangað til í september. Show mercy maður show mercy. :)
7.18.2007 kl. 20:14
þetta kalla ég nú ekki beint mikla fyrirmynd …aa omdu ég ætla að berja þig?????
hann er þá bara ekkert skárri en sjúku aularnir sem sögðust hafa drepið hundinn:S
7.18.2007 kl. 23:27
Komm on eittleysan heldur áfram. Í fyrsta lagi þá er þessu öllu komið af stað af einhverjum mannvitsbrekkum sem voru fullir á Akureyri og búa til einhverja sögu, líklega þora þeir svo ekki að bakka með þetta. Bardagamaðurinn maður lætur svo tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur eins og dýravinum er tamt og skrifar einhverjar innantómar hótanir á netið. Hundspottinnu hefur líklega aldrei liðið betur komin með feld eftir mánaðar útiveru Ef honum liði illa af hverju forðast hann þá þær hendur sem hafa fætt hann og klætt. Nú er þessi ekki frétt hér í bloggheimum viðtal við fóstruna sem skildi eftir hótun á bloggsíðu meints dýraníðings. Nú verður honum líklega hótað í framhaldinu svo kemur í ljós að fóstran skrifaði ekki þessar hótanir heldur fullu mannvitsbrekkurnar.
7.19.2007 kl. 9:46
Í dag byrjaði nýr starfsmaður á Bangsadeild. Hann heitir Hilmar Trausti og er nýútskrifaður leikskólakennari frá H.A.
Velkominn til starfa Hilmar Trausti!
7.19.2007 kl. 12:52
Ætlar engin/n að læra af reynslunni ?
Hvað vitið þið hver skrifaði þetta ?
Ég skrifa undir fullu nafni ….. hehe
Kveðja
Forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson ( Og þá er það auðvitað ég…. )
7.19.2007 kl. 13:15
Eyjan skrifaði frétt um málið í kjölfarið á blogginu mínu og ræddi beint við téðan Hilmar Trausta. Hann gengst þar við því að vera höfundur kommentanna.
Sjá hér:
Þetta er greinilega frekar hress týpa og kveðst meðal annars ekki vera sannfærður um að hundurinn sé á lífi. Engar sannanir - svona eins og málið hafi verið fullsannað þegar hann skrifaði hótanirnar. Umræðurnar aftan við þá frétt eru ekki amalegar heldur.
7.19.2007 kl. 13:23
http://www.lundarsel.akureyri.is/Starfsf%C3%B3lk/starfsfolk.htm
7.19.2007 kl. 14:30
Akureyringar: Það er gott að vita hvernig fólk er að ala upp börnin ykkar…. 37 ára gömul bardagahetja að hóta unglingsstrákum öllu illu….. “ég er persónulega búinn að setja menn á þig” segjir hann líka!!
Þetta er aumingjalegra en að drepa hund!!
7.19.2007 kl. 16:50
amen!!!!
7.19.2007 kl. 17:53
Þetta er maðurinn…sýnist hann nú ekki vera neinn harðjaxl sjálfur;)
http://www.lundarsel.akureyri.is/Starfsf%F3lk/Staffmyndir/Stjorn%20eldh%20og%20afl/IMG_4063-b.jpg
7.19.2007 kl. 22:34
Þú, Svansson.com, ert engu betri en þessi kauði sem ætlað er að hafa skrifað þessar hótanir. Það er með algjörum ólíkindum að fólk geti ekki lært af þessu og haldi áfram þessu kjaftæði! ERUÐI FÍFL?
7.20.2007 kl. 2:00
sýnist þessi maður vera hálffattlaður í fljótu bragði, allvega að myndinni að dæma, en það er ekki eins og hitt fiflið sé það líka, ég veit tók þá báða og bindum og látum lúkas tuska þá til, hér með ætla ég að berjast fyrir því :D
7.20.2007 kl. 10:26
Hilmar Trausti svarar fyrir nú fyrir þetta á spjallborði Ármenninga.
http://www.armenningar.is/forum/topic.asp?TOPIC_ID=274
7.21.2007 kl. 14:27
Það er virkilega hetjulegt að heita “Óli” og tjá sig svona um annað fólk. Húrra fyrir “Óla”.
7.25.2007 kl. 21:36
Hilmar Trausti er eitt besta dæmi um mann sem er með vöðva í staðin fyrir heila. Vonandi fær hann feita kæru á sig.
7.26.2007 kl. 23:04
Sé engan einu sinni skrifa hér með fullu nafni.
Óli þú ert algjör hetja. Pabbi minn er ábyggilega snarþroskaheftur.
Er ekki að segja að það hafi verið gáfulegt að skrifa þetta en mér finnst býsna sjúkt hversu mikil gúrka þetta er orðin. Það heyrist að hundur hafi verið drepin, einhver bendir á strákinn og það er byrjað að senda honum morðhótanir því fréttamenn hafa beinlínis stimplað hann sekann.
Það kemur svo í ljós að hundurinn er á lífi og þá er byrjað að ráðast á einn af þeim sem skrifaði á síðu þessa drengs.
..húrra fyrir íslandi
7.27.2007 kl. 10:38
Ég held að þetta sé orðið ágætt. Bestu þakkir fyrir umræðuna.
69 fær jafnframt bestu þakkir fyrir linkinn um daginn (öhömm)